Fagnaði tíu ára afmæli á mótmælum: „Fyrir fullorðna sem skilja þetta ekki“

Þær eru níu að verða tíu, nema Guðbjörg sem er tíu ára í dag. Afmæl­is­deg­inum var fagnað með lofts­lags­verk­falli á Aust­ur­velli, þar sem þær vin­konur héldu ræður gegn lofts­lags­breyt­ingum. Á hverjum föstu­degi flykkj­ast börnin niður í bæ þar sem þau syngja: „Við erum bara börn og fram­tíð okkar skiptir máli,“ um leið og þau krefj­ast aðgerða. Stundin ræddi við börn á vett­vangi.

„Við erum bara börn og fram­tíð okkar skiptir máli,“ syngja börnin sem flykkj­ast á Aust­ur­völl í hádeg­inu á föstu­dögum. Þau eru þar sam­an­komin til að mót­mæla lofts­lags­breyt­ingum og krefja stjórn­völd um aðgerðir. Sum þeirra brenna fyrir mál­efn­inu, önnur fylgja með félög­unum, bara til þess að prófa hvernig það er að láta rödd sína heyr­ast og reyna að hafa áhrif.

„Nú er svo komið að hreina vatnið okkar er orðið plast­mengað og eng­inn talar um það. Í fram­tíð­inni mun vera meira plast í sjónum en fiskar og sjór­inn fer að súrna.“

Hin níu ára Svava Arn­ars­dóttir stendur fyrir framan míkra­fón og heldur ræðu yfir hópnum.

Svava er nem­endi í Barna­skól­anum í Reykja­vík og hluti af vina­hópi sem brennur fyrir umhverf­is­málum. Vinkona hennar og bekkj­ar­systir, Katla Líf Drífu-Louisdóttir, grípur orðið: „Og við stöndum hér af því að við viljum að full­orðna fólkið fari að vinna með nátt­úr­unni. Fólk getur alveg breytt þessu. Það getur alveg hætt að nota plast og notað frekar raf­magn en bensín. Það getur alveg breytt því. Það þarf bara að nenna því. Hugsið ykkur að eftir nokkur ár þá mun kannski verða meira af plasti í sjónum heldur en fiskar!“

Svava heldur áfram: „Móðir jörð getur án okkar verið en við alls ekki án hennar. Hvað viljum við?“ Aðgerðir strax, kallar hóp­ur­inn. „Og hvenær viljum við þær?“ Núna.

Björgum jörð­inniBörn flykt­ust að Aust­ur­velli í dag líkt og síð­ustu föstu­daga.

Afmælisbarn á Austurvelli 

Fleiri úr vina­hópnum eru með í för. Þær eru allar níu að verða tíu, nema Guðbjörg Zelda Mar­vins­dóttir, sem er tíu ára í dag og fagnar afmæl­inu á Aust­ur­velli með vin­konum sínum sem syngja fyrir hana afmæl­is­söng­inn, á milli þess sem þær taka undir ræðu­höldin og hrópa slag­orð.

Aðspurð af hverju hún er hér á afmæl­is­dag­inn seg­ist hún vera hingað komin til að mót­mæla: „Af því að við ættum öll að gera eitt­hvað í þessu. Ef við gerum ekk­ert í þessu þá getum við ekk­ert gert í fram­tíð­inni. Ekkert gert fyrir jörð­ina. Í fram­tíð­inni munum við fatta það og þá getum við ekk­ert gert. Þá verðum við bara: Ha? Ó, við vissum ekki þetta! Á meðan við höfum verið að segja þeim það. Mér finnst það leið­in­legt.“ Hún hefur áhyggjur af því að það verði orðið of seint að bregð­ast við þegar vald­hafar átta sig loks­ins. 

Andvaka af áhyggjum

Hér er líka Diljá Sóley Ein­ars­dóttir. Í marga mán­uði hefur hún fengið kvíða vegna lofts­lags­breyt­inga, segir hún, og móðir hennar stað­festir síðar í gegnum síma að dóttir sín hafi átt and­vökunætur yfir því að það sé verið að eyði­leggja fyrir fram­tíð næstu kyn­slóða. Móðir hennar reynir að sefa kvíð­ann en segir að dóttir sín finni styrk í því að láta í sér heyra. Sam­staðan sé líka jákvæður stuðn­ingur. Og kraft­ur­inn sem birt­ist í börn­unum á Aust­ur­velli sé ómet­an­legur. 

Diljá deyr því ekki ráða­laus og hefur ákveðið að leggja sitt af mörkum í bar­átt­unni. Eitt af því sem hún gerði var að halda ræðu hér á Aust­ur­velli, líkt og vin­kon­urnar. „Finnst ykkur ekki að við ættum að gera eitt­hvað í þessu? Og hvenær viljum við gera það?

Við verðum hér alveg þangað til Alþingi gerir eitt­hvað í þessu.

Er ekki nátt­úran í fyrsta sæti?“ spurði hún síðan og árétt­aði að það væri ekk­ert plan b mögu­legt. „Þannig að hvenær viljið þið gera eitt­hvað í þessu?“

„Þannig að hvenær viljið þið gera eitt­hvað í þessu?“

Diljá lætur í sér heyraDiljá er alin upp við umhverf­is­vænar áherslur og er mjög með­vituð um að fram­ganga okkar hefur áhrif á umhverfi. Sjálf hefur hún útbúið lista yfir ein­faldar aðgerðir til að gera lífs­stíl­inn umhverf­is­vænni.

Leiðir að umhverfisvænni lífsstíl

Diljá er mjög hugsi yfir aðstæð­unum og hefur meðal ann­ars verið að velta því fyrir sér af hverju hagn­að­ar­vonin fær að ráða för í sam­fé­lag­inu, af hverju það snú­ist allt um gróða frekar en umhverfið, af hverju mat­vöru­versl­anir megi til dæmis selja plast­poka eða vatn í plast­flöskum. Um leið hefur hún verið að spá í því hvað væri hægt að nota í stað­inn fyrir plast og skráð það hjá sér í sér­stakri bók sem hún hefur með­ferðis, en þar má einnig finna til­lögur að umhverf­is­vænni lífs­stíl. 

Um leið og hún sýnir til­lög­urnar sem hún hefur skráð hjá sér tekur hún fram að hún hafi ekki vandað sig við skamm­staf­anir því hún hafi verið að drífa sig á mót­mælin. „Ég var að flýta mér svo mikið að koma hingað og gera þetta. Út af því að við þurfum að gera þetta strax. Það er bara ljótt af full­orðnum og kenn­urum að leyfa ekki krökk­unum að fara að mót­mæla. Ég vor­kenni krökkum sem falla fyrir þessum djókum að það verði pizza í mat­inn eða að fá að fara í ísferð með kenn­ar­anum.“ Aðspurð hvort hún hafi heyrt af því, svarar hún ját­andi. „Systir mín fór í ísferð í stað­inn fyrir að koma hingað.“

Fá stuðn­ing for­eldra Hér má sjá þær Svövu og Kötlu Líf með mæðrum sínum sem styðja þær í mót­mæla­að­gerð­unum.

Börnin geta breytt þessu 

Það sé hins vegar mik­il­vægt að börn mæti á mót­mælin. „Full­orðnir fatta ekki hvað er að ger­ast. Þeir hugsa bara um að WOW air er farið á haus­inn, í stað­inn fyrir að hugsa um þetta. Það er bara rosa­lega leið­in­legt að þeir fatti þetta ekki.“ Svava tekur undir orð vin­konu sinnar: „Börn fá miklu betri hug­myndir. Þau geta breytt þessu.“ Þær eru sam­mála um að það sé mik­il­vægt að börn grípi til sinna ráða: „Ég vil ekki að það verði ekk­ert líf á jörð­inni, að mann­fólk deyi og öll dýr deyi út,“ segir Svava.  

„Ég er hér að mót­mæla því ef við breytum þessu ekki þá mun allt mann­fólkið og öll dýrin deyja“

Í skól­anum hefur verið mikil umræða um loft­lags­breyt­ingar og þar hafa þær horft á þátta­röð­ina Hvað höfum við gert? sem sýnd er á RÚV.  „Við erum í skóla sem talar um þetta,“ segir Katla Líf. „Við erum að horfa á þessa þætti og mikið að tala um koltví­oxíð og allt það ógeð sem fer í loftið. Ég er komin hingað til að sýna full­orðnu fólki að þetta er ekki í lagi. Ég er hér að mót­mæla því ef við breytum þessu ekki þá mun allt mann­fólkið og öll dýrin deyja eftir nokkur ár,“  segir hún ákveðin. „Mér finnst fólk að eigi líka að bera virð­ingu fyrir dýrum og umhverf­inu.“

Diljá biður aftur um orðið: „Fyrir full­orðna sem skilja þetta ekki. Við erum öll í útrým­ing­ar­hættu.“

Vilja aðgerðirFull­trúar fimmta bekkjar í Vest­ur­bæj­ar­skóla, þeir Hrafn­kell Tími, Þórður og Daníel Elí, spyrja af hverju þetta þarf að vera svona.

„Við viljum aðgerðir“ 

Svona hefur þetta gengið und­an­farnar vikur. Fjöldi barna hefur skrópað í skóla eða fengið leyfi til þess að koma saman á Aust­ur­velli í hádeg­inu og berj­ast fyrir breyt­ingum og bjart­ari fram­tíð. Daníel Elí Johansen hefur mætt á mót­mælin síð­ustu þrjár vikur, en með honum eru þeir Þórður Skúlason og Hrafn­kell Tími Thorodd­sen. Í dag eru þeir full­trúar 5. bekkjar í Vest­ur­bæj­ar­skóla á Aust­ur­velli. „Það gætu nú alveg verið fleiri,“ segir Þórður og Daníel skýtur inn í:  „Komið að mót­mæla á föstu­dögum.“ Þeir vilja hvetja fleiri til að mæta. „Full­orðna og börn.“

„Við erum komnir til að mót­mæla loft­lags­breyt­ing­unum,“ segja strák­arnir allir í kór, „af því að ann­ars munum við deyja út. Ef við gerum ekki eitt­hvað í þessu.“

„Við viljum aðgerðir,“ segir Daníel. Aðspurðir af hverju þeir séu að velta loft­lags­málum fyrir sér svarar Þórður því til að þetta sé mik­il­vægt mál­efni en það sé eng­inn að gera neitt í því. Það sé af og frá að börn mæti bara á mót­mælin til að fá frí í skól­anum. „Það er bara ekki rétt,“ segir Þórður, og þó: „Kannski hjá sumum,“ játar Daníel, um leið og hann tekur fram að hann sé hér því mál­efnið sé mik­il­vægt að hans mati. Undir það taka þeir Þórður og Hrafn­kell Tími.

Börn og full­orðnirTíu ára gamlir drengir í Vest­ur­bæj­ar­skóla vilja hvetja fleiri til þess að mæta á mót­mælin, bæði börn og full­orðna.

Framtíð okkar er í hættu 

Alveg eins og stelp­unum er strák­unum mis­boðið vegna frétta um að skóla­stjórar hafi boðið börnum upp á pizzur ef þau mæti ekki á mót­mælin, og nefna það að fyrra bragði: „Ég hef heyrt um skóla­stjóra sem eru að múta börnum til að koma ekki. Mér finnst það alveg hræði­legt. Af hverju eru þeir að gera það?“ segir Þórður. „Á maður að vera í skól­anum ef jörðin er að deyja út,“ spyr Hrafn­kell Tími og Þórður svarar: „Það hjálpar líka að vera í skóla.“ „En bara ef þú átt fram­tíð,“ segir Daníel þá.

„Ég hef heyrt um skóla­stjóra sem eru að múta börnum til að koma ekki.  Mér finnst það alveg hræði­legt. Af hverju eru þeir að gera það?“

Fyrr í dag fóru þeir með skól­anum í Sorpu þar sem þeir fengu fræðslu um end­ur­vinnslu. Und­an­farið hafa verið þema­dagar, segja þeir, þar sem fjallað var um rétt­indi barna og þar hafi loft­lags­málin verið ofar­lega á dag­skrá. Skiltið sem Þórður heldur á ber þess merki: Þetta gengur ekki lengur, ef allir hjálp­ast að þá getum við breytt þessu. Sjórinn er ekki rusl, flokkum meira. Við eigum bara eina jörð, það er engin pláneta B. Þetta er mann­fólk­inu að kenna, aðgerðir núna. Jökl­arnir bráðna, af hverju er þetta svona? Framtíð okkar barna er í hættu. Þórður bjó skiltið til fyrir mót­mælin og ber það stoltur. Hér er fjöldi barna með kröfu­spjöld sem þau hafa búið til sjálf, þar sem þau árétta mik­il­vægi þess að gripið verði til aðgerða strax og ástæður þess. 

„Spáðu í því,“ segir Þórður, „það var bara ein stelpa sem kom þessu í gang. Það er svo­lítið merki­legt finnst mér. Ég horfði á frétt­irnar og þá var hún á ráð­stefnu og hafði skammað eitt­hvað fólk sem fór á ráð­stefn­una í flug­vélum. Nú er hún til­nefnd til frið­ar­verð­launa Nóbels.“

Geta börn haft áhrif? „Já, ef við hjálp­umst öll að og erum sam­taka.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár