Aðstoðarmaður Pírata segir umræðuna um orkupakkann einkennast af „sömu taktík og nasistar notuðu við að útrýma gyðingum“

Aðstoð­ar­maður þing­flokks Pírata kallar eftir mál­efna­legri og stað­reynda­bundn­ari umræðu um áhrif þriðja orku­pakk­ans. Hann setur málið í sam­hengi við áróð­urs­brögð nas­ista.

Aðstoðarmaður Pírata segir umræðuna um orkupakkann einkennast af „sömu taktík og nasistar notuðu við að útrýma gyðingum“

Eiríkur Rafn Rafnsson, aðstoð­ar­maður þing­flokks Pírata, segir umræð­una um þriðja orku­pakk­ann ein­kenn­ast af hræðslu­á­róðri og lygum. Hann setur málið í sam­hengi við áróð­urs­brögðin sem við­höfð voru í Þýska­landi á fjórða ára­tug síð­ustu aldar. 

„Að magna upp hræðsl­una við eitt­hvað óskil­greint, flókið og útlenskt er sama taktík og nas­istar not­uðu við að útrýma gyð­ingum, sós­í­alistum, hommum og fötl­uðum,“ skrifar Eiríkur á Pírata­spjall­inu, óform­legum umræðu­vett­vangi flokks­ins.

Þótt drjúgur þing­meiri­hluti virð­ist vera fyrir inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans í íslenskan rétt er málið gríð­ar­lega umdeilt. Þannig hafa heitar umræður farið fram um þriðja orku­pakk­ann á sam­fé­lags­miðlum und­an­farnar vikur. Í dag barst and­stæð­ingum orku­pakk­ans öfl­ugur liðs­auki þegar ASÍ lagð­ist gegn inn­leið­ing­unni með afdrátt­ar­lausum hætti og sagði „feigð­ar­flan að stað­festa mark­aðsvæð­ing­una“ sem falist hefði í orku­laga­bálkum ESB.

Eiríkur kallar eftir því að „þjóð­ern­ispopúlista­hræðslu­á­róðri Mið­flokks­ins“ verði hafnað og rætt um orku­pakk­ann á grund­velli stað­reynda. „Hver sá sem segir þér að þriðji orku­pakk­inn snú­ist um valda­af­sal Íslands til Evrópu, nauð­ung­ar­sölu á Lands­virkjun, sjálf­krafa sam­þykki fyrir lagn­ingu sæstrengs eða að það þurfi að virkja hvern ein­asta bæj­ar­læk sam­skvæmt skip­unum frá ESB.... ER AÐ LJÚGA AÐ ÞÉR!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samningurinn hafi ekki verið borinn undir Alþingi
FréttirÞriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samn­ing­ur­inn hafi ekki verið bor­inn undir Alþingi

Frosti Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og einn af tals­mönnum Orkunnar okkar, telur það stjórn­ar­skrár­brot að Ísland hafi und­ir­geng­ist skuld­bind­ingar ECT-samn­ings­ins án aðkomu Alþingis. Gunnar Bragi Sveins­son stóð að full­gild­ingu samn­ings­ins í rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.
Aðstoðarmaður Sigmundar réttlætir fullgildingu ECT-samningsins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræðuna“
FréttirÞriðji orkupakkinn

Aðstoð­ar­maður Sig­mundar rétt­lætir full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræð­una“

Hinn umdeildi samn­ingur um vernd orku­fjár­fest­inga varð ekki bind­andi fyrir Ísland fyrr en rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar full­gilti hann árið 2015. Ólíkt því sem lagt var upp með við und­ir­ritun samn­ings­ins 20 árum áður var full­gild­ingin ekki borin undir Alþingi. Aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs gefur lítið fyrir frétta­flutn­ing af mál­inu, en önnur Evr­ópu­ríki töldu ástæðu til að sam­þykkja sér­staka yfir­lýs­ingu um for­ræði yfir sæstrengjum og olíu­leiðslum. Með und­ir­ritun Gunnars Braga Sveins­sonar og Ólafs Ragnars Gríms­sonar árið 2015 skuld­bundu íslensk stjórn­völd sig til að fram­fylgja samn­ingnum í hví­vetna.
Stjórn Sigmundar fullgilti umdeildan samning um vernd orkufjárfestinga
FréttirÞriðji orkupakkinn

Stjórn Sig­mundar full­gilti umdeildan samn­ing um vernd orku­fjár­fest­inga

Með full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins hafa íslensk stjórn­völd skuld­bundið sig til að liðka fyrir frjálsum við­skiptum með orku­auð­lindir og að beita sér fyrir sam­keppni, mark­aðsvæð­ingu og sam­vinnu á sviði orku­flutn­inga. Reynt gæti á ákvæði samn­ings­ins ef upp koma deilur um lagn­ingu sæstrengs, en fjár­festar hafa meðal ann­ars notað samn­ing­inn sem vopn gegn stjórn­valds­að­gerðum sem er ætlað að halda niðri raf­orku­verði til almenn­ings.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár