Einu vitnin í máli gegn Jórunni og Ragnheiði eru starfsmenn fyrirtækisins sem kærir þær

Flugmenn og flug­freyjur Icelandair eru einu vitnin sem hér­aðs­sak­sókn­ari kallar til við aðal­með­ferð máls gegn þeim Jórunni Eddu Helga­dóttur og Ragn­heiði Freyju Krist­ín­ar­dóttur, en Icelandair er kær­andi í mál­inu.

Einu vitnin í máli gegn Jórunni og Ragnheiði eru starfsmenn fyrirtækisins sem kærir þær

Aðal­með­ferð í máli íslenska rík­is­ins gegn þeim Jórunni Eddu Helga­dóttur og Ragn­heiði Freyju Krist­ín­ar­dóttur, sem stóðu upp í flug­vél Icelandair til að mót­mæla ólög­legri brott­vikn­ingu hæl­is­leit­anda, fer fram í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag. Athygli vekur að einu vitnin sem hér­aðs­sak­sókn­ari kallar fyrir dóm­inn eru starfs­menn þess fyr­ir­tækis sem lagði fram kæru á hendur kon­unum tveimur, Icelandair. Páll Berg­þórs­son, lög­maður kvenn­anna, segir þetta sér­stakt, „en sak­sókn­ari hefur eflaust metið sem svo að það væri nóg til að upp­lýsa málið.“

Það var að morgni dags þann 26. maí 2016 sem þær Jórunn Edda og Ragn­heiður Freyja stóðu upp í flug­vél Icelandair til að mót­mæla brott­vísun hæl­is­leit­and­ans Eze Okafor sem hafði verið hand­tek­inn og færður með lög­reglu­valdi í flug­vél­ina þar sem vísa átti honum til Sví­þjóðar. Stóðu þær upp áður en vélin tók á loft og báðu aðra flug­far­þega um að sýna hæl­is­leit­and­anum sam­stöðu en flug­stjóri flug­vél­ar­innar neit­aði að taka á loft fyrr en allir far­þegar höfðu sest niður. Þær voru stuttu síðar hand­teknar og færðar út úr vél­inni í járnum. Rétt tæpum mán­uði síðar, eða þann 20. júní 2016, lagði Icelandair svo fram kæru á hendur þeim Jórunni Eddu og Ragn­heiði Freyju.

Leiðandi spurningar lögreglumanna

Fjórar flug­freyjur og þrír flug­menn Icelandair munu koma fyrir dóm­inn í dag og bera vitni um mót­mæli kvenn­anna sem fyr­ir­tækið sem þau starfa hjá lagði fram kæru gegn. Líkt og Stundin greindi frá í gær gagn­rýna lög­menn meðal ann­ars að umrædd vitni hafi verið spurð leið­andi spurn­inga í skýrslu­tökum lög­reglu, sem virt­ust miða að því að fá starfs­menn kær­anda til þess að segja að kon­urnar hefðu raskað öryggi flug­vél­ar­innar með aðgerð sinni. Í ákæru hér­aðs­sak­sókn­ara eru þær Jórunn Edda og Ragn­heiður Freyja meðal ann­ars sak­aðar um að hafa með hátt­erni sínu brotið gegn  168. gr. almennra hegn­ing­ar­laga með því að hafa raskað öryggi flug­vél­ar­innar, en allt að sex ára fang­elsi liggur við brot­inu.

Lögmenn kvenn­anna hafa einnig gagn­rýnt það að þau hafi ekki fengið afrit af upp­tökum af skýrslu­tökum yfir vitnum máls­ins eins og venjan er. Lög­menn­irnir þurftu því að fara niður á skrif­stofu hér­aðs­sak­sókn­ara til þess að hlusta á skýrslu­tökur yfir vitnum, en þá kom í ljós að lög­reglu­menn  höfðu spurt vitnin afar leið­andi spurn­inga, sér­stak­lega spurn­inga er vörð­uðu það hvort aðgerð kvenn­anna hefði með ein­hverjum hætti raskað öryggi vél­ar­innar. Páll gagn­rýndi þetta í sam­tali við Stundina í gær og sagði athygli vert hversu mikla áherslu lög­reglan hefði lagt á að spyrja vitnin út í þetta til­tekna atriði.

Í end­ur­riti af skýrslu­tök­unum sem finna má í máls­gögnum er ítrekað haft eftir vitnum að þau telji að aðgerð kvenn­anna hafi raskað öryggi vél­ar­innar. Páll benti á að þar væri hins­vegar algjör­lega látið hjá líða að greina frá því að slíkar stað­hæf­ingar hafi oftar en ekki komið fram sem svör við mjög svo leið­andi spurn­ingum lög­reglu­manna þess efnis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár