Karl Gauti og Ólafur halda áfram sem þingmenn þrátt fyrir að hafa verið reknir úr flokknum

Báðir þing­menn Flokks fólks­ins, sem reknir hafa verið úr flokknum eftir þátt­töku þeirra í grófum umræðum um aðra þing­menn og for­mann flokks­ins, ætla að halda áfram þing­störfum, þrátt fyrir brott­rekst­ur­inn. Karl Gauti segir annan en hann hafa kallað Eygló Harð­ar­dóttur „galna kerl­ing­ar­klessu“.

Karl Gauti og Ólafur halda áfram sem þingmenn þrátt fyrir að hafa verið reknir úr flokknum

K

Karl Gauti Hjalta­son og Ólafur Ísleifs­son, brottreknir þing­menn Flokks fólks­ins, ætla báðir að halda áfram þing­störfum, þrátt fyrir að hafa verið reknir úr flokknum fyrir þátt­töku sína í meið­andi umræðum um for­mann flokks­ins og fleiri stjórn­mála­konur- og menn. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingum þeirra í dag.

Karl Gauti full­yrðir jafn­framt að þau orð sem höfð eru eftir honum um Eygló Harð­ar­dóttur, fyrr­ver­andi ráð­herra, að hún sé „galin kerl­ing­ar­klessa“ og að það sé „ekk­ert í henni“ séu ann­ars en sín. 

Stundin og fleiri fjöl­miðlar sögðu í gær frá því að Karl Gauti Hjalta­son, þing­maður Flokks fólks­ins, hefði kallað Eygló Harð­ar­dóttur, fyrr­ver­andi ráð­herra, „galna kerl­ing­ar­klessu“ á Klaustur bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

Í yfir­lýs­ingu segir Karl Gauti að orð­færið í við­kom­andi ummælum sé ekki hans. „Upp­tak­an er afar óskýr en það vefst samt ekki fyr­ir fjöl­miðlum að greina ann­ars veg­ar hvað er sagt og hins veg­ar hver tal­aði. Sjálf­ur get ég hvor­ugt eft­ir að hafa marg­hlustað á þetta brot úr upp­tök­unni. Ég þekki hins veg­ar mitt orð­færi og mína rödd. Þessi orð voru ekki mín og sú rödd sem tal­ar er það ekki held­ur.“

Erfitt er að greina end­an­lega á upp­tök­unni hvort Karl Gauti eða Gunnar Bragi Sveins­son, þing­flokks­for­maður Mið­flokks­ins, lætur orðin falla. Karl Gauti er úr Vest­manna­eyjum, eins og Eygló, en Gunnar Bragi var sam­ráð­herra Eyglóar í rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, sem einnig var við­staddur umræð­urnar. Gunnar Bragi hefur sjálfur sagt að hann muni lítið eftir því sem hann sagði í umræð­unum og sé hissa á þeim orðum sem hann hefur heyrst segja.

„Það var ekk­ert að frétta hjá þess­ari konu. Galin kerl­ing­ar­klessa.“

„Hún bjó í Vest­manna­eyjum, þess vegna studdi hana eng­inn,“ heyr­ist á upp­tök­unni. „Það var ekk­ert í henni, það var ekk­ert í henni. Það var ekk­ert að frétta hjá þess­ari konu. Galin kerl­ing­ar­klessa.“

„Galin kerl­ing­ar­klessa“Stundin og fleiri fjöl­miðlar hafa greint frá því að ummæli um Eygló Harð­ar­dóttur hafi verið Karls Gauta Hjalta­sonar. Sjálfur vísar hann á aðra.

„Fjöl­miðlar hafa að rang­lega eignað mér setn­ingu úr upp­tök­unni sem svo mjög hef­ur verið í frétt­um að und­an­förnu. Þar fara þeir ein­fald­lega manna­villt og von­andi kemst það álíka vel til skila eins og upp­slátt­ur­inn um það sem ég átti að hafa sagt um Eygló Harð­ar­dótt­ur,“ segir í yfir­lýs­ingu Karls Gauta.

„Sjálf­ur lagði ég ekk­ert það orð í belg sem tal­ist get­ur sið­ferðis­lega ámæl­is­vert.“

„Það er ekki hægt að gera at­huga­semd­ir við að fjöl­miðlar birti efni úr upp­töku af þessu tagi úr því að hún er til. Það er hins veg­ar mik­il­vægt að þeir nálg­ist slíka end­ur­sögn af var­færni og lág­marks­krafa er að þeir viti ná­kvæm­lega hver sagði hvað þegar þeir velja sér upp­sláttar­fyr­ir­sagn­ir um ein­stak­ar setn­ing­ar.

Mér þykir leitt að hafa setið þenn­an fund alltof lengi en sjálf­ur lagði ég ekk­ert það orð í belg sem tal­ist get­ur sið­ferðis­lega ámæl­is­vert. Ákvörðun stjórn­ar Flokks fólks­ins mun engu breyta um áhersl­ur mín­ar í áfram­hald­andi störf­um mín­um sem þing­maður. Ég gaf kjós­end­um mín­um fyr­ir­heit um áhersl­ur og við þau mun ég standa,“ segir í yfir­lýs­ingu Karls Gauta.

Karl Gauti sagði meðal ann­ars í umræð­unum á Klaustri að for­maður flokks­ins hans, Inga Sæland, „gæti grenjað en ekki stjórnað“. Þá gerði hann enga athuga­semd þegar sessu­nautur hans, Bergþór Ólafson, þing­maður Mið­flokksin, kall­aði Ingu „klikk­aða kuntu“.

„Á þeirri ákvörðun ber ég enga ábyrgð en stjórnin alla“

Ólafur Ísleifs­son segir í sinni yfir­lýs­ingu að það séu mis­tök að reka hann úr flokknum. „Vonandi er að þeir sem eftir eru stand­ist þær sið­ferð­is­kröfur sem til þeirra hljóta héðan í frá að vera gerðar. Ég ótt­ast að ákvörðun stjórn­ar­innar muni eftir á að hyggja þykja illa ígrunduð. Með þátt­töku minni í þessu sam­sæti gerði ég ámæl­is­verð mis­tök sem ég biðst afsök­unar á. Ákvörð­unin um brott­rekstur er hins vegar stjórn­ar­innar og mér er til efs að þar hafi fram­tíð­ar­hags­munir flokks­ins verið hafðir að leið­ar­ljósi. Á þeirri ákvörðun ber ég enga ábyrgð en stjórnin alla. Í störfum mínum sem óháður þing­maður utan flokka mun ég halda áfram bar­áttu fyrir þeim mál­efnum og áherslum sem ég lof­aði kjós­endum í aðdrag­anda alþing­is­kosn­ing­anna 2017.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár