Kostnaðurinn við Ásmund: Gjaldþrot í Eyjum og biðlaun frá Garði

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, hefur fengið allt að 24,3 millj­ónir króna greiddar frá rík­inu vegna akst­urs á síð­ustu fjórum árum. Á ferli hans eru mörg dæmi þess að stórar upp­hæðir hafi lent á herðum ann­arra vegna umsvifa Ásmundar, bæði í atvinnu­rekstri og opin­berum störfum. Sjálfur hefur hann gagn­rýnt með­ferð opin­bers fjár þegar það snýr að mál­efnum hæl­is­leit­enda.

Kostnaðurinn við Ásmund: Gjaldþrot í Eyjum og biðlaun frá Garði

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, hefur verið mikið til umfjöll­unar síðan 4,6 millj­óna króna end­ur­greiðslur vegna akst­urs­kostn­aðar hans voru gerðar opin­berar. Hann seg­ist keyra einna mest allra þing­manna, enda úr stóru kjör­dæmi, en sé það rétt hefur hann fengið allt að 24,3 millj­ónir króna end­ur­greiddar vegna akst­urs­kostn­aðar frá því hann sett­ist á þing 2013. Í gegnum tíð­ina hefur hann gagn­rýnt kostnað við hæl­is­leit­endur, en síður viljað tala um þann kostnað sem hann sjálfur hefur stofnað til.

Við­mæl­endum ber saman um að Ásmundur, eða Ási eins og hann er gjarnan kall­aður, sé ein­stak­lega athafna­samur og sífellt með eitt­hvað á prjón­unum. Samhliða þing­mennsku hefur hann stýrt sjón­varps­þætt­inum Auð­linda­kist­unni á ÍNN og rekið ferða­þjón­ust­una Lauf­skála á Hellu. Þá er hann for­maður Þroska­hjálpar á Suð­ur­nesjum og gegndi emb­ætti vara­stór­sírs hjá Oddfellow-regl­unni þar til síð­asta haust. Árið 2015 gaf hann meira að segja út bók, Hrekkjalóma­fé­lagið – prakk­ara­strik og púð­ur­kerl­ingar. Bókin segir 20 ára sögu félags …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Aksturskostnaður þingmanna

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár