Starfsgreinasambandið krefst 425 þúsund króna lágmarkslauna

Samn­ing­ar­nefnd Starfs­greina­sam­bands Íslands, sem hefur samn­ings­um­boð fyrir um 57 þús­und laun­þega, hefur lagt fram kröfu­gerð gagn­vart stjórn­völdum og Samtökum atvinnu­lífs­ins fyrir kom­andi kjara­við­ræður.

Starfsgreinasambandið krefst 425 þúsund króna lágmarkslauna

Í kröfu­gerð sem sam­þykkt var fyrr í dag af samn­inga­nefnd Starfs­greina­sam­bandi Íslands er kraf­ist þess að lægstu laun fyrir fulla vinnu verði 425 þús­und krónur, að þau laun verði skatt­frjáls með tvö­földun per­sónu­af­sláttar, að gert verði þjóð­ar­á­tak í hús­næð­is­málum, og unnið gegn félags­legu und­ir­boði. Þetta kemur fram á vef­síðu sam­bands­ins.

Samn­ing­ar­nefnd­inni var veitt samn­ings­um­boð allra nítján verka­lýðs­fé­laga innan Starfs­greina­sam­bands­ins, þar með talið fyrir hönd Eflingar sem er næst stærsta stétt­ar­fé­lag lands­ins með um 28 þús­und félags­menn. Sam­an­lagt hefur Starfs­greina­sam­bandið um 57 þús­und félags­menn, en sam­bandið er stærsta lands­sam­band innan Alþýðu­sam­bands Íslands.

Fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins hefur áður sagt að kröfur um 375 þús­und króna lág­marks­laun séu ekki „í sam­ræmi við raun­veru­leik­ann“ og að sú upp­hæð myndi valda sam­fé­lag­inu miklu tjóni. Lág­marks­laun eru nú 300 þús­und krónur á mán­uði.

Kröfu­gerðin er í tveimur hlutum, en annar hluti snýr að stjórn­völdum og hinn að Samtökum atvinnu­lífs­ins.

Kjarasamningsbrot gerð refsiverð

Í fyrri hlut­anum er farið fram á að lægstu laun verði skatt­frjáls með tvö­földun per­sónu­af­sláttar. Þessi afsláttur verður „síðan stig­lækk­andi með hærri tekjum, þannig að lækkun skatta á lág- og milli­tekju­hópa verði m.a. fjár­mögnuð með hærra skatta­fram­lagi þeirra tekju­hæstu.“ Per­sónu­af­slátt­ur­inn þar síðan að fylgja launa­þróun, en hann hefur ekki gert það frá hruni. Með þessu móti vill sam­bandið að álagnir tekju­skatt­kerf­is­ins verði nær því sem ger­ist í hinum norð­ur­lönd­unum.

Einnig er blásið til þjóð­ar­átaks í hús­næð­is­málum, en til þess þarf „sam­eig­in­legt átak ríkis, sveit­ar­fé­laga og líf­eyr­is­sjóða.“ Tekið verður mið af þeirri vinnu sem Bjarg íbúða­fé­lag hefur unnið, en „aðrar útfærslur sem stutt geti við mark­mið Bjargs í gegnum aðra tekju­stofna verði jafn­framt skoð­aðar.“

Farið er fram á lögð verði lög til að „taka á brota­starf­semi á vinnu­mark­aði og kjara­samn­ings­brot verði gerð refsi­verð með skýrum hætti og sektir lög­festar við slíkum brotum.“ Vinnu­staða­eft­ir­lit stétt­ar­fé­laga skal vera eflt, Vinnu­mála­stofnun og Vinnu­eft­ir­lit rík­is­ins sam­ein­aðar í eina öfl­uga stofnun til að sinna eft­ir­liti, og alþjóða­sátt­málar um man­sal virtir og fjár­magn­aðir.

Þar að auki er farið fram á að barna­bætur hækki, dregið verði úr skerð­ingum á þeim, að verð­trygg­ing á neyt­enda­lánum verði afnumin, fæð­ing­ar­or­lof lengd í sam­tals 18 til 24 mán­uði fyrir tvo for­eldra, og fleira.

Atvinnurekendum gert að borga kostnað launakrafna

Kröf­urnar gagn­vart Samtökum atvinnu­lífs­ins eru áður­nefndu lág­marks­laun, að launa­töflur verði ein­fald­aðar og álag fyrir vakta­vinnu hækka.

Sam­bandið fer fram á að inn komi ákvæði sem tak­marki heim­ildir atvinnu­rek­anda „til að gera húsa­leigu hluta af ráðn­ing­ar­kjörum.“ Gerð er krafa um að húsa­leiga „sé ekki rukkuð nema sam­kvæmt þing­lýstum húsa­leigu­sam­ingi, sé í sam­ræmi við eðli­legt leigu­verð og að umsamin upp­hæð húsa­leigu sé þá hluti af ráðn­ing­ar­samn­ingi sem stétt­ar­fé­lagi sé heim­ilt að skoða.“

Þar að auki er farið fram á atvinnu­sjúk­dómar verði við­ur­kenndir með skýr­ari hætti, að öll per­sónu­bundin rétt­indi miðuð við starfs­aldur hald­ist án skerð­inga milli atvinnu­rek­enda, að lág­marks­sumar­frí verði 25 dagar, fremur en 24 dagar, ásamt tveggja daga vetr­ar­or­lofi, og að eftir tveggja ára starfs­aldur verði upp­sagn­ar­frestur tveir mán­uðir.

Sekt­ar­á­kvæði skal einnig bætt inn vegna brota á ákvæðum kjara­samn­ings, en sam­bandið gerir kröfu um sekt í krónum miðað við kjara­samn­ings­brot sem „rennur í vinnu­deilu­sjóð við­kom­andi stétt­ar­fé­lags.“ Atvinnu­rek­endur skulu einnig bera „eðli­legan og fullan kostnað við gerð launa­krafna sem stétt­ar­fé­lag reisir fyrir félags­menn sína vegna van­gold­inna launa. Stétt­ar­fé­lag inn­heimtir þann kostnað beint af við­kom­andi atvinnu­rek­anda sem hluta af launa­kröfu.“

Lesa má kröfur Starfs­greina­sam­bands­ins hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjarabaráttan

Kjaraviðræður stranda á forsenduákvæðum og breiðfylkingin fundar um mögulegar verkfallsaðgerðir
GreiningKjarabaráttan

Kjara­við­ræður stranda á for­sendu­á­kvæðum og breið­fylk­ingin fundar um mögu­legar verk­falls­að­gerðir

Formaður VR fékk í gær sam­þykkta heim­ild til þess að grípa til aðgerða og félög innan breið­fylk­ing­ar­innar hafa blásið til fundar í dag þar sem rætt verður um næstu skref. Um tals­verðan við­snún­ing er að ræða frá því að kjara­við­ræður hófust fyrst. Nú hafa við­ræð­urnar harðnað og er það fyrst og fremst vegna ósættis um for­sendu­á­kvæði í langa­tíma­kjara­samn­ingnum.
Af hverju dó hamingjan milli breiðfylkingarinnar og Samtaka atvinnulífsins?
GreiningKjarabaráttan

Af hverju dó ham­ingjan milli breið­fylk­ing­ar­innar og Samtaka atvinnu­lífs­ins?

Allt annar tónn hefur verið í kjara­bar­átt­unni nú en síð­ustu miss­eri. Við­semj­endur ætl­uðu að taka höndum saman og auka stöð­ug­leika í efna­hags­líf­inu. En svo heyrð­ist lítið af fram­gangi. Í þess­ari viku var við­ræðum slitið og deil­unni vísað til rík­is­sátta­semj­ara. Margir klór­uðu sér í hausnum og spurðu hvað hefði eig­in­lega gerst? Svarið við því er: ansi margt.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár