Enginn veit hvort fimm eldislaxar sluppu eða nærri fimm þúsund

Slysa­slepp­ingin hjá Arn­ar­laxi í Tálkna­firði í sumar und­ir­strikar land­læg vanda­mál í sjó­kvía­eldi. Mat­væla­stofnun getur ekki sann­reynt upp­lýs­ingar um slysa­slepp­ingar. Í Noregi er áætlað að þrefalt fleiri eld­is­laxar sleppi úr sjó­kvíum en þeir villtu laxar sem synda upp í norskar ár.

Enginn veit hvort fimm eldislaxar sluppu eða nærri fimm þúsund
Einn sinnir eft­ir­liti Einungis einn starfs­maður Mat­væla­stofn­unar sinnir eft­ir­liti með lax­eldi á Íslandi. Myndin er eld­is­kví Arnarlax í Arn­ar­firði.

Eft­ir­lits­stofn­unin Mat­væla­stofnun veit ekki og getur ekki sann­reynt hversu margir norskir eld­is­laxar sluppu úr eld­is­kví lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arnarlax í Tálkna­firði í júlí í sumar. Göt mynd­uð­ust þá á eld­is­kví Arnarlax sem í voru rúm­lega 150 þús­und eld­is­laxar. Tæplega fimm þús­und færri fiskar voru í kvínni þegar slátrað var úr henni í byrjun októ­ber en áttu að vera í kvínni. Þetta kemur fram í svörum frá Mat­væla­stofnun við spurn­ingum Stund­ar­innar um slysa­slepp­ing­una. 

Sú stað­reynd að Mat­væla­stofnun, eft­ir­lits­stofn­unin sem fylgist með slíkum atriðum í starf­semi lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna, getur ekki full­yrt nokkuð um umfang slysa­slepp­ing­ar­innar á norsku eld­is­löx­unum und­ir­strikar þá mögu­legu umhverf­isvá sem fylgir notkun á opnum sjó­kvíum til að rækta eld­is­fiska við Íslands­strendur.

Arnarlax til­kynnti stofn­un­in­inni að tæp­lega fimm þús­und færri eld­is­laxar hefðu verið í kvínni við slátrun úr henni en ætlað var og segir í frétt á heima­síðu Mat­væla­stofn­unar að fyr­ir­tækið sjálft meti það sem svo að um 300 norskir eld­is­laxar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár