Samtalið á Klaustri verður leiklesið í kvöld

Borg­ar­leik­húsið í sam­starfi við Stundina setur upp leik­lestur á sam­tali þing­manna á hót­el­barnum Klaustur.

Samtalið á Klaustri verður leiklesið í kvöld

Samtal sex þing­manna Mið­flokks­ins og úr Flokki fólks­ins, sem tekið var upp á Klaustri þriðju­dags­kvöldið 20. nóv­em­ber verður leik­lesið í kvöld. Borg­ar­leik­húsið stendur fyrir leik­lestr­inum í sam­vinnu við Stundina.

Lítilsvirðandi ummæli

Upptökum af sam­ræðum þeirra Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, Gunnars Braga Sveins­sonar, Bergþórs Ólasonar, Önnu Kol­brúnar Árna­dóttur, sem og Karls Gauta Hjalta­sonar og Ólafs Ísleifs­sonar, þar sem þau sátu að drykkju á meðan þingið var enn að störfum var komið til Stund­ar­innar, DV og Kvenna­blaðs­ins, sem hafa greint frá lít­ils­virð­andi ummælum þing­manna um nafn­greindar stjórn­mála­konur, sam­kyn­hneigða og fatl­aða, um leið og þeir mærðu hvern annan og stát­uðu sig af því að hafa mis­beitt valdi sínu við skipan sendi­herra.

Ummælin hafa dregið dilk á eftir sér, tveir þing­menn voru reknir úr Flokki fólks­ins vegna fram­göngu sinnar og tveir þing­manna Mið­flokks­ins eru nú komnir í leyfi. Hópur þing­manna hefur vísað mál­inu til for­sætis­nefndar Alþingis og óskað eftir því að siða­nefnd Alþingis taki það fyrir. Þá hefur fjöldi þing­manna for­dæmt ummælin. Á meðan nokkrar konur sem þarna voru teknar fyrir hafa svarað þessum mál­flutn­ingi með harð­orðum yfir­lýs­ingum hafa aðrar sagt að þeim sem höfðu þig þarna í frammi sé ekki stætt að sitja áfram á Alþingi. 

Konur í hlutverki karla

Í dag klukkan 20:30 verður hluti sam­tals­ins leik­les­inn í Borg­ar­leik­hús­inu í leik­stjórn Bergs Þórs Ing­ólfs­sonar. Þar munu fimm konur vera í hlut­verkum þing­manna, þær Bryn­hildur Guð­jóns­dóttir, Sigrún Edda Björns­dóttir, Unnur Ösp Stef­áns­dóttir, Þuríður Blær Jóhanns­dóttir og Þórunn Arna Krist­jáns­dóttir, en Hilmar Guð­jóns­son verður eini karl­inn á svið­inu.

Í til­kynn­ingu frá Borg­ar­leik­hús­inu segir: „Eitt af meg­in­hlut­verkum leik­húss­ins er að varpa ljósi á mál­efni líð­andi stundar. Með þessum við­burði leit­ast leik­húsið við að skoða ábyrgð og orð­ræðu kjör­inna full­trúa í lýð­ræð­is­legu sam­hengi.“

Streymt á Stundinni

Við­burð­ur­inn, sem verður á Litla sviði leik­húss­ins, er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Um leið verður leik­lestr­inum streymt á vef­síðu Stund­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár