Sólveig Anna: Forsíðufrétt Fréttablaðsins „yfirgengileg vitleysa“

Efling stétt­ar­fé­lag segir að ekki standi steinn yfir steini í frétta­flutn­ingi Frétta­blaðs­ins. Lág­tekju­fólk fengi hlut­falls­lega mesta hækkun sam­kvæmt kröfu­gerð Starfs­greina­sam­bands­ins.

Sólveig Anna: Forsíðufrétt Fréttablaðsins „yfirgengileg vitleysa“

Kröfur Eflingar og Starfs­greina­sam­bands­ins snú­ast um flata krónu­tölu­hækkun ofan á greidd grunn­laun, meðal ann­ars lág­marks­launa­trygg­ing­una sem nú er 300 þús­und krónur á mán­uði. Með þessu yrði með­al­hækkun launa yfir lín­una í atvinnu­líf­inu mun minni að með­al­tali en hækkun lægstu launa og pró­sentu­hækkun launa fallandi þegar sama krónu­tala kemur ofan á hærri laun.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem Efling stétt­ar­fé­lag hefur gefið út vegna for­síðu­um­fjöll­unar Frétta­blaðs­ins í dag. Í Frétta­blað­inu er full­yrt að kröf­urnar sem Starfs­greina­sam­bandið hafi sett fram í kjara­við­ræðum sínum við Samtök atvinnu­lífs­ins feli í sér að laun meg­in­þorra félags­manna í aðild­ar­fé­lögum sam­bands­ins „hækki á bil­inu tæp­lega 70 pró­sent til 85 pró­sent á næstu þremur árum“ sam­kvæmt útreikn­ingum blaðs­ins. Segir Frétta­blaðið að gert sé ráð fyrir því í kröfu­gerð sam­bands­ins að reglu­leg heild­ar­mán­að­ar­laun hóp­bif­reið­ar­stjóra innan Eflingar fari úr að með­al­tali 493 þús­und krónum, eins og þau voru í fyrra, í 913 þús­und krónur árið 2021 og hækki þannig um 85 pró­sent. Er þá miðað við óbreyttan fjölda greiddra yfir­vinnu­tíma.

Efling birtir þessa mynd með yfir­lýs­ingu sinni.

Efling gagn­rýnir frétta­flutn­ing­inn. „Allur þorri Efl­ing­ar­fólks er á 300 þús­und króna lág­marks­launa­trygg­ing­unni (þeir sem eru á lægri taxta fá launin brúuð upp í 300.000). Sá hópur fær hlut­falls­lega mesta hækkun, eða 13,9% á ári og þrisvar sinnum það á þremur árum. Vegna þess að launa­hækk­anir við flata krónu­tölu­hækkun eru fallandi í pró­sentum þá verður hækkun með­al­launa 6,5% og hækkun heild­ar­launa að öðru óbreyttu 5,4% á ári – og þrisvar sinnum það á þremur árum,“ segir í til­kynn­ingu stétt­ar­fé­lags­ins. „Það er því væg­ast sagt vill­andi að tala eins og með­al­hækkun launa yfir lín­una yrði í tugum pró­senta á þriggja ára tíma­bili þegar hún verður 16,2% til 19,4%. Það er ansi langt undir 82% hækkun launa banka­stjóra Lands­bank­ans.“

Fram kemur að kostn­að­ar­auki atvinnu­lífs­ins við hina flötu krónu­tölu­hækkun taki mið af með­al­hækkun og dreif­ingu launa­fólks á launa­bil.

„Eins og sjá neðst í töfl­unni er nýjasta verð­bólgu­spá Hag­stof­unnar fyrir 2019 3,8% og svig­rúm til launa­hækk­ana sam­kvæmt for­múl­unni verð­bólga + fram­leiðni­aukn­ing um 5,3% eða nálægt með­al­hækkun heild­ar­launa (5,4%) að öðru óbreyttu. Svig­rúmið til launa­hækk­ana er þannig nýtt hlut­falls­lega meira í þágu lægri launa – þó allir fái sömu krónu­tölu­hækkun.“

Efling telur að íslenskt atvinnu­líf geti „auð­veld­lega borið slíka með­al­hækkun launa“ og að þeir sem hafi áhyggjur af óhóf­legum og óábyrgum launa­hækk­unum eigi að beina sjónum sínum annað en að verka­lýðs­hreyf­ing­unni.

Í til­kynn­ingu Eflingar er eft­ir­far­andi haft eftir Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, for­manni Eflingar, sem beinir spjótum sínum sér­stak­lega að við­skipta­rit­stjór­anum Herði Ægissyni, höf­undi frétt­ar­innar og leið­ara­höf­undi:

„Öfga­skoð­anir þær sem Hörður Ægisson aðhyllist þegar kemur að efna­hags­málum eru ekki lengur bundnar við leið­ara eða skrif í Mark­að­inn. Nú er for­síða Frétta­blaðs­ins und­ir­lögð af þess­ari yfir­gengi­legu vit­leysu. Það er ekki annað hægt en að hrista haus­inn. Einhver örvænt­ing hefur gripið um sig í hópi þeirra sem aðhyll­ast ofræði íslensku auð­stétt­ar­innar. Þessi örvænt­ing hefur drifið mál­flutn­ing þeirra langt útfyrir öll sið­ferð­is­mörk. Lág­marks­kröfur um leið­rétt­ingu launa eru kall­aðar sturlun á meðan við eigum að trúa því að launa­hækk­anir banka­stjóra séu nátt­úru­lög­mál. Það er greini­legt að það fjarar stöðugt undan trú­verð­ug­leika þeirra, og þau finna það. Þau voru búin að telja sjálfum sér trú um að verka- og lág­launa­fólk á Íslandi væri búið að sætta sig við hlut­skipti sitt, og þau ein­fald­lega sturl­ast þegar við segjum nei. Það er nátt­úru­lega ótrú­leg kald­hæðni fólgin í því að þegar það ger­ist, þá saka þau okkur um sturlun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjarabaráttan

Kjaraviðræður stranda á forsenduákvæðum og breiðfylkingin fundar um mögulegar verkfallsaðgerðir
GreiningKjarabaráttan

Kjara­við­ræður stranda á for­sendu­á­kvæðum og breið­fylk­ingin fundar um mögu­legar verk­falls­að­gerðir

Formaður VR fékk í gær sam­þykkta heim­ild til þess að grípa til aðgerða og félög innan breið­fylk­ing­ar­innar hafa blásið til fundar í dag þar sem rætt verður um næstu skref. Um tals­verðan við­snún­ing er að ræða frá því að kjara­við­ræður hófust fyrst. Nú hafa við­ræð­urnar harðnað og er það fyrst og fremst vegna ósættis um for­sendu­á­kvæði í langa­tíma­kjara­samn­ingnum.
Af hverju dó hamingjan milli breiðfylkingarinnar og Samtaka atvinnulífsins?
GreiningKjarabaráttan

Af hverju dó ham­ingjan milli breið­fylk­ing­ar­innar og Samtaka atvinnu­lífs­ins?

Allt annar tónn hefur verið í kjara­bar­átt­unni nú en síð­ustu miss­eri. Við­semj­endur ætl­uðu að taka höndum saman og auka stöð­ug­leika í efna­hags­líf­inu. En svo heyrð­ist lítið af fram­gangi. Í þess­ari viku var við­ræðum slitið og deil­unni vísað til rík­is­sátta­semj­ara. Margir klór­uðu sér í hausnum og spurðu hvað hefði eig­in­lega gerst? Svarið við því er: ansi margt.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár