Demókratar ná stjórn á fulltrúadeildinni

Stjórn­ar­and­staða demókrata er nú í betri aðstöðu til að hindra fram­gang stefnu Donald Trump Banda­ríkja­for­seta. Repúblikanar bættu við sig í öld­unga­deild og unnu víða varn­ar­sigra. Kosn­inga­þátt­taka sló öll met.

Demókratar ná stjórn á fulltrúadeildinni

Demókratar náðu stjórn á full­trúa­deild Banda­ríkja­þings, sam­kvæmt nið­ur­stöðum kosn­ing­anna sem fram fóru í Banda­ríkj­unum í gær. Repúblikana­flokkur Donald Trump Banda­ríkja­for­seta styrkti hins vegar meiri­hluta sinn í öld­unga­deild þings­ins.

Kosið var um öll sæti full­trúa­deild­ar­innar og 35 af 100 sætum öld­unga­deild­ar­innar. Þá var einnig kosið um 39 emb­ætti rík­is­stjóra. Nið­ur­staðan þýðir að Repúblikanar hafa ekki lengur stjórn á báðum deildum þings­ins auk for­seta­emb­ætt­is­ins. Búast má því við meiri and­spyrnu við stefnu Trump næstu tvö ár þar til kosið verður næst um emb­ætti for­seta í nóv­em­ber 2020. Trump brást við úrslit­unum á Twitter í nótt, þakk­aði fyrir og sagði nið­ur­stöð­una vera „frá­bæran árangur“.

Full­trúa­deild þings­ins er skipuð 435 þing­sætum sem skipt er niður eftir mann­fjölda. Í öld­ung­ar­deild eru hins vegar aðeins 100 sæti, tvö fyrir hvert af 50 ríkjum Banda­ríkj­anna. Fámenn ríki hafa þannig jafn mörg sæti og þau stærstu. Repúblikanar virð­ast hafa bætt þremur sætum við nauman meiri­hluta sinn í deild­inni.

Repúblikanar unnu einnig sigra í ein­staka kosn­ingum sem fjöl­miðlar höfðu veitt mikla athygli. Ted Cruz náði end­ur­kjöri í Texas eftir harða bar­áttu við vin­sæla demókratanna Beto O'Rourke. Andrew Gillum við­ur­kenndi ósigur í kosn­ingum um rík­is­stjóra Florida, en hann hefði orðið fyrsti svarti mað­ur­inn til að verða rík­is­stjóri þess. Stacey Abrams virð­ist sömu­leiðis hafa tapað naumt í Georgíu. Hún hefði orðið fyrsta svarta konan til að gegna emb­ætti rík­is­stjóra í sögu Banda­ríkj­anna.

Fleiri konur eru nú á þingi en nokkurn tím­ann áður. Að minnsta kosti 87 konur munu sitja í full­trúa­deild af 435 þing­sætum. Í Michigan hlaut Rashida Tlaib kjör til full­trúa­deildar og Ilhan Omar sömu­leiðis í Minnesota, en þær eru fyrstu múslima­kon­urnar sem kosnar eru á þing. Alex­andria Ocasio-Cortez í New York varð yngsta konan til að ná kjöri á þing.

Þá vekur athygli að Mitt Romney, fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­andi Repúblik­ana, hlaut kosn­ingu í öld­unga­deild fyrir Utah. Romney hefur verið mjög gagn­rýn­inn á Donald Trump und­an­farin ár.

Mæting á kjör­stað virð­ist hafa brotið öll met. Áætlað er að um 114 millj­ónir manns hafi kosið, sem er 31 milljón meira en í kosn­ing­unum 2014. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár