Femínistum kennt um sjálfsvíg karla: „Einhliða frásagnir kvenna í fjölmiðlum stúta þeim“

Fjöldi fólks tekur undir hug­myndir um að aukna sjálfs­morð­s­tíðni ungra karla megi meðal ann­ars rekja til femín­isma.

Femínistum kennt um sjálfsvíg karla: „Einhliða frásagnir kvenna í fjölmiðlum stúta þeim“

Pistill eftir Hafdísi Björgu Krist­jáns­dóttur, einka­þjálf­ara og fit­ness­meist­ara, þar sem femín­ismi er tengdur við sjálfs­víg karl­manna, hefur farið eins og eldur í sinu um inter­netið und­an­farna daga.

Hafdís Björg Krist­jáns­dóttir

Hafdís seg­ist hafa frétt af fjórum sjálfs­vígum ungra karl­manna mánu­dags­kvöldið 29. októ­ber. Einn þeirra sem tóku líf sitt var góður vinur hennar, en Hafdís fylgdi honum til grafar í gær.

Í sam­tali við Stundina seg­ist Hafdís telja að stór ástæða fyrir van­líðan ungra karl­manna sé orð­ræðan í sam­fé­lag­inu. Beinir hún spjótum sínum sér­stak­lega að femínistum. Í pistli sínum seg­ist hún fá hroll þegar hún heyri minnst á femín­isma og sjá fyrir sér „konu sem finnur fyrir þeirri þörf að rakka niður karl­menn til þess að upp­hefja okkur kven­menn“. Hún veltir því svo upp hvort mál­flutn­ingur femínista valdi karl­mönnum van­líðan og sé ef til vill ein skýr­ingin á auk­inni sjálfs­morð­tíðni ungra karla. 

Við­brögðin hafa ekki staðið á sér en 6,6 þús­und manns hafa lækað frétt DV upp úr pistl­inum. Á kommenta­kerfum og sam­fé­lags­miðlum fara margir hörðum orðum um femín­isma og kenna jafn­vel nafn­greindum konum um sjálfs­víg ótil­greindra karla.

„Ég ætla að full­yrða að fólk er dáið vegna þinna gjörða,“ skrifar Sigrún Dóra Jóns­dóttir og taggar Hildi Lilli­endahl Vigg­ós­dóttur sem tals­vert hefur látið að sér kveða í kynjaum­ræð­unni um ára­bil.  

Ingólfur Sig­urðs­son

Ingólfur Sig­urðs­son, knatt­spyrnu­maður sem hefur vakið athygli fyrir að opna umræð­una um geð­sjúk­dóma og and­leg veik­indi íþrótta­fólks, leggur orð í belg og hvetur fólk til að lesa pistil Hafdísar.

„Við búum í sam­fé­lagi þar sem ungir karlar drepa sig, þar sem lítið er gert úr orðum þeirra vegna kyns, þar sem ein­hliða frá­sagnir kvenna í fjöl­miðlum stúta þeim, þar sem mis­heppnað daður getur orðið að kyn­ferð­is­legu áreiti,“ skrifar hann á Twitter.

„Þar sem þeir þora ekki að berj­ast fyrir sjálfa sig, þar sem þeir líða fyrir karllæga menn­ingu og kven­fyr­ir­litn­ingu fyrir þeirra tíma. Ólæsir, ómennt­aðir, lág­laun­aðir, fang­els­aðir, ger­endur, geð­sjúkir, hræddir. Það eru strák­arnir okkar í dag. (…) Og þeir munu halda áfram að drepa sig, stundum fjórir á dag, stundum einn á viku, ef sam­fé­lagið býður þá ekki vel­komna, ef sam­fé­lagið hlúir ekki að þeim. Það þarf að tala við strák­ana okkar, en ekki tala niður til þeirra.“

Þórólfur Júlían Dagsson, aðgerðasinni sem leiddi lista Pírata í Reykja­nesbæ í síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, seg­ist „tengja“ mjög við grein Hafdísar. „Ég var hræddur við það að deila þessu. Af hverju? Ég er hræddur við það að verða tekin fyrir. Búin að lenda í því einusinni og langar ekk­ert að lenda í því aftur. En þá er ég að gef­ast upp. Ég er sam­mála því sem hún segir. Þessu and­lega ofbeldi gagn­vart karl­mönnum verður að linna.“

„Þessu and­lega ofbeldi gagn­vart
karl­mönnum verður að linna“

Skrifin um femín­isma og sjálfs­víg hafa þó einnig sætt harðri gagn­rýni. Knuz.is birtir pistil eftir Eygló Árna­dóttur þar sem hún bendir á að femínista­hreyf­ingar hafa leikið lyk­il­hlut­verk í því að vinna gegn skað­legum staðalí­myndum um karl­mennsku, t.d. „hug­myndum um að „alvöru karl­maður“ sé harður og kaldur, lok­aður og til­finn­inga­laus, tali ekki um til­finn­ingar og leiti sér ekki hjálpar“. Hún segir það að fækka sjálfs­vígum karla vera „eitt af stóru verk­efnum femínista“ og að sárt sé að sjá öðru haldið fram. 

Í gær­kvöldi birti Stundin svo grein eftir Önnu Bentínu Herman­sen þar sem hún segir frá sjálfs­vígi bróður síns og áréttar mik­il­vægi þess að ræða sjálfs­víg af virð­ingu og án sleggju­dóma. „Það er harka­legt að lesa grein um sjálfs­víg karla sem kennir femínistum um sjálfs­víg þeirra. Ég er sjálf femínisti og bróðir minn heit­inn var það líka. Hann þoldi ekki órétt­læti og að fólki væri troðið í fyr­ir­fram ákveðið form eftir kyni, kyn­þætti, kyn­hneigð eða öðru slíku. Hann grét oft og tal­aði um van­líðan sína, það dugði hins­vegar ekki til,“ skrifar Anna.

Í hinum vest­ræna heimi eru ung­ir karl­menn þris­var til fjór­um sinn­um lík­legri en konur til að fremja sjálfs­víg. Hins vegar er algeng­ara að konur geri sjálfs­vígstil­raunir sem enda ekki með dauða og séu lagðar inn á spít­ala vegna sjálfs­skaða. Á vef land­lækn­is­emb­ætt­is­ins er bent á að sjálfs­vígs­tíðni karla undir 25 ára aldri hefur auk­ist und­an­farna ára­tugi, ekki bara á Íslandi, heldur víða um heim. „Orsakir eru óljósar og eflaust marg­þættar, en ekki er ólík­legt að örar félags­legar breyt­ingar, jafn­vel breyt­ingar á sam­fé­lags­legri stöðu karl­manna kunni að valda ein­hverju þar um,“ segir á vefnum. 

Halldór Auðar Svansson

Halldór Auðar Svansson, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Pírata, bendir á að text­inn sé frá 2007 sem sýni að umræðan um sam­fé­lags­lega stöðu ungra karl­manna sem áhrifa­vald sjálfs­víga er ekki beint ný af nál­inni. „Það er hins vegar rosa­lega ósann­gjarnt og ógagn­legt að stilla henni upp þannig að femín­isma sé um að kenna. Ég held að sú nálgun hjálpi nákvæm­lega engum,“ skrifar hann. „En vit­iði hvað væri kannski snið­ugt? Að gefa ungum karl­mönnum sjálfum rödd og rými til að tjá sig opin­skátt um sinn veru­leika. Slíkt hefur oft­ast gef­ist ágæt­lega í gegnum sög­una, að hópar skil­greini og tali sjálfir um sín bar­áttu­mál og áskor­anir. Gætu ekki allir sam­ein­ast um það?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynjamál

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár