Varaformaður Flokks fólksins með sorg í hjarta vegna „skelfilegra“ ummæla

Þingmenn Flokks fólks­ins sátu fund með þing­mönnum Mið­flokks­ins þar sem Inga Sæland var kölluð „klikkuð kunta“ og sögð „grenja“. Guðmundi Inga Krist­ins­syni, vara­for­manni, er brugðið yfir ummæl­unum. Hann segir sam­flokks­menn sína þurfa að svara fyrir fund­inn og það sem þar fór fram á þing­flokks­fundi.

Varaformaður Flokks fólksins með sorg í hjarta vegna „skelfilegra“ ummæla

Ég er með sorg í hjarta yfir því að það skuli vera hægt að, í fyrsta lagi hugsa svona og í öðru lagi að tala svona,“ segir Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, vara­for­maður Flokks fólks­ins, í sam­tali við Stundina. Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins, kallar Ingu Sæland, for­mann Flokks fólks­ins „húrr­andi klikk­aða kuntu“ á hljóð­upp­töku sem Stundin hefur undir höndum.

„Hún er fokk­ing tryllt,“ sagði Bergþór við Karl Gauta Hjalta­son og Ólaf Ísleifs­son, þing­menn Flokks fólks­ins, í við­ur­vist flokks­fé­laga sinna, Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, Önnu Kol­brúnar Árna­dóttur og Gunnars Braga Sveins­sonar á Klaustur bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

Guð­mundur Ingi segir að þarna hafi greini­lega eitt­hvað verið „í gangi sem er mjög und­ar­legt og þarfn­ast skoð­unar við.“ Hann segir ummælin hreint „skelfi­leg“ og er ekki síður brugðið yfir því að sam­flokks­menn Ingu Sæland í Flokki fólks­ins, þeir Karl Gauti Hjalta­son og Ólafur Ísleifs­son, hafi ekki tekið til varna fyrir Ingu þegar þing­maður Mið­flokks­ins tal­aði með þessum hætti um hana.

„Það er líka bara skelfi­legt að aðrir skuli ekki hafa bent honum á að þetta eru ekki við­eig­andi ummæli hvar sem er. Þetta eru bara óvið­eig­andi ummæli algjör­lega.“ Á þessum sama fundi sagði annar þing­manna Flokks fólks­ins, að Inga Sæland gæti ekki stjórnað.

„Hún getur þetta ekki“

„Ólafur er örugg­lega sam­mála mér að Inga Sæland getur þetta ekki,“ sagði Karl Gauti Hjalta­son, þing­maður Flokks fólks­ins, á sama fundi með Ólafi Ísleifs­syni flokks­fé­laga sínum og fjórum þing­mönnum Mið­flokks­ins. „Hún getur þetta ekki. Hún getur talað um þetta, hún getur grenjað um þetta, en hún getur ekki stjórnað,“ sagði Karl.

„Þetta er auð­vitað eitt­hvað sem þeir þurfa að svara fyrir, þeir eru á staðnum, þeir eru með þeim, og þetta eru hlutir sem þeir verða bara að svara fyrir á næsta þing­flokks­fundi eða stjórn­ar­fundi eða hvernig sem það verður gert,“ segir Guð­mundur Ingi sem ítrekar að hann beri sjálfur fullt traust til for­manns flokks­ins.

Aðspurður hvort hann hafi orðið var við klofn­ing innan flokks­ins á síð­ustu miss­erum eða hvort þing­menn­irnir tveir hafi verið í ein­hverju sam­kurli við þing­menn Mið­flokks­ins segir hann: „Veistu, ég ætla ekki að tjá mig um þetta núna. Nú þarf ég að fara og velta fyrir mér hvernig hlut­irnir hafa verið und­an­farið en síðan mun ég svara fljót­lega, eða um leið og ég er búinn að kynna mér málið til hlýtar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
6
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár