Segir verðtryggingarfrumvarp „hafa fyrst og fremst neikvæð áhrif á meðlimi annarra stéttarfélaga“

Þórólfur Matth­í­as­son, pró­fessor í hag­fræði, segir að þeim sem kröfð­ust afnáms verð­trygg­ing­ar­innar sé bjargað frá nei­kvæðum áhrifum verð­trygg­ing­ar­frum­varps­ins með víð­tækum und­an­þágum.

Segir verðtryggingarfrumvarp „hafa fyrst og fremst neikvæð áhrif á meðlimi annarra stéttarfélaga“

Frumvarp um skref til afnáms verð­trygg­ingar er ekki til þess fallið að bæta stöðu laun­þega á hús­næð­is­mark­aði. Þetta segir Þórólfur Matth­í­as­son, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands, í umsögn sinni við frum­varpið á Sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

Í frum­varp­inu eru lagðar til nokkrar breyt­ingar á fyr­ir­komu­lagi veit­ingar verð­tryggðra fast­eigna­lána. Hámarks­tími verð­tryggðra jafn­greiðslu­lána til neyt­enda verður styttur 25 ár, nema lán­tak­endur upp­fylli ákveðin skil­yrði. Þá verður heim­ilt að miða við vísi­tölu neyslu­verðs án hús­næðis til verð­trygg­ingar.

Þórólfur segir að með frum­varp­inu sé ráð­ist í að draga úr notkun vin­sælasta lána­forms­ins á hús­næð­is­mark­aði. „Grunn­for­senda aðgerð­anna er því að stór hluti þeirra sem taka lán til kaupa á hús­næði velji lána­form sér til skaða,“ skrifar hann. „Engin rök eru sett fram til að rétt­læta inn­gripið.“

Í umsögn­inni kemur fram að tak­mörk­unin á veit­ingu verð­tryggðra lána muni mögu­lega ein­ungis ná til fámenns hluta lán­taka. „Hugs­an­lega undir 5%,“ skrifar Þórólfur. „Sá hópur myndi sam­an­standa af ein­stak­lingum eða sam­býl­is­fólki sem er yfir 40 ára gam­alt með tekjur umfram 4,2 millj­ónir (ein­stak­lingur) eða 7,2 millj­ónir (sam­býl­is­fólk) á næst­liðnu ári og af fólki sem sækt­ist efir verð­setn­ingu milli 50 og 70% af verð­mæti hús­næðis.  Spyrja má hvort eðli­legt sé að þrengja kjör svo fámenns og sér­tæks hóps með almennri laga­setn­ingu án þess að vitna megi til almanna­heilla.“

Þá telur Þórólfur að lána­stofn­anir muni koma til móts við þennan litla hóp með því að bjóða upp á lána­af­urðir sem líkja eftir hefð­bundnum jafn­greiðslu­lánum. Það verði mögu­lega gert með því að safna vaxta­greiðslum á sér­stakt kúlu­lán sem yrði gert upp þegar láns­tími væri hálfn­aður eða meira með nýju skulda­bréfi.

„Það er einnig rétt að benda á að sá hópur sem lík­leg­ast verður fyrir tak­mörk­unum, fólk um fer­tugt, með til­tölu­lega góðar tekjur en með lítið eigið fé í fast­eignum eða öðrum fjár­eignum er ekki sá hópur sem telst til umbjóð­enda verka­lýðs­fé­laga á almennum mark­aði,“ skrifar Þórólfur. „Þvert á móti er slíka hópa fyrst og fremst að finna meðal þeirra sem leita sér mjög langrar skóla­göngu erlendis, t.d. sér­fræði­læknar og fólk með dokt­ors­próf. Þessir hópar til­heyra flestir Banda­lagi háskóla­manna. Þannig má segja að inn­tak und­an­þág­anna sé í raun að hafa áhrif á aðila sem ekki eru félags­menn þeirra félaga sem gerðu kröfu um umræddar breyt­ingar.“

„Und­an­þágu­á­kvæði frum­varps­ins draga stór­lega úr áhrifum fyr­ir­hug­aðrar laga­breyt­ingar á með­limi þeirra verka­lýðs­fé­laga sem settu fram kröf­una“

Loks bendir Þórólfur á að ráð­ist hafi verið í vinnu við frum­varpið að und­ir­lagi aðila vinnu­mark­að­ar­ins. „Frá sjón­ar­hóli sið­fræði og almennrar kurt­eisi má spyrja hvort eðli­legt sé að krafa sem sett er fram af hálfu verka­lýðs­fé­laga á almennum mark­aði gagn­vart stjórn­völdum sé útfærð á þann hátt að hafa fyrst og fremst nei­kvæð áhrif á með­limi ann­arra stétt­ar­fé­laga,“ skrifar Þórólfur að lokum. „Und­an­þágu­á­kvæði frum­varps­ins draga stór­lega úr áhrifum fyr­ir­hug­aðrar laga­breyt­ingar á með­limi þeirra verka­lýðs­fé­laga sem settu fram kröf­una. Und­an­þágu­á­kvæði verða til þess að fyr­ir­hug­aðar laga­breyt­ingar gera með­limum ann­arra verka­lýðs­fé­laga erf­ið­ara fyrir að fá lána­fyr­ir­greiðslu við hús­næð­is­kaup. Ekki er hægt að mæla með sam­þykkt frum­varps­ins í óbreyttri mynd.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár