Sakar verkalýðshreyfinguna um „brot á vinnulöggjöfinni“

Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisnar og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, sendir rík­is­stjórn­inni og laun­þega­hreyf­ing­unni tón­inn.

Sakar verkalýðshreyfinguna um „brot á vinnulöggjöfinni“

„Kjara­deila sem bein­ist fyrst og fremst að Alþingi og rík­is­stjórn en ekki að vinnu­veit­endum er póli­tísk kjara­deila og sem slík brot á vinnu­lög­gjöf­inni.“ Þetta sagði Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisnar og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, í umræðum um störf þings­ins á Alþingi í dag. „Það er líka ábyrgð­ar­hluti af hálfu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar að fara fram með slíkum hætti.“

Þor­steinn gagn­rýndi einnig rík­is­stjórn­ina fyrir að hafa gefið laun­þega­hreyf­ing­unni of miklar vænt­ingar um skatta­lækk­anir til að liðka fyrir kjara­samn­ingum. „Mistök rík­is­stjórn­ar­innar eru mis­tök í vænt­inga­stjórnun. Það er ekki hlut­verk rík­is­stjórna að leiða kjara­við­ræður eða ætla sér of stórt hlut­verk við lausn þeirra. Ábyrgð á lausn kjara­deilna liggur alltaf fyrst og síð­ast hjá aðilum vinnu­mark­að­ar­ins,“ sagði hann.

„Það má heldur ekki vera svo að stjórn­mála­flokkar, hvort sem er í meiri hluta eða minni hluta, séu að nýta sér kjara­deilur í póli­tískum til­gangi. Þessi rík­is­stjórn hefur ítrekað gert til­raun til að upp­hefja sig og mik­il­vægi sitt við lausn á þeirri stöðu sem uppi er á vinnu­mark­aði nú og situr með eggin í and­lit­inu eftir þá við­leitni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjarabaráttan

GreiningKjarabaráttan

Kjara­við­ræður stranda á for­sendu­á­kvæðum og breið­fylk­ingin fundar um mögu­legar verk­falls­að­gerðir

Formaður VR fékk í gær sam­þykkta heim­ild til þess að grípa til aðgerða og félög innan breið­fylk­ing­ar­innar hafa blásið til fundar í dag þar sem rætt verður um næstu skref. Um tals­verðan við­snún­ing er að ræða frá því að kjara­við­ræður hófust fyrst. Nú hafa við­ræð­urnar harðnað og er það fyrst og fremst vegna ósættis um for­sendu­á­kvæði í langa­tíma­kjara­samn­ingnum.
GreiningKjarabaráttan

Af hverju dó ham­ingjan milli breið­fylk­ing­ar­innar og Samtaka atvinnu­lífs­ins?

Allt annar tónn hefur verið í kjara­bar­átt­unni nú en síð­ustu miss­eri. Við­semj­endur ætl­uðu að taka höndum saman og auka stöð­ug­leika í efna­hags­líf­inu. En svo heyrð­ist lítið af fram­gangi. Í þess­ari viku var við­ræðum slitið og deil­unni vísað til rík­is­sátta­semj­ara. Margir klór­uðu sér í hausnum og spurðu hvað hefði eig­in­lega gerst? Svarið við því er: ansi margt.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár