Davíð segir að Bjarni hafi rætt við sig um val á Seðlabankastjóra árið 2014

Bjarni Bene­dikts­son hitti Davíð Oddsson reglu­lega á Hótel Holti og fékk sér hádeg­is­verð með honum á þessum tíma. Davíð segir Bjarna hafa upp­lýst fólk um að ekki stæði til að end­ur­skipa Má Guð­munds­son en síðan hringt í sig og lýst „óvæntu flækju­stigi“.

Davíð segir að Bjarni hafi rætt við sig um val á Seðlabankastjóra árið 2014

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greinir frá því í Reykja­vík­ur­bréfi í dag að Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hafi átt í sam­skiptum við sig um val á Seðla­banka­stjóra árið 2014. 

„Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hafði bæði gefið til kynna og sagt ýmsum frá að hann ætl­aði sér ekki að end­ur­skipa Má Guð­munds­son þegar að því kom árið 2014,“ skrifar Davíð, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins til 14 ára. 

„Þegar að þessu dró var ráð­herr­ann staddur fyrir norðan, senni­lega á Siglu­firði, og hringdi í menn og upp­lýsti þá, og þar á meðal rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, að vegna óvænts flækju­stigs sem upp hefði komið (sem ekki verður farið út í hér) hefði hann ekki náð að gera breyt­ing­arnar sem hann hefði marg­boðað. Hann myndi því skipa Má og skip­un­ar­bréfið gæfi til kynna að það yrði til fimm ára.“

Fram kemur að hins vegar hafi verið „sam­eig­in­legur skiln­ingur á því að skip­unin stæði í hæsta lagi til eins árs“ en ekki hafi allir verið „mjög trú­aðir á þennan mála­til­búnað“. 

Davíð vitnar í „minnis­p­unkta“ og segir að Bjarni Bene­dikts­son hafi efn­is­lega sagt eitt­hvað á þessa leið: „Þessu mega menn treysta og Már gerir sér grein fyrir þessu og mun birta yfir­lýs­ingu sem í raun stað­festir það sem ég er að segja.“

Már Guð­munds­son var end­ur­skip­aður til fimm ára í ágúst 2014. Þegar til­kynnt var um skip­un­ina gaf Már Guð­munds­son út yfir­lýs­ingu þar sem hann sagði meðal ann­ars: „Ég tel í þessu sam­bandi rétt að upp­lýsa að ég hef í nokkur ár haft hug á að skoða mögu­leik­ann á að hverfa á ný til starfa erlendis áður en ald­urs­mörk hamla um of. Ég taldi ekki heppi­legt að gera það nú í ljósi ástands­ins og verk­efna­stöð­unnar í Seðla­bank­anum auk fjöl­skyldu­að­stæðna. Þetta mun breyt­ast á næstu miss­erum. Það er því óvíst að ég myndi sækj­ast eftir end­ur­ráðn­ingu komi til slíks ferlis vegna breyt­inga á lögum um Seðla­banka Íslands á næstu miss­erum.“ 

Davíð Oddsson gegndi emb­ætti aðal­banka­stjóra Seðla­bank­ans frá 2005 til 2009. Rann­sókn­ar­nefnd Alþingis komst að þeirri nið­ur­stöðu árið 2010 að Davíð Oddsson og banka­stjórn Seðla­bank­ans hefðu sýnt af sér van­rækslu í aðdrag­anda hruns­ins. Nú, tæpum tíu árum síðar, liggur fyrir að kostn­aður rík­is­sjóðs vegna umdeildra lán­veit­inga Seðla­bank­ans gegn ótryggum veðum á þeim tíma nemur um 235 millj­örðum króna. Frá því að Davíð vék úr emb­ætti seðla­banka­stjóra hefur hann farið hörðum orðum um eft­ir­menn sína, bæði um Norð­mann­inn Svein Harald Øygard og Má Guð­munds­son. 

Bjarni Bene­dikts­son upp­lýsti um það þegar hann var nýorð­inn fjár­mála­ráð­herra árið 2014 að hann hitti stundum Davíð Oddsson á Hótel Holti. Sagðist Bjarni gjarnan hlusta á sjón­ar­mið fyrr­ver­andi for­ystu­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hins vegar væri ekk­ert til í því að „Davíð eða ein­hverjir aðrir séu að stjórna á bak við tjöldin“. 

Samkvæmt frá­sögn Davíðs Odds­sonar í Reykja­vík­ur­bréfi í dag fékk Davíð upp­lýs­ingar um það á undan öðrum að Bjarni hygð­ist end­ur­nýja skipun Más Guð­munds­sonar árið 2014. Þá virð­ist sem Bjarni hafi áður verið búinn að upp­lýsa Davíð um að til stæði að skipa annan umsækj­anda en Má.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár