Ráðuneytið skoðar ofbeldistilkynningar sýslumanna

Sýslu­menn skil­greina tálmun sem ofbeldi þótt vand­séð verði að lög, lög­skýr­ing­ar­gögn eða dómafor­dæmi gefi til­efni til slíkrar túlk­unar. Dóms­mála­ráðu­neytið ætlar að skoða málið á grund­velli almennrar eft­ir­lits­skyldu sinnar.

Ráðuneytið skoðar ofbeldistilkynningar sýslumanna
Tálmun sem ofbeldi Þórólfur Hall­dórs­son er sýslu­maður á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Anna Birna Þrá­ins­dóttir var sýslu­maður á Suð­ur­landi þegar emb­ættið veitti umsögn um tálm­un­ar­frum­varpið í fyrra. Mynd: Stjórnarráðsvefur

Dóms­mála­ráðu­neytið ætlar að taka til skoð­unar á grund­velli almennrar eft­ir­lits­skyldu sinnar það verk­lag sýslu­manna að senda barna­vernd­ar­nefndum til­kynn­ingar um ofbeldi vegna umgengni­stálm­ana. Þetta kemur fram í nýlegum úrskurði ráðu­neyt­is­ins þar sem dag­sekt­ar­úr­skurður sýslu­manns gegn móður var stað­festur. 

Eins og Stundin greindi frá í fyrra skil­greina Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Sýslu­mað­ur­inn á Suð­ur­landi umgengni­stálm­anir sem ofbeldi gegn börnum og senda gjarnan barna­vernd­ar­nefndum til­kynn­ingar um slíkt ofbeldi eftir upp­kvaðn­ingu dag­sekt­ar­úr­skurða. 

Hrefna Frið­riks­dóttir, pró­fessor í fjöl­skyldu­rétti við Háskóla Íslands og einn af höf­undum frum­varps sem lá til grund­vallar end­ur­skoðun á barna­lögum árið 2012, sagði í sam­tali við Stundina að hún væri ósam­mála túlkun sýslu­manns. Barna­vernd­ar­nefndir á Íslandi og emb­ætti rík­is­sak­sókn­ara byggja ekki á sömu túlkun og sýslu­manns­emb­ættin í þessum efnum, enda er því hvergi slegið föstu í lögum, lög­skýr­ing­ar­gögnum eða dómafor­dæmum að tálmun á umgengni jafn­gildi ofbeldi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnaverndarmál

Barnaníðskæru dagaði uppi fyrir „mjög bagaleg mistök“
FréttirBarnaverndarmál

Barn­a­níð­skæru dag­aði uppi fyrir „mjög baga­leg mis­tök“

Alvarleg mis­tök lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og óvenju­leg afskipti þáver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu urðu til þess að kæra barna­vernd­ar­nefndar vegna meintra kyn­ferð­is­brota fékk ekki lög­mæta með­ferð og lá óhreyfð í meira en tvö ár. „Lögregla beið eftir gögnum frá barna­vernd sem aldrei komu,“ segir í bréfi sem lög­regla sendi rík­is­sak­sókn­ara vegna máls­ins.
Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barnaníð
FréttirBarnaverndarmál

Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barn­a­níð

Rannsókn á meintum kyn­ferð­is­brotum föður gegn barni var felld niður án lækn­is­skoð­unar og Barna­hússvið­tals, en í kjöl­farið komu fram yfir­lýs­ingar frá konum sem segja mann­inn hafa mis­notað þær í æsku. Dóm­stólar telja að „það þjóni hags­munum barns­ins að það njóti meiri og sam­felld­ari umgengni við föður“ og hafa úrskurðað um umgengni án eft­ir­lits.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár