Mynd: Heiða Helgadóttir

„Íhaldsöfl hafa alltaf sagt að róttækar breytingar séu ekki mögulegar“

Drífa Snædal hefur gefið kost á sér sem forseti Alþýðu­sambands Íslands, en hún hefur víðtæka reynslu af því að leiða félaga­samtök. Hún segist vilja sameina ólíkar raddir og beina þessari stærstu fjölda­hreyfingu landsins til að bæta lífsgæði með samtaka­mætti hennar.

Þegar Gylfi Arnbjörnsson lét vita í júní að hann ætlaði ekki að gefa kost á sér til endur­kjörs til forseta ASÍ leið ekki á löngu áður en fólk fór að hvetja Drífu Snædal til að gefa kost á sér, sem hún gerði einum og hálfum mánuði síðar. Kosningin fer fram á þingi ASÍ 24.–26. október, en Sverrir Mar Albertsson, framkvæmda­stjóri AFLs starfs­greina­sambands, hefur líka gefið kost á sér.

Drífa hefur lengst af, eftir að hún komst á legg, starfað fyrir félaga­samtök og fjölda­hreyfingar og með þeim. Hún var lengi tengd Vinstri grænum, en sagði sig úr flokknum þegar viðræður um ríkis­stjórnar­samstarf við Sjálfstæðis­flokkinn hófust. Síðustu sex ár hefur hún starfað sem framkvæmda­stjóri Starfs­greina­sambandsins og er talin líkleg til sigurs af mörgum í embætti forseta ASÍ, sökum reynslu sinnar og gilda.

Ólst upp við verka­lýðs­bar­áttuVerka­lýðs­mál voru til umræðu á heim­ili Drífu alla hennar barn­æsku.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár