Mótmælt á RÚV vegna ráðningar Jóns Baldvins

Þröstur Helgason, dag­skrár­stjóri Rásar 1, segir skiptar skoð­anir hafa verið um ráðn­ingu Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar sem verk­taka.

Mótmælt á RÚV vegna ráðningar Jóns Baldvins

Nokkrir starfs­menn Rík­is­út­varps­ins mót­mæltu í haust fyr­ir­hug­aðri ráðn­ingu Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar sem verk­taka á Rás 1. Þetta herma heim­ildir Stund­ar­innar.

Jón Baldvin og eig­in­kona hans, Bryndís Schram, voru ráðin sem verk­takar á RÚV í haust. Sunnu­dag­inn 6. jan­úar síð­ast­lið­inn fluttu þau pistil á Rás 1 sem ber nafnið „Sagan séð út um glugga Síber­íu­hrað­lest­ar­innar“. Fjallar hann um ferða­lag þeirra í Asíu síð­asta sumar.

Fjallað var um bréfa­send­ingar Jóns Baldvins til Guðrúnar Harð­ar­dóttur, frænku sinnar á tán­ings­aldri, í Nýju lífi árið 2012. Játaði Jón Baldvin dóm­greind­ar­brest varð­andi klúrar bréfa­skriftir á meðan hann var sendi­herra í Banda­ríkj­unum.

Í Stund­inni lýsa fjórar konur kyn­ferð­is­legri áreitni af hendi Jóns Baldvins. Umfjöll­un­ina í heild má lesa í tölu­blaði Stund­ar­innar sem kom út í gær.

Dagskrárráð tók ákvörðun um þáttinn

Í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar segir Þröstur Helgason, dag­skrár­stjóri Rásar 1, það rétt að skiptar skoð­anir hafi verið um störf Jóns Baldvins á vegum RÚV.

Þröstur segir að Bryndís og Jón Baldvin hafi síð­ast­liðið haust sent stofn­un­inni hug­mynd að útvarps­þætti um ferða­lagið. Þau hafi fengið greiðslur sem aðrir verk­takar fái fyrir sam­bæri­lega þátta­gerð á Rás 1, en Jón Baldvin hafi að öðru leyti ekki fengið greitt fyrir störf frá RÚV frá 2012, árinu sem greint var frá grófum bréfa­skriftum hans til Guðrúnar Harð­ar­dóttur.

„Dagskrá og þátta­gerð á Rás 1 og öðrum miðlum RÚV byggir á rit­stjórn­ar­legu sam­tali sem er bæði mikið og opið,“ segir Þröstur. „Aðkoma Jóns Baldvins að nefndum þætti var rædd og voru skiptar skoð­anir eins og um margt sem ratar á dag­skrá í miðlum RÚV. Dag­skrár­ráð Rásar 1 fjallar um dag­skrá rás­ar­innar og ákvarðar hana en dag­skráin er líka kynnt og rædd á rit­stjórn­ar­fundum rás­ar­innar. Jóla­dag­skráin var sömu­leiðis kynnt og rædd á opnum upp­lýs­inga­fundi í byrjun des­em­ber sem var öllum starfs­mönnum RÚV aðgengi­legur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

MeToo sögur um Jón Baldvin

Dóttir Þóru: Stolt af því að hafa rofið þögnina
Fréttir

Dóttir Þóru: Stolt af því að hafa rofið þögn­ina

„Ég er stolt af því að hafa rofið þögn­ina með því að koma dag­bók mömmu á fram­færi sem og bréf­inu sem Jón Baldvin Hanni­bals­son sendi henni,“ segir Val­gerður Þor­steins­dóttir, dóttir Þóru Hreins­dóttur en Stundin fjall­aði um bréfið og dag­bók­ina á dög­unum. Pabbi Val­gerðar sem var í sam­búð með Þóru fyrir um fjöru­tíu árum, eig­in­kona hans og systir Val­gerðar segja að frið­helgi einka­lífs Þóru sé rofin og van­virt.
Þegar konur eru stimplaðar geðveikar
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
Leiðari

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir

Þegar konur eru stimpl­aðar geð­veikar

„Þetta á ekk­ert erindi við almenn­ing, frekar en geð­veiki dóttur minnar,“ voru við­brögð Jóns Baldvins við birt­ingu bréfa sem hann skrif­aði til ungrar stúlku í fjöl­skyld­unni. Í til­raun til að varpa athygl­inni frá sér benti hann á dóttur sína, sem svar­aði fyrir sig og var fyrir vikið dregin fyrir dóm af föður sínum. „Ég gat ekki sætt mig við að vera útmáluð geð­veik.“

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár