Eygló kölluð „galin kerlingarklessa“ á fundi þingmanna

Karl Gauti Hjalta­son, þing­maður Flokks fólks­ins, sem lengi var sýslu­maður í Vest­manna­eyjum, fór hörðum orðum um Eygló Harð­ar­dóttur, fyrr­ver­andi ráð­herra og þing­mann úr kjör­dæm­inu, á upp­töku.

Eygló kölluð „galin kerlingarklessa“ á fundi þingmanna
Karl Gauti Hjalta­son og Eygló Harð­ar­dóttir Karl Gauti var sýslu­maður í Vest­manna­eyjum á meðan Eygló var í stjórn­málum í kjör­dæm­inu.

Karl Gauti Hjalta­son, þing­maður Flokks fólks­ins, kall­aði Eygló Harð­ar­dóttur, fyrr­ver­andi ráð­herra, „galna kerl­ing­ar­klessu“ á Klaustur bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

Karl sat ásamt Ólafi Ísleifs­syni, flokks­bróður sínum, og fjórum þing­mönnum Mið­flokks­ins á barnum. Ræddi hóp­ur­inn meðal ann­ars mögu­leg vista­skipti Karls og Ólafs yfir í Mið­flokk­inn. Stundin hefur undir höndum upp­töku af sam­skiptum þeirra, en þing­menn­irnir voru háværir og vakti hegðun þeirra athygli í vitna við­ur­vist.

„Hún bjó í Vest­manna­eyjum, þess vegna studdi hana eng­inn,“ sagði Karl við kollega sína. „Það var ekk­ert í henni, það var ekk­ert í henni. Það var ekk­ert að frétta hjá þess­ari konu. Galin kerl­ing­ar­klessa.

Eygló var þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins frá 2008 til 2017 og félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra í rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar frá 2013 til 2017. Hún bjó um langt skeið í Vest­manna­eyjum, þar sem Karl Gauti var sýslu­maður frá 1998 til 2014.

Þing­menn­irnir á barnum létu ýmis óvið­ur­kvæmi­leg orð falla í garð stjórn­mála­kvenna, líkt og fjallað hefur verið um hér, hér, hér, hér, hér og hér. Haft var eftir Karli Gauta í Stund­inni að Inga Sæland gæti „grenjað“ en ekki stjórnað. 

Rekinn úr flokknum 

Flokkur fólks­ins til­kynnti rétt í þessu að „í ljósi trún­að­ar­brests sem upp er kom­inn“ í þing­flokknum hafi stjórnin ákveðið að víkja þeim Karli Gauta og Ólafi Ísleifs­syni úr flokknum. Við ákvörð­un­ina var stuðst við sam­þykktir flokks­ins, þar sem segir meðal ann­ars að „sé félags­maður stað­inn að því að vinna gegn meg­in­mark­miðum og hags­munum Flokks fólks­ins, skal hann sviptur félags­að­ild“. Í yfir­lýs­ingu stjórnar kom fram að hún harmi þá rýrð sem umræddir þing­menn hafa kastað á Flokk fólks­ins, með óaf­sak­an­legri þátt­töku sinni á fundi með þing­mönnum Mið­flokks­ins. Undir yfir­lýs­ing­una skrifar for­maður flokks­ins, Inga Sæland. 

Karl Gauti taldi sig hins vegar geta verið áfram í Flokki fólks­ins, eins og fram kom í fréttum í gær. Honum liði illa yfir mál­inu og hefði beðið Ingu afsök­unar. 

„Ég harma ummæli sem ég lét falla á veit­inga­stað fyrir stuttu síðan og hafa birst í nokkrum fjöl­miðlum. Af því til­efni vil ég taka fram að ég er ekki á förum úr Flokki fólks­ins, styð stefnu flokks­ins og ber traust til for­manns hans, Ingu Sæland,“ sagði Karl í yfir­lýs­ingu sem hann sendi fjöl­miðlum.

Telja þeim ekki stætt á þingi

Þing­konur sem voru lít­ils­virtar í sam­tali þing­manna Mið­flokks­ins og Flokks­ins líta svo á að þátt­tak­endum í þessu sam­tali sé ekki stætt að sitja áfram á Alþingi. Fjöldi þing­manna hefur for­dæmt mál­flutn­ing þeirra og for­seti Alþingis, Stein­grímur J. Sig­fús­son, sagði ummælin óaf­sak­an­leg og óverj­andi. Hópur þing­manna sendi í gær erindi á for­sætis­nefnd Alþingis þar sem þess var óskað að siða­nefnd Alþingis tæki málið fyrir. 

Fyrr í dag var þeim til­mælum beint að Karli Gauta að hann myndi ekki sitja fund umhverfis- og sam­göngu­nefndar, þegar Íris Róberts­dóttir, bæj­ar­sjóri Vest­manna­eyja var gestur nefnd­ar­innar. Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins og for­maður nefnd­ar­innar, lét sig einnig hverfa af fund­inum áður en Íris mætti. 

„Hún er miklu minna hot í ár en hún var bara fyrir tveimur árum síðan,“ sagði Bergþór meðal ann­ars um Írisi. „Og á þeim for­sendum segi ég að hún hrynji niður list­ann,“ svar­aði Sig­mundur Davíð og Bergþór tók undir það: „Eðlilega.“

Vildu fá þá yfir

Í fréttum Stund­ar­innar hefur einnig komið fram að Mið­flokk­ur­inn sótt­ist eftir því að fá Karl Gauta og Ólaf Ísleifs­son yfir til sín, þar sem þeir sátu saman að sum­bli á Klaustri. 

Nú eru þeir Gunnar Bragi Sveins­son og Bergþór Ólafsson „komnir í leyfi“ frá þing­störfum fyrir Mið­flokk­inn, en Sig­mundur Davíð, sem einnig tók þátt í sam­tal­inu til­kynnti Mið­flokks­mönnum það með tölvu­pósti í dag. 

Í tölvu­póst­inum sagð­ist Sig­mundur Davíð oft hafa setið slíkar sam­ræður án þess að stöðva þær og gerði lítið úr því að þær tengd­ust kyni fólks­ins sem þar átti í hlut eða flokks­að­ild. „Ég hef hlustað á þing­menn flestra flokka úthúða flokks­fé­lögum sínum og nota orð­bragð sem í sumum, jafn­vel mörgum, til­vikum er enn gróf­ara en það sem birst hefur að und­an­förnu. Þingmenn af báðum kynjum eiga þar í hlut og fórn­ar­lömbin eru auk þess af báðum kynjum.“

Í gær þvertók Gunnar Bragi þó fyrir það að málið væri ástæða til afsagnar og sagð­ist ekki hafa brotið af sér, aðeins hegðað sér asna­lega. Aðspurður sagð­ist hann vel geta staðið undir því að verða sendi­herra og hann myndi íhuga það yrði honum boðin slík staða. Viðtalið við Gunnar Braga var tekið áður en Stundin greindi frá áformum hans um hefnd­ar­að­gerðir gegn Lilju Alfreðs­dóttur, sem hann lýsti í sam­sæt­inu á Klaustri. 

Aðeins Anna Kolbrún Árna­dóttir, þing­maður Mið­flokks­ins, sagð­ist taka ábyrgð sína alvar­lega í gær og að hún væri að íhuga að víkja vegna máls­ins. Ef af því verður hverfur eina þing­kona Mið­flokks­ins af þingi. 

Framhaldið veltur á hinum 

Jón Ólafsson, pró­fessor við Háskóla Íslands, sem hefur meðal ann­ars kennt sið­fræði í opin­berri stjórn­sýslu, hefur verið í for­svari fyrir Gagnsæi - sam­tök gegn spill­ingu. Samtökin birtu í dag færslu á Facebook þar sem bent var á að það er ekki per­sónu­leg ákvörðun þess­ara þing­manna hvort þeir muni segja af sér.

„Framhald þessa máls veltur ekki á þing­mönn­unum sex: Viðbrögð þeirra eru fyr­ir­sjá­an­leg. Þeir munu reyna að halda sætum sínum og segj­ast sjá eftir öllu saman eins lengi og aðrir leyfa þeim það. Fram­haldið veltur á hinum: Hvort flokks­fé­lag­arnir snið­ganga þá eða fyr­ir­gefa þeim „stráks­skap­inn“, hvort aðrir þing­menn neita að vinna með þeim eða láta eins og ekk­ert hafi í skorist – svona þegar verstu lætin eru liðin hjá.

Nú er það Alþingi sjálft sem þarf að sýna hvort það ætlar að sam­sama sig menn­ing­ar­stigi sex­menn­ing­anna, eða loks­ins reka af sér slyðru­orðið og sýna að rudda­skapur, klám­kjaftur og ofbeld­is­fullt þrugl hefur afleið­ingar.
Þetta gera hinir 57 þing­menn­irnir og flokkar sex­menn­ing­anna með því ein­fald­lega að snið­ganga þá og sýna þeim að það er hægt að fyr­ir­gera rétti sínum til valda og áhrifa, jafn­vel þó að form­lega tak­ist manni að hanga á þing­sæti sínu.“

Uppfært 3. desember: 

Karl Gauti sendi frá sér yfir­lýs­ingu um helg­ina þar sem hann full­yrðir að orðin um að  Eygló Harð­ar­dóttir sé „galin kerl­ing­ar­klessa“ og að það sé „ekk­ert í henni“ séu ekki sín heldur ein­hvers ann­ars sem sat á Klaustri Bar. „Ég þekki mitt orð­færi og mína rödd. Þessi orð voru ekki mín og sú rödd sem tal­ar er það ekki held­ur,“ segir Karl Gauti. Erfitt er að greina á upp­tök­unni hvort Karl Gauti eða Gunnar Bragi Sveins­son, þing­flokks­for­maður Mið­flokks­ins, lætur orðin falla. Karl Gauti er úr Vest­manna­eyjum, eins og Eygló, en Gunnar Bragi var sam­ráð­herra Eyglóar í rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, sem einnig var við­staddur umræð­urnar. Gunnar Bragi hefur sjálfur sagt að hann muni lítið eftir því sem hann sagði í umræð­unum og sé hissa á þeim orðum sem hann hefur heyrst segja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár