Tilkynning um hermannaveiki í blokk fyrir eldri borgara vekur ugg

Íbúum á Granda­vegi 47 barst nýlega orð­send­ing frá sótt­varn­ar­lækni og Heil­brigð­is­eft­ir­liti Reykja­víkur þess efnis að mikið magn her­manna­veik­is­bakt­er­í­unnar hefði fund­ist í einni íbúð blokk­ar­innar. Dóttir níræðrar konu í blokk­inni hefur veru­legar áhyggjur af móður sinni en her­manna­veiki er bráð­drep­andi fyrir fólk sem er veikt fyrir.

Tilkynning um hermannaveiki í blokk fyrir eldri borgara vekur ugg

Í síð­ustu viku sendu sótt­varna­læknir og Heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur íbúum í fjöl­býl­is­húsi eldri borg­ara á Granda­vegi 47 orð­send­ingu þar sem íbú­arnir voru varaðir við því að tölu­vert magn af umhverf­is­bakt­er­í­unni Leg­ion­ella hefði fund­ist í vatns­sýni sem Heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur tók úr sturtu­haus í einni af íbúðum húss­ins. Umrædd bakt­ería er þekkt undir heit­inu her­manna­veiki og getur verið bráð­drep­andi, sér­stak­lega fyrir þá sem eru veikir fyrir eða komnir á háan aldur. Sólveig Bjarna­dóttir, dóttir níræðrar konu sem býr á Granda­vegi 47, furðar sig á orð­send­ing­unni sem hafi skilið eftir sig mun fleiri spurn­ingar en svör á meðal íbúa. Árný Sig­urð­ar­dóttir, fram­kvæmda­stjóri hjá Heil­brigð­is­eft­ir­liti Reykja­víkur, segir ekk­ert athuga­vert við vinnu­brögðin.

Kanna útbreiðslu bakteríunnar

„Sótt­varna­læknir vill vekja athygli á að nýlega greind­ist tölu­vert magn af umhverf­is­bakt­er­í­unni Leg­ion­ella í vatns­sýni sem Heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur tók úr sturtu­haus í einni af íbúðum í Granda­vegi 47. Þessi bakt­ería er stundum kölluð her­manna­veik­is­bakt­ería eftir að hafa valdið hóp­sýk­ingu meðal her­manna á ráð­stefnu í Banda­ríkj­unum 1976,“ segir meðal ann­ars í  orð­send­ingu sótt­varna­læknis og heil­brigð­is­eft­ir­lits­ins sem er dag­sett þann 28. febr­úar síð­ast­lið­inn og var sett í alla póst­kassa húss­ins og hengd upp á veggi þess.

Orð­send­inginHér gefur að líta orð­send­ingu þá sem sótt­varn­ar­læknir og heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur sendi íbúum Granda­vegi 47 í síð­ustu viku.

Þá kemur fram að full­frískir ein­stak­lingar geti fengið bakt­er­í­una í önd­un­ar­veg án þess að veikj­ast en aðra sögu megi segja um þá sem eru veikir fyrir. „Alvarleg veik­indi, lungna­bólga, verða einna helst hjá ein­stak­lingum með und­ir­liggj­andi áhættu­þætti en þeir eru hel­stir hár aldur, reyk­ingar, lang­vinnir lungna­sjúk­dómar, ónæm­is­skerð­ing, áfeng­is­sýki og nýrna­bilun.“ Íbúum er jafn­framt greint frá því að Leg­ion­ella sé bakt­ería sem lifi í vatni og algeng um allan heim. „Hún þolir hita­stig frá 0–63°C en lifir best í 30–40°C,“ segir í til­kynn­ing­unni, en þar eru íbúar meðal ann­ars hvattir til þess að láta vatnið í sturtum sínum renna af fullum krafti í 2–3 mín­útur áður en þeir fari í sturtu, til þess að koma í veg fyrir mögu­legt smit.

„Til að gæta fyllsta öryggis þar til nið­ur­stöður frek­ari rann­sókna liggja fyrir er íbúum ráð­lagt að skrúfa frá vatn­inu í sturt­unni af fullum krafti og láta renna í 2–3 mín­útur áður en þeir fara undir sturt­una. Ef bakt­er­ían er til staðar minnkar rennslið magn hennar í vatns­pípum og sturtu­hausum og dregur þar með úr líkum á að smit eigi sér stað. Þetta á sér­stak­lega við ef sturtan er sjaldan notuð,“ segir jafn­framt í til­kynn­ing­unni, en þar eru þessar leið­bein­ingar sagðar eiga við á meðan verið sé að kanna mögu­lega útbreiðslu „bakt­er­í­unnar í píp­unum og hvað er helst til ráða til að losna við hana úr vatns­píp­unum“.

Furðar sig á vinnubrögðunum

„Ég er alveg gap­andi yfir þessu vegna þess að þetta er alveg hræði­legur sjúk­dómur,“ segir Sólveig, sem gagn­rýnir meðal ann­ars að í orð­send­ing­unni komi ekk­ert fram um það hvenær búið verði að kanna mögu­lega útbreiðslu. „Það er engin nán­ari skýr­ing, sem mér finnst fyrir neðan allar hellur, ekk­ert síma­númer og eng­inn tölvu­póstur.“ Þá tekur hún fram að móðir hennar sé mjög óör­ugg vegna þessa en Sólveig, sem er búsett erlendis og á leið­inni aftur út í bráð, hefur sjálf áhyggjur af því að skilja aldr­aða móður sína eftir í þess­ari aðstöðu. „Svo er þeim bara sagt að láta vatnið renna og ekk­ert meira en það. Er þetta bara eitt­hvað sem er almennt gert?“ spyr Sólveig sem furðar sig á vinnu­brögð­unum. 

Árný Sig­urð­ar­dóttir, fram­kvæmda­stjóri hjá Heil­brigð­is­eft­ir­liti Reykja­víkur, segir að þeim finn­ist miður ef íbúar upp­lifi það þannig að þeir séu illa upp­lýstir. Hins vegar komi skýrt fram í orð­send­ing­unni hvaða emb­ætti komi að mál­inu og hvert eigi að leita. Þá séu síma­númer til dæmis aðgengi­leg á ja.is og víðar ef þörf sé á því. „Heil­brigð­is­eft­ir­litið var kallað til af sótt­varna­lækni varð­andi sýna­töku­hlut­ann og til sam­ráðs sem og að kort­leggja útbreiðslu,“ segir Árný í skrif­legu svari við spurn­ingum Stund­ar­innar, en hún segir eft­ir­litið ekki geta svarað fyrir þann hluta sem snýr að sótt­vörnum, eða mögu­lega hættu fyrir íbú­ana, og vísar á lækna og heilsu­gæslu líkt og gert er í orð­send­ing­unni.

Árný segir jafn­framt að verið sé að skoða lagna­kerfi húss­ins í sam­ráði við hús­vörð og hvar mögu­lega þurfi að grípa til aðgerða af hálfu hús­eig­enda. Þá sé heil­brigð­is­eft­ir­litið í þéttu sam­starfi við sótt­varna­lækni varð­andi málið. „Það er svo sótt­varna­læknis og heil­brigð­is­eft­ir­lits­ins að meta hvort ein­hverra frek­ari við­var­ana sé þörf eða upp­lýs­inga til íbúa en þegar hafa komið fram, og eins ef nýjar upp­lýs­ingar koma fram,“ segir Árný sem tekur fram að íbúar skuli áfram fylgja þeim leið­bein­ingum sem fram komi í orð­send­ing­unni.

Ekki náð­ist í sótt­varna­lækni við vinnslu þess­arar fréttar.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Heilbrigðismál

Bandarískt fjárfestingarfélag eignast eina glasafrjóvgunarfyrirtæki Íslands
FréttirHeilbrigðismál

Banda­rískt fjár­fest­ing­ar­fé­lag eign­ast eina glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæki Íslands

Sænskt fyr­ir­tæki sem á 64 pró­senta hlut í glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Livio hefur verið selt. Kaup­and­inn er fyr­ir­tækið Gener­alLife sem hefur keypt upp mörg glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæki í Evrópu. End­an­legur eig­andi er fjár­fest­ing­ar­fyr­ir­tæki í Banda­ríkj­unum sem meðal ann­ars er í eigu vog­un­ar­sjóða.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár