Haldinn skammarlisti yfir þá sem taka sér marga veikingadaga

„Þetta er alvar­legt brot gegn per­sónu­vernd og frið­helgi einka­lífs starfs­fólks­ins,“ segir Halldór Oddsson, lög­fræð­ingur hjá ASÍ.

Haldinn skammarlisti yfir þá sem taka sér marga veikingadaga
Listinn Grand Hótel heldur lista yfir starfs­fólk sem tekur sér marga veik­inda­daga. Mynd: Efling

Eflingu stétt­ar­fé­lagi var nýlega til­kynnt um að á einu af stóru hót­el­unum í Reykja­vík héngi uppi á töflu sér­stakur skammar­listi yfir þá starfs­menn sem taka sér flesta veik­inda­daga.

„Þetta er alvar­legt brot gegn per­sónu­vernd og frið­helgi einka­lífs starfs­fólks­ins,“ segir Halldór Oddsson, lög­fræð­ingur hjá ASÍ. „Við þessu gætu legið sektir. Við munum til­kynna Per­sónu­vernd um þetta mál.“ Þetta er haft eftir Halldóri í til­kynn­ingu frá Eflingu, en um er að ræða Grand Hótel.

Fram kemur að trún­að­ar­menn starfs­fólks hjá stórum hót­el­keðjum hafi upp­lýst Eflingu um að yfir­menn skrái nöfn þeirra sem leiti til stétt­ar­fé­lags­ins.

„Fólki eru gefin bein og óbein skila­boð að afleið­ingar fylgi því að tengj­ast stétt­ar­fé­lag­inu,“ segir Maxim Baru, yfir­maður félags­sviðs Eflingar. „Fólki er bók­staf­lega sagt að fara ekki til stétt­ar­fé­lags­ins. Mannauðs­deildir margra þess­ara fyr­ir­tækja hafa þá afstöðu að þau eigi starfs­fólkið – og að trún­að­ar­menn­irnir eigi að þjóna mannauðs­deild­inni, frekar en að vinna með starfs­fólki og stétt­ar­fé­lagi.“

Verka­lýðs­hreyf­ingin und­ir­býr nú verk­falls­að­gerðir sem bein­ast gegn hót­elum og rútu­fyr­ir­tækjum. Um er að ræða 25 hótel og tvö til þrjú rútu­fyr­ir­tæki. Rekstr­ar­að­ilar í hót­el­geir­anum hafa lýst þungum áhyggjum af áformunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjaramál

Stefán Ólafsson um nýja kjarasamninga: „það er veðmál í þessu“
Fréttir

Stefán Ólafsson um nýja kjara­samn­inga: „það er veð­mál í þessu“

Í sext­ánda þætti Pressu mættu Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, og Stefán Ólafsson, sér­fræð­ingur hjá Eflingu – stétt­ar­fé­lagi, til þess að ræða nýju kjara­samn­ing­anna. Í við­tal­inu við­ur­kenndi Stefán að samn­ing­ur­inn væri í raun nokk­urs konar veð­mál, þar sem vonir væru bundnar við hjöðnun verð­bólgu til þess að skila launa­fólki ásætt­an­legum kjara­bótum.
Samtök atvinnulífsins kjósa um verkbann á félagsmenn VR
FréttirKjaramál

Samtök atvinnu­lífs­ins kjósa um verk­bann á félags­menn VR

Stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins hefur sam­þykkt ein­róma að halda atkvæða­greiðslu um hugs­an­legt verk­bann á félags­menn VR. Í til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins sem birt­ist fyrir skömmu segir að verði verk­bannið sam­þykkt mun það ná til alls skrif­stofu­fólks með aðild að VR. Um er ræða við­bragð við verk­falls­að­gerðum sem VR hefur boðað meðal starfs­manna í farg­þega- og hleðslu­þjón­ustu hjá Icelandair
Ókeypis skólamáltíðir í Reykjavík munu kosta 1,7 milljarð króna á ári
FréttirKjaramál

Ókeypis skóla­mál­tíðir í Reykja­vík munu kosta 1,7 millj­arð króna á ári

Eitt umfangs­mesta verk­efnið sem fólgið er í aðgerða­pakka rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga, er að tryggja gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir í grunn­skólum. Tals­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga segir að öll börn, óháð því hvort þau voru skráð í mat fyrir breyt­ing­arnar muni fá fríar skóla­mál­tíðir. Ekki liggur fyrir hvernig verk­efnið verður útfært í skólum sem hafa útvi­stað mat­ar­þjón­ustu sinni.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár