Áreitt með nafnlausum smáskilaboðum í 13 ár og spyr hvort þjónustan gagnist öðrum en eltihrellum

„Af hverju þarf hið sjálf­gefna að vera að það sé opið fyrir áreitni og ein­elti eftir þess­ari leið?“ spyr Guðrún Línberg Guð­jóns­dóttir. „Kemur þetta ein­hverjum að gagni nú til dags? Öðrum en þeim sem vilja elti­hrella, leggja í ein­elti og áreita?“

Áreitt með nafnlausum smáskilaboðum í 13 ár og spyr hvort þjónustan gagnist öðrum en eltihrellum
Guðrún Línberg Guð­jóns­dóttir Mynd: Steinunn Lilja Draumland

Guðrún Línberg Guð­jóns­dóttir hefur verið áreitt með nafn­lausum smá­skila­boðum um margra ára skeið og gagn­rýnir að fyr­ir­tæki bjóði upp á sms-send­ingar án þess að krefj­ast auð­kenn­ingar.

„Af hverju þarf hið sjálf­gefna að vera að það sé opið fyrir áreitni og ein­elti eftir þess­ari leið?“ spyr hún. „Kemur þetta ein­hverjum að gagni nú til dags? Öðrum en þeim sem vilja elti­hrella, leggja í ein­elti og áreita?“

Guðrún fjallar um málið í stöðu­upp­færslu á Facebook og seg­ist reglu­lega hafa fengið nafn­laus skila­boð af net­inu síð­ustu þrettán árin, í seinni tíð aðeins af Nova.is.

Áður var einnig hægt að senda nafn­laus skila­boð af Já.is, en árið 2012 var gerð sú breyt­ing að kraf­ist var auð­kenn­ingar. Fram kom í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu að brögð hefðu verið að því í gegn­um tíð­ina að þjón­ust­an væri notuð til að senda nafn­laus skila­boð í far­síma fólks.

Guðrún tekur dæmi um skila­boð sem henni hafa borist. „Í febr­úar voru skila­boðin eft­ir­far­andi: „Hvernig líður þér með lygarnar þínar þegar kona sem þú þekktir var drepin í heim­il­is­of­beldi?“ Núna um helg­ina var í nafn­lausu skila­boð­unum löng þvæla sem átti senni­lega að fá mig til að ótt­ast um líf barns­föður míns, ýjað var að því að hann væri í sjálfs­vígs­hættu sem mætti rekja til illsku minnar.“

Hún segir að skila­boðin setji ekki líf sitt á hlið­ina og nýlega hafi hún frétt að hægt væri að hafa sam­band við fyr­ir­tækið og láta loka fyrir mót­töku nafn­lausra skila­boða. „En ég verð hugsi yfir þessu í hvert sinn. Af hverju er hægt að senda þessi skila­boð af vef Nova án þess að skrá sig inn eða auð­kenna sig með öðrum hætti? Af hverju býður Nova enn upp á þetta en öll önnur fyr­ir­tæki hafa hætt þessu? Af hverju ætti ég að þurfa að biðja sér­stak­lega um að láta loka fyrir þetta? Af hverju þarf hið sjálf­gefna að vera að það sé opið fyrir áreitni og ein­elti eftir þess­ari leið?“

Vitnað er í stöðu­upp­færsl­una með leyfi höf­undar. Haft var sam­band við Nova við vinnslu frétt­ar­innar og verður hún upp­færð með við­brögðum ef þau ber­ast.

Uppfært: Nova hefur brugð­ist við og ákveðið að loka fyrir þjón­ust­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynbundið ofbeldi

Þórhildur Sunna: „Í hvaða veruleika búa þau eiginlega?“
Fréttir

Þór­hildur Sunna: „Í hvaða veru­leika búa þau eig­in­lega?“

Lögregla taldi ekki til­efni til að hefja rann­sókn á meintri nauðgun þegar maður sagð­ist hafa sett lim í enda­þarm sof­andi 17 ára stúlku sem vildi ekki enda­þarms­mök. Þingkona Pírata og for­maður Laga- og mann­rétt­inda­nefndar Evr­ópu­ráðs­þings­ins segir að afstaða ákæru­valds­ins og málið allt valdi henni veru­legum áhyggjum af stöðu kyn­ferð­is­brota­mála í íslensku rétt­ar­vörslu­kerfi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár