Fjórar konur stíga fram vegna Jóns Baldvins

Fjórar konur stíga fram í við­tölum í Stund­inni og lýsa meintri kyn­ferð­is­áreitni Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar yfir rúm­lega hálfrar aldar skeið. Enn fleiri konur hafa deilt sögum sínum af ráð­herr­anum fyrr­ver­andi í lok­uðum hópi kvenna. Nýjasta sagan er frá því sum­arið 2018, en þær elstu frá 13–14 ára nem­endum hans við Haga­skóla á sjö­unda ára­tugnum.

Fjórar konur stíga fram vegna Jóns Baldvins

„Þegar ég stóð upp á einum tíma­punkti og fór að skenkja í glösin, þá bara gerði kall­inn sér lítið fyrir og byrj­aði að strjúka á mér rass­inn.“

Þannig lýsir Carmen Jóhanns­dóttir kyn­ferð­is­legri áreitni síð­asta sumar. Meintur ger­andi er Jón Baldvin Hanni­bals­son, einn áhrifa­mesti stjórn­mála­maður Íslands síð­ustu ára­tuga.

Carmen er ein fjög­urra kvenna sem stíga fram í Stund­inni og lýsa kyn­ferð­is­legri áreitni Jóns Baldvins, atvikum sem áttu sér stað yfir hálfrar aldar tíma­bil.

Nýleg­asta atvikið er það sem Carmen lýsir og átti sér stað á Spáni í júní 2018, að loknum leik Íslands og Argent­ínu á HM í knatt­spyrnu. Segir hún að Jón Baldvin hafi áreitt sig kyn­ferð­is­lega á heim­ili hans og Bryn­dísar Schram, eig­in­konu hans, í bænum Salobreña í Andalúsíu.

Elsta atvikið sem er lýst átti sér stað árið 1967 þegar Jón Baldvin var kenn­ari í Haga­skóla. Þolendur meintrar áreitni hans og nem­endur við skól­ann, Matt­hildur Krist­manns­dóttir og María …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynferðisbrot

Myndir af neyðarmóttöku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“
FréttirKynferðisbrot

Myndir af neyð­ar­mót­töku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lögreglu var heim­ilt að senda myndir sem teknar voru af Guðnýju S. Bjarna­dóttur á neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á verj­anda manns sem hún kærði fyrir nauðgun. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­verndar. Guðný segir ótækt að ger­endur í kyn­ferð­is­af­brota­málum geti með þessum hætti fengið aðgang að við­kvæmum myndum af þolendum. „Þetta er bara staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lög­regl­unnar.“

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár