Málþófið heldur áfram – Seðlabankinn: Tafirnar auka líkur á útflæði aflandskróna

Seðla­bank­inn hefur ekki þurft að nota gjald­eyr­is­forða sinn til að verj­ast útflæði stórra aflandskrónu­eig­enda það sem af er degi en Mið­flokks­menn standa enn í mál­þófi gegn frum­varp­inu.

Málþófið heldur áfram – Seðlabankinn: Tafirnar auka líkur á útflæði aflandskróna

Hætta á að Seðla­bank­inn þurfi að nota gjald­eyr­is­forða sinn til að verj­ast útflæði stórra aflandskrónu­eig­enda er enn til staðar og líkur á útflæð­inu aukast eftir því sem afgreiðsla aflandskrónu­frum­varps tefst.

Þetta kemur fram í svari Seðla­bank­ans við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið. Þingmenn Mið­flokks­ins lögð­ust í mál­þóf gegn aflandskrónu­frum­varpi fjár­mála­ráð­herra í gær­kvöldi og stóðu umræður fram á sjötta tím­ann í morgun. 

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður flokks­ins og full­trúi í efna­hags- og við­skipta­nefnd, mætti þó ekki á fund nefnd­ar­innar þegar frum­varpið var kynnt og var einnig fjar­ver­andi fund­inn þegar málið var afgreitt. Hann skil­aði hvorki minni­hluta­á­liti né lagði fram breyt­ing­ar­til­lögu.

Í umsögn til nefnd­ar­innar lagði Seðla­bank­inn áherslu á að málið yrði afgreitt áður en gjald­d­egi ákveð­ins flokks rík­is­bréfa rynni upp, sem var í gær, 26. febr­úar. Annars væri hætta á að umfang aflandskrónu­eigna í lausu fé mundi aukast um nær 70% eða um 25 millj­arða króna.

„Við það eykst hætta á að stórir aflandskrónu­eig­endur, sem átt hafa sín bréf í sam­felldu eign­ar­haldi frá því fyrir höft og taldir hafa verið lík­legir til að end­ur­fjár­festa í íslenskum skulda­bréfum þegar þeirra bréf koma á gjald­daga þann 26. febr­úar muni í stað þess leita út þegar þeir losna af bundnum reikn­ingum,“ segir í umsögn Seðla­bank­ans um málið.

Umræðu um málið var fram haldið á Alþingi í dag klukkan 15, en ekki hafði staðið til að halda þing­fund. Margir þing­menn Mið­flokks­ins hafa stigið í pontu það sem af er umræð­unni og stendur þannig mál­þófið enn yfir.

„Hættan sem rætt var um í umsögn Seðla­bank­ans hefur ekki raun­gerst enn og ef sam­þykkt frum­varps dregst ekki um of er ekki víst að það ger­ist,“ segir í svari Stefáns Jóhanns Stef­áns­sonar, rit­stjóra Seðla­bank­ans, við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar. „Því fyrr sem frum­varpið verður að lögum því minni líkur eru á að hættan raun­ger­ist.“

Í harða brýnu sló milli Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Mið­flokks­ins, og Smára McCarthy, þing­manns Pírata, í upp­hafi umræð­unnar í gær. Spurði Smári hvort Sig­mundur ætti hags­muna að gæta að því að vinna gegn mál­inu og ef svo væri ekki, hvaða hags­muni Mið­flokk­ur­inn væri að reka með því að reyna að  kæfa málið með mál­þófi. Sig­mundur brást hinn versti við, sagði fram­göngu Pírata ógeð­fellda og að Smári bæði lygi og gerð­ist sekur um meið­yrði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Gjaldeyrishöft

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár