Smári spurði um hagsmuni Miðflokksmanna – Sigmundur segir hann ljúga og fara með meiðyrði

Harkaleg orða­skipti á Alþingi: Smári McCarthy velti fyrir sér hvaða hags­muna Mið­flokk­ur­inn og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son væru að verja með mál­þófi við afgreiðslu á áríð­andi frum­varpi um aflandskrónur.

Smári spurði um hagsmuni Miðflokksmanna – Sigmundur segir hann ljúga og fara með meiðyrði
Hvöss orða­skipti Mynd: Pressphotos.biz - (Geirix)

Þingmenn Mið­flokks­ins hafa staðið fyrir mál­þófi gegn aflandskrónu­frum­varpi Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra síðan kl. 16 í dag, en engir aðrir þing­menn hafa tekið til máls á þing­fundi síðan þá.

Seðla­bank­inn hafði hvatt þing­heim til að afgreiða frum­varpið áður en gjald­dagi til­tek­ins flokks rík­is­skulda­bréfa rynni upp, sem var í dag 26. febr­úar. Telur Seðla­bank­inn hætt við að stórir aflandskrónu­eig­endur sem taldir hafa verið lík­legir til að end­ur­fjár­festa í íslenskum skulda­bréfum leiti út með pen­inga sína. Fyrir vikið muni Seðla­bank­inn þurfa að eyða mun meiri forða en áður til að koma í veg fyrir geng­is­fall krón­unnar auk þess sem draga muni meira úr fram­boði erlends fjár á inn­lendum skulda­bréfa­mark­aði en áður var reiknað með.

Í frum­varpi Bjarna Bene­dikts­sonar eru lagðar til breyt­ingar á lögum um með­ferð krónu­eigna sem háðar eru sér­stökum tak­mörk­unum sem miða að því að rýmka veru­lega und­an­þágur frá tak­mörk­unum á ráð­stöf­un­ar­rétti þeirra eigna sem falla undir lögin. Lagt er til að  heim­ildum til úttekta af reikn­ingum sem háðir eru sér­stökum tak­mörk­unum sam­kvæmt lög­unum verði breytt þannig að öllum aflandskrónu­eig­endum verði gefið færi á að losa aflandskrónu­eignir sínar. Þá er lagt til að heim­ilt verði að upp­fylla bind­ing­ar­skyldu með end­ur­hverfum við­skiptum við Seðla­banka Íslands.

Í harða brýnu sló milli Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Mið­flokks­ins, og Smára McCarthy, þing­manns Pírata, í upp­hafi umræð­unnar í dag.

Smári ýjaði að því að Mið­flokk­ur­inn hyggði á mál­þóf við afgreiðslu frum­varps­ins. Spurði Smári hvort Sig­mundur ætti hags­muna að gæta að því að vinna gegn mál­inu og ef svo væri ekki, hvaða hags­muni Mið­flokk­ur­inn væri að reka með því að reyna að  kæfa málið með mál­þófi. Sig­mundur brást hinn versti við, sagði fram­göngu Pírata ógeð­fellda og að Smári bæði lygi og gerð­ist sekur um meið­yrði.

Umræða stendur enn yfir um frum­varpið sem sagt er eitt af loka­skrefum þess að afnema fjár­magns­höft sem sett voru eftir hrunið. Benti Smári á að mik­il­vægt væri að afgreiða frum­varpið í dag því að sá rík­is­skulda­bréfa­flokkur sem er undir væri að renna út á tíma. Hann benti á að mæl­enda­skrá bæri með sér að Mið­flokk­ur­inn hyggð­ist tefja málið með mál­þófi og spurði hvort Sig­mundur Davíð hefði per­sónu­lega hags­muni af því. 

„Það muna sjálf­sagt flestir eftir því að sá maður sem tal­aði mest um hrægammana hér um árið reynd­ist vera einn þeirra sjálfur“

Sig­mundur Davíð kom í pontu eftir þetta, þungur á brún. „Því virð­ast fá tak­mörk sett hversu fram­ganga Pírata getur orðið ógeð­felld á þessu Alþingi. Ég held að það sé orðið löngu tíma­bært að siða­nefnd fari að fjalla um Pírata og hvernig þeir starfa, ekki bara ein­eltiskúlt­úr­inn innan þeirra raða heldur líka fram­komu þeirra við aðra þing­menn,“ sagði Sig­mundur og bætti við að þær for­sendur sem Smári gæfi sér væru frá­leitar og rök­leysa. „Ég hef engra hags­muna að gæta hjá vog­un­ar­sjóðum eins og hátt­virtur þing­maður á að geta gert sér grein fyrir en ég ítreka það, mér finnst fram­ganga Pírata hér á Alþingi und­an­farnar vikur, und­an­farna mán­uði og reyndar kannski dálítið mörg ár vera fyrir neðan allar hellur.“

Smári kom þá í ræðu­stól að nýju og sagði spurn­ingu sína rétt­mæta, með vísan til Panama­skjal­anna, upp­lýs­inga um eign­ar­hald Sig­mundar Davíðs á félag­inu Wintris og tengslum þess félags við með­ferð á aflandskrónum. „Það muna sjálf­sagt flestir eftir því að sá maður sem tal­aði mest um hrægammana hér um árið reynd­ist vera einn þeirra sjálfur,“ sagði Smári og bætti því við að það væri eðli­legt og ekki ein­elt­istil­burðir að spyrja spurn­inga þegar þessar upp­lýs­ingar væru til staðar.

Sig­mundur varð aftur til svars, og sínu reið­ara nú en áður. „Þing­mað­ur­inn sem tal­aði hér á undan mér gerð­ist sekur um meið­yrði. Hann laug og lagði sig fram við það að reyna að stimpla inn ógeð­fellda mynd sem að hann, því miður og alltof margir félagar hans, hafa á und­an­förnum árum reynt að við­halda og koma inn hjá fólki. Ég hef aldrei haft nein tengsl við nokkra hrægamma­sjóði og það hafa engir ætt­ingjar mínr gert heldur,“ sagði Sig­mundur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár