Mynd: Heiða Helgadóttir

Hluti af málsvörn Hannesar fyrir Davíð þegar verið hrakinn í rannsóknarskýrslunni

Ást­ar­bréfa­við­skipti og Kaup­þings­lán Seðla­bank­ans kost­uðu rík­is­sjóð sam­tals um 235 millj­arða króna. Kaup­þings­lánið var á skjön við þá almennu stefnu­mörkun sem fólst í neyð­ar­lög­unum og með ást­ar­bréfa­við­skipt­unum má segja að Seðla­bank­inn hafi „afhent bönkunum pen­inga­prent­un­ar­vald sitt“.

Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son stjórn­mála­fræði­pró­fessor segir í skýrslu sinni um erlenda áhrifa­þætti hruns­ins að banka­stjórn Seðla­banka Íslands hafi ekki haft heim­ildir til að kalla eftir ítar­legum upp­lýs­ingum um raun­veru­lega stöðu bank­anna.

Setur Hannes aðstæður seðla­banka­stjórnar í sam­hengi við umkvart­anir Ben Bernanke, fyrr­ver­andi banka­stjóra Seðla­banka Banda­ríkj­anna, um að sú stofnun hafi ekki haft heim­ildir til að nálg­ast við­kvæmar upp­lýs­ingar frá fjár­fest­ing­ar­bönkum á borð við Bear Stearns þegar nauð­syn krafði. Þessi málsvörn Davíðs Odds­sonar og fyrr­ver­andi banka­stjórnar Seðla­banka Íslands, sem end­ur­ómar í skýrslu Hannesar Hólm­steins, hefur þegar verið hrakin með ítar­legum hætti í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um banka­hrunið.

Davíð Oddsson, náinn vinur og sam­herji Hannesar Hólm­steins til margra ára­tuga, er gerður að eins konar hetju í skýrsl­unni, sem var unnin fyrir Félags­vís­inda­stofnun, á meðan póli­tískir and­stæð­ingar þeirra eru sagðir bera ábyrgð á því sem aflaga fór. Hin óháða rann­sókn­ar­nefnd, sem var skipuð til að leggja mat á aðdrag­anda og orsakir banka­hruns­ins og draga lær­dóma af atburð­unum sem áttu sér stað haustið 2008, komst hins vegar að þeirri nið­ur­stöðu árið 2010 að Davíð Oddsson og banka­stjórn Seðla­bank­ans hefðu „látið hjá líða að bregð­ast við yfir­vof­andi hættu á við­eig­andi hátt og grípa til við­hlít­andi ráð­staf­ana og með því sýnt af sér van­rækslu“ í aðdrag­anda hruns­ins. Nú, tíu árum eftir hrun, liggur fyrir að kostn­aður rík­is­sjóðs vegna umdeildra lán­veit­inga Seðla­bank­ans gegn ótryggum veðum í aðdrag­anda hruns­ins er um 235 millj­arðar króna. 

Héldu að þeir mættu ekki fá upplýsingar

Í 19. kafla rann­sókn­ar­skýrsl­unnar er haft eftir Sturlu Pálssyni,  fram­kvæmda­stjóra alþjóða- og mark­aðs­sviðs Seðla­bank­ans, að Seðla­bank­inn hafi ekki haft laga­heim­ildir til að kalla eftir upp­lýs­ingum úr lána­bókum bank­anna eða kynna sér stórar áhættu­skuld­bind­ingar þeirra í aðdrag­anda hruns­ins. Þá sagði Davíð Oddsson að í Seðla­bank­anum hefðu „menn talið að þeir hefðu ekki heim­ild til þess að biðja Fjár­mála­eft­ir­litið um upp­lýs­ingar um útlán sund­ur­greind á ein­staka aðila“. 

Rann­sókn­ar­nefndin benti hins vegar á að að bæði í lögum um Seðla­banka Íslands og í lögum um opin­bert eft­ir­lit með fjár­mála­starf­semi hefði verið mælt fyrir um gagn­kvæma upp­lýs­inga­gjöf milli Seðla­bank­ans og Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. „Verður þannig ekki séð að skort hafi að lögum heim­ild fyrir Fjár­mála­eft­ir­litið til að afhenda Seðla­bank­anum upp­lýs­ingar um stórar áhættu­skuld­bind­ingar á nafn­greindu formi svo og aðrar upp­lýs­ingar, sem bank­anum var þörf á til þess að rækja lög­bundið hlut­verk sitt við að stuðla að virku og öruggu fjár­mála­kerfi og Fjár­mála­eft­ir­litið hafði yfir að ráða, væri um þær beðið,“ segir í skýrsl­unni. „Þar sem ekki hafa komið fram neinar við­hlít­andi skýr­ingar á því af hverju Seðla­bank­inn lét hjá líða að kalla eftir þessum upp­lýs­ingum verður að telja að það hafi verið afar gagn­rýn­is­vert að slíkt skyldi ekki vera gert.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjármálahrunið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár