Ásmundur vill skoða ummæli Pírata

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, hefur sent for­sætis­nefnd erindi vegna ummæla tveggja þing­manna Pírata um end­ur­greiðslu á akst­urs­kostn­aði hans.

Ásmundur vill skoða ummæli Pírata

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, hefur sent for­sætis­nefnd Alþingis erindi vegna ummæla tveggja þing­manna Pírata um end­ur­greiðslu akst­urs­kostn­aðs hans. Segir hann ummælin „bæði grófar aðdrótt­anir og full­yrð­ingar um refsi­verða hátt­semi mína“. Morg­un­blaðið greinir frá.

Ásmundur vill að nefndin skoði hvort Björn Leví Gunn­ars­son og Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir hafi gerst brot­leg við siða­reglur fyrir alþing­is­menn vegna opin­berra ummæla sinna um end­ur­greiðslur þings­ins á akst­urs­kostn­aði hans. Ásmundur fékk tæpar 23,5 millj­ónir króna greiddar frá rík­inu vegna akst­urs frá árinu 2013.

„Þekkt er í póli­tískri bar­áttu að þing­menn láti miður fal­leg orð um and­stæð­ing­inn falla í umræðu og jafn­vel mjög niðr­andi,“ skrifar Ásmundur í bréf­inu. „Hér er hins vegar um miklu alvar­legri hluti að ræða þar sem ég er sak­aður um hegn­ing­ar­laga­brot. Gengið er svo langt í sumum ummælum að full­yrt er að ég hafi framið slík brot. Tel ég að með þessum ummælum sé vegið alvar­lega að æru minni.“

Í frétt Morg­un­blaðs­ins kemur fram að Ásmundi hafi þótt það miður að bréf sitt hafi lekið úr for­sætis­nefnd. Vonaðist hann til þess að það hefði ekki áhrif á máls­með­ferð­ina. „Það er mjög alvar­legt að for­sætis­nefnd þings­ins sé ekki treyst fyrir erindum sem á hennar borð koma því í fyll­ingu tím­ans verða þau öll opin­ber. Ég er mjög sorg­mæddur yfir því,“ segir Ásmundur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Aksturskostnaður þingmanna

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár