Samkomulag við Útlendingastofnun komi niður á sjálfstæði Háskóla Íslands

Nanna Hlín Hall­dórs­dóttir, doktor í heim­speki og stunda­kenn­ari við Háskóla Íslands, segir sjálf­stæði Háskóla Íslands ógnað með fyr­ir­hug­uðum þjón­ustu­samn­ingi um tann­grein­ingar við Útlend­inga­stofnun. Hún segir mik­il­vægt að skól­inn haldi sjálf­stæði sínu gagn­vart öðrum stofn­unum sam­fé­lags­ins.

Fyr­ir­hug­aður þjón­ustu­samn­ingur Háskóla Íslands og Útlend­inga­stofn­unar um að skól­inn muni sjá um röntgen­rann­sóknir á tönnum ungra hæl­is­leit­enda í þeim til­gangi að skera úr um aldur þeirra fyrir Útlend­inga­stofnun, vegur að sjálf­stæði skól­ans. Þetta segir Nanna Hlín Hall­dórs­dóttir, doktor í heim­speki og stunda­kenn­ari við Háskóla Íslands, í sam­tali við Stundina en hún er ein þeirra sem hefur að und­an­förnu leitt mót­mæli innan háskól­ans gegn tann­grein­ingum á ungum hæl­is­leit­endum. Stúd­enta­ráð Háskóla Íslands, Lands­sam­tök íslenskra stúd­enta, starfs­menn og dokt­or­snemar við Mennta­vís­inda­svið Háskóla Íslands sem og starfs­menn og dokt­or­snemar við Hug­vís­inda­svið skól­ans hafa að und­an­förnu sent frá sér yfir­lýs­ingar þar sem tann­grein­ing­unum er mót­mælt harð­lega.

Umhugað um stöðu flótta­fólksNanna Hlín þekkir vel til stöðu flótta­fólks á Íslandi enda kom eig­in­maður hennar hingað til lands sem flótta­maður.

Stúd­entar, dokt­or­snemar og starfs­menn háskól­ans hafa meðal ann­ars bent á að  tann­grein­ingar á hæl­is­leit­endum fari gegn vís­inda­siða­reglum skól­ans en þær kveða á um að rann­sak­endur skuli ekki skaða hags­muni þeirra sem til­heyra hópi í erf­iðri stöðu. Þá hafa þeir bent á sam­fé­lags­legt hlut­verk mennta­stofn­ana sem og mik­il­vægi þess að akademískar stofn­anir fram­kvæmi ekki aðgerðir lög­valds á borð við Útlend­inga­stofn­unar. Málið þykir óþægi­legt fyrir rektor sem og yfir­stjórn Háskóla Íslands sem hefur beitt sér fyrir gerð þjón­ustu­samn­ings­ins, en tann­grein­ingar f´rou lengi vel fram innan veggja háskól­ans án þess að nokkur samn­ingur lægi fyrir. Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Háskóla Íslands, sendi tölvu­póst á starfs­menn háskól­ans í síð­ustu viku þar sem hann sagði að ald­ur­grein­ingar á tönnum færu ekki fram á meðan málið væri til skoð­unar hjá Heil­brigð­is­vís­inda­sviði skól­ans. Hann hefur ekki viljað tjá sig um gagn­rýnir starfs­manna og dokt­or­snema. 

„Á sama tíma er háskól­inn að styðja aðgerð sem í raun og veru beitir sér fyrir því að reka úr landi alþjóð­legt fólk, þannig að það er þarna mót­sögn“

Nanna Hlín bendir á mik­il­vægi þess að akademískar stofn­anir njóti algjörs sjálf­stæðis. Tann­grein­ingar, sem fram­kvæmdar eru fyrir lög­valdið, Útlend­inga­stofnun, eigi ekki undir neinum kring­um­stæðum að fara fram innan veggja akademískrar stofn­unar á borð við Háskóla Íslands enda komi það niður á sjálf­stæði skól­ans. „Ég held að það skipti bara ótrú­lega miklu máli fyrir háskól­ann sem svona þekk­ing­ar­stofnun, sem í sinni leit er að reyna að búa til meiri og betri þekk­ingu, koma fram með sam­fé­lags­gagn­rýni, koma jafn­vel fram með spurn­ingar akkúrat um sið­ferði, um sið­fræði, þá skiptir mjög miklu máli að það sé sjálf­stæði gagn­vart öðrum sviðum sam­fé­lags­ins,“ segir Nanna Hlín sem bætir við að hún telji að ein­hvers­konar sam­komu­lag um að Háskóli Íslands sjái um tann­grein­ingar fyrir Útlend­inga­stofnun muni koma niður á því sjálf­stæði. 

Nanna bætir við að eitt af hlut­verkum mennta­stofn­ana á borð við Háskóla Íslands sé að stuðla að því að fólk í við­kvæmri stöðu eigi sem far­sæl­ast líf. Hún bendir á að háskól­inn hafi á síð­ustu tíu, tutt­ugu árum lagt mikla áherslu á að vera alþjóð­legur rann­sókn­ar­há­skóli. Í því sam­hengi skipti miklu máli að hluti dokt­or­snema séu af erlendu bergi brotnir og að það séu ekki ein­ungis íslenskir rík­is­borg­arar sem ljúki dokt­ors­prófi við skól­ann. „Á sama tíma er háskól­inn að styðja aðgerð sem í raun og veru beitir sér fyrir því að reka úr landi alþjóð­legt fólk, þannig að það er þarna mót­sögn.“

Í helg­ar­blaði Stund­ar­innar er rætt við þrjár konur, sem nema og starfa við Háskóla Íslands, en þær gagn­rýna skól­ann sinn harð­lega fyrir að hafa stundað röntgen­rann­sóknir á tönnum ungra hæl­is­leit­enda fyrir Útlend­inga­stofnun án samn­ings, sem og að vinna að sér­stökum þjón­ustu­samn­ingi um rann­sókn­irnar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár