Vatnajökulsþjóðgarður braut gegn umsækjanda: Sagðist hafa „slegið inn rangt netfang“

Stjórn­valdið varð ekki við beiðni umboðs­manns Alþingis um að sýna fram á tækni­leg mis­tök og þóttu skýr­ing­arnar „hvorki trú­verð­ugar né til þess fallnar að upp­lýsa málið“.

Vatnajökulsþjóðgarður braut gegn umsækjanda: Sagðist hafa „slegið inn rangt netfang“

Vatna­jök­uls­þjóð­garður braut lög þegar stjórn­valdið hætti við að ráða úr hópi umsækj­enda sem sóttu um starf þjóð­garðsvarðar árið 2016 en end­ur­aug­lýsti starfið og lét undir höfuð leggj­ast að meta eina umsókn­ina í seinna ráðn­ing­ar­ferl­inu. Veru­legir ann­markar voru á máls­með­ferð­inni og rétt­mæt­is­reglu stjórn­sýslu­laga ekki fylgt.

Þetta kemur fram í nýju áliti umboðs­manns Alþingis sem birt­ist á vef emb­ætt­is­ins í morgun. Fram kemur að þegar umboðs­maður spurð­ist fyrir um málið hafi því verið borið við að mis­tök hefðu átt sér stað við fram­send­ingu umsókn­ar­innar til einka­fyr­ir­tækis sem lagði mat á umsækj­endur. Fullyrti fram­kvæmda­stjóri þjóð­garðs­ins að mis­tökin hefu falist í því að „slegið var inn rangt net­fang hjá ráð­gjafa“.

Umboðs­manni reynd­ist ekki unnt að sann­reyna þessar skýr­ingar, enda varð stjórn­valdið ekki við óskum umboðs­manns um að leggja fram hlut­læg gögn, til dæmis úr póst­hólfi fram­kvæmda­stjór­ans, sem gætu stutt þessa stað­hæf­ingu. Þetta gagn­rýnir umboðs­maður harð­lega. „Verður að telja að það standi stjórn­vald­inu næst við þessar aðstæður að sýna fram á það gagn­vart eft­ir­lits­að­ila á borð við umboðs­mann Alþingis að hand­vömm hafi orsakað slíkt frá­vik frá lög­mæltri máls­með­ferð og þar með leita leiða til að upp­lýsa málið,“ segir í álit­inu. „Ef stjórn­völd geta, t.a.m. í þeim til­vikum þegar ljóst er að mál hefur ekki verið lagt í réttan far­veg að lögum, borið fyrir sig mis­tök án þess að þurfa að útskýra þau nánar eða leita leiða til að færa ein­hverjar sönnur fyrir stað­hæf­ingum sínum yrði það eft­ir­lit sem umboðs­manni Alþingis er falið sam­kvæmt lögum nr. 85/1997, um umboðs­mann Alþingis, til lít­ils.“

Umboðs­maður telur að þjóð­garð­ur­inn hafi ekki getað bent á nein til­tekin atriði í tengslum við með­ferð á umræddri umsókn í seinna ráðn­ing­ar­ferl­inu sem bendi til þess að ein­föld mis­tök hafi valdið því að umsókn hennar var ekki lögð í réttan far­veg eins og allar aðrar umsóknir um starfið. „Umboðs­maður tók fram að hann teldi ekki trú­verð­ugt að fram­kvæmda­stjóri þjóð­garðs­ins hefði ekki, í ljósi fyrri atvika tengdum umsókn A, áttað sig á að umsókn hennar hefði ekki komið til mats í ferl­inu áður en ráðið var í starfið,“ segir í reifun á álit­inu. „Lagði umboðs­maður áherslu á að skýr­ingar þjóð­garðs­ins vegna máls­ins hefðu hvorki verið trú­verð­ugar eða til þess fallnar að upp­lýsa málið né vekja traust á máls­með­ferð­inni. Það var því álit umboðs­manns að Vatna­jök­uls­þjóð­garður hafi ekki sýnt fram á að mál­efna­leg sjón­ar­mið hafi ráðið för við með­ferð umsóknar A í seinna ráðn­ing­ar­ferl­inu sem urðu til þess að umsókn hennar kom aldrei til mats.“

Við með­ferð máls­ins hafði umsækj­and­inn komið á fram­færi and­mælum vegna umsagna þar sem hann taldi umsagn­ar­að­ila ekki geta veitt hlut­lausa umsögn í ljósi fyrri sam­skipta og atvika. Vatna­jök­uls­þjóð­garður taldi and­mælin ekki geta haft þýð­ingu við mat á umsögnum þar sem þær hefðu ekki falið í sér leið­rétt­ingu á villum eða rang­færslum. Umboðs­maður telur að sú afstaða Vatna­jök­uls­þjóð­garðs sam­ræm­ist ekki and­mæla­reglu stjórn­sýslu­laga. Stjórn­vald­inu hafi borið að taka afstöðu til and­mæl­anna og leggja mat á hvort og þá hvaða þýð­ingu þau kynnu að hafa og meta umsagnir heild­stætt. 

Í álit­inu er bent á að þótt stjórn­völdum sé heim­ilt að not­færa sér þjón­ustu einka­fyr­ir­tækja við und­ir­bún­ing ráðn­ingar þá leysi það ekki veit­ing­ar­valds­hafann að neinu leyti undan laga­legri ábyrgð. „Í þeim til­vikum þegar veit­ing­ar­valds­hafi hefur falið ráðn­ing­ar­fyr­ir­tæki að vinna til­tekna und­ir­bún­ings­vinnu á upp­hafs­stigum ráðn­ing­ar­ferl­is­ins, svo sem með því að leggja mat á umsækj­endur og gefa þeim stig, ber veit­ing­ar­valds­hafa engu að síður að kynna sér þau gögn sem liggja til grund­vallar þeirri vinnu og leggja mat á hvort hann sé sam­mála þeim nið­ur­stöðum sem fyrir hann eru lagðar. Með öðrum orðum ber veit­ing­ar­valds­haf­anum sem í þessu til­viki er fram­kvæmda­stjóri þjóð­garðs­ins, sbr. ákvæði laga nr. 60/2007, um Vatna­jök­uls­þjóð­garð, að tryggja að hann hafi fulla yfir­sýn yfir ráðn­ingar­ferlið.“

Að virtum gögnum máls­ins og skýr­ingum Vatna­jök­uls­þjóð­garðs er það álit umboðs­manns í mál­inu að ekki hafi verið sýnt fram á að mál­efna­leg sjón­ar­mið hafi búið að baki því að hætta við að ráða í umrætt starf og að veru­legir ann­markar hafi verið á ráðn­ing­ar­ferl­inu og þeirri aðferð sem við­höfð var við mat á umsögnum í ferl­inu. Þá er það jafn­framt álit hans að umsókn umrædds umsækj­anda hefði ekki verið lögð í réttan laga­legan far­veg eða að sýnt hefði verið fram á að mál­efna­leg sjón­ar­mið hefðu ráðið för við með­ferð umsóknar hans í seinna ráðn­ing­ar­ferl­inu. Beinir umboðs­maður þeim til­mælum til Vatna­jök­uls­þjóð­garðs að leita leiða til að rétta hlut umsækj­and­ans og gæta fram­vegis að þeim sjón­ar­miðum sem koma fram í álit­inu. 

Uppfært kl. 13:30: Frétt­inni fylgdi upp­haf­lega mynd af Magnúsi Guð­munds­syni, núver­andi fram­kvæmda­stjóra Vatna­jök­uls­þjóð­garðs. Málið er hins vegar úr tíð for­vera hans, Þórðar H. Ólafs­sonar. Stundin hefur beðið Magnús afsök­unar á mynd­birt­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnsýsla

Umboðsmaður taldi forræðið liggja hjá stjórnvaldinu en ekki ríkislögmanni
FréttirStjórnsýsla

Umboðs­maður taldi for­ræðið liggja hjá stjórn­vald­inu en ekki rík­is­lög­manni

Ákvörð­un­ar­vald um hvort bóta­skylda sé við­ur­kennd liggur hjá því stjórn­valdi sem bóta­kröfu er beint að og stjórn­völd hafa for­ræði á kröfu­gerð, rök­semdum og ágrein­ings­at­riðum þegar mál fara fyrir dóm­stóla. Þetta er afstaða umboðs­manns Alþingis sam­kvæmt ábend­inga­bréfi sem hann sendi heil­brigð­is­ráð­herra árið 2014, en for­sæt­is­ráðu­neytið gaf út yfir­lýs­ingu á föstu­dag þar sem fram kom að rík­is­lög­maður hefði „almennt for­ræði á kröfu­gerð og fram­setn­ingu hennar“.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár