Mosh-pittar, pólskt rokk og skrásetning bataferlis

Tón­leikar, við­burðir og sýn­ingar 28. sept­em­ber til 11. októ­ber.

Mosh-pittar, pólskt rokk og skrásetning bataferlis

Cloud Rat, Logn, Börn, AMFJ

Hvar? Húrra
Hvenær? 28. sept­em­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 1.500 kr.

Til­finn­inga- og kraft­mikla muln­ings­kjarna­tryll­ing­stríóið frá Michigan, Cloud Rat, heim­sækir Ísland í fyrsta sinn. Auk þess­ara tón­leika spilar sveitin líka 29. sept­em­ber á R6013 með Dead Herring, Dauð­yfl­unum og Gröfum, og svo 30. sept­em­ber í Keilusal Akranesi með Godchilla og Hark. Búast má við mörgum og stórum mosh-pittum á öllum þrennum tón­leik­unum.

RIFF 2018

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 27. sept.–7. okt.
Aðgangs­eyrir: 16.900 kr.

Alþjóð­lega kvik­mynda­há­tíðin í Reykja­vík er haldin í 15. skiptið og eru kvik­myndir frá Eystra­salts­lönd­unum í sviðs­ljós­inu í ár. Á hátíð­inni er sér­stök athygli lögð á heim­ild­ar­myndir og leiknar myndir sem láta sig sér­stak­lega varða mann­rétt­indi, lífs­gæði og umhverf­is­mál. Meðal sér­stakra heið­urs­gesta er danski leik­ar­inn Mads Mikk­el­sen.

Fly Me to the Moon

Hvar? Þjóð­leik­húsið
Hvenær? 28. sept.–11. nóv­em­ber
Aðgangs­eyrir: 6.200 kr.

Þetta leik­rit fjallar um tvær kjarna­konur sem hafa alltaf þurft að hafa fyrir líf­inu, en standa skyndi­lega frammi fyrir mögu­leik­anum á að eign­ast svo­lít­inn pen­ing með auð­veldum, en ólög­mætum hætti. Leikkon­urnar Anna Svava og Ólafía Hrönn eru í aðal­hlut­verki í þessum tví­leik eftir Marie Jones.

Einskismannsland – Ríkir þar fegurðin ein?

Hvar? Hafn­ar­húsið og Kjar­vals­staðir
Hvenær? Til 30. sept­em­ber
Aðgangs­eyrir: 1.650 kr.

Á þess­ari sýn­ingu er sjónum beint að verkum lista­manna sem end­ur­spegla tengsl Íslend­inga við víð­erni lands­ins og breyti­legt verð­mæta­mat gagn­vart nátt­úr­unni. Verk eftir fimmtán lista­menn eru til sýnis, en sýn­ingin er tví­skipt með sögu­leg verk á Kjar­vals­stöðum og verk af 21. öld­inni í Hafn­ar­húsi.

Kult

Hvar? Harpa
Hvenær? 30. sept­em­ber kl. 18.00
Aðgangs­eyrir: 9.990 kr.

Ein allra þekktasta hljóm­sveit Póllands, Kult, mun koma fram í fyrsta sinn á Íslandi. Fyrsta plata Kult kom út 1986 og hefur hljóm­sveitin spilað linnu­laust síðan þá sína blöndu af pön­k­rokki, nýbylgju-hljóm­borðs­tónum, djössuðum sax­ó­fón­leik og öðrum skrítnum hljóðum.

Véfréttir

Hvar? Lista­safn Íslands
Hvenær? 6. októ­ber til 27. jan­úar
Aðgangs­eyrir: 1.500 kr.

Á sýn­ing­unni verður fjöldi úrval­inna verka úr myndröð­inni Véfréttir (e. „Oracles“) sem Karl Ein­ars­son Dunganon gerði við ljóða­bálk sinn, Oracles of St. Kilda 1946–60, og telur um 250 verk. Myndefnið er fjöl­breytt, meðal ann­ars ýmiss konar dýr og furðu­verur, spú­andi eld­fjöll, fagrar konur og feng­sælir veiði­menn. Verkin eru öll svipuð að stærð, unnin á pappír með fjöl­breyttri gerð lita og lökkuð. 

Abraham Brody

Hvar? Mengi
Hvenær? 6. októ­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Fram­úr­stefnu­tón­skáldið og söngv­ar­inn Brody spil­aði á Lista­há­tíð Reykja­víkur í sumar og tók upp nýja plötu sína í Gróð­ur­hús­inu hljóð­veri í Reykja­vík. Í hljóð­heimi hans blandar Brody klass­ískum tón­stefum við til­komu­mikla raf­tón­list, en hann sækir mik­inn inn­blástur til goð­sagna heima­lands síns, Litháens. Platan „Crossings“ kemur út í nóv­em­ber, en hann mun spila efni af henni á þessum tón­leikum.

EMILIE

Hvar? Ljós­mynda­safn Reykja­víkur
Hvenær? Til 19. nóv­em­ber
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Í bata­ferl­inu eftir krabba­mein í sog­æða­kerf­inu vann ljós­mynd­ar­inn Emilie Dalum að ljós­mynda­seríu sem sam­anstendur af ljós­myndum sem hún tók á fimm mán­aða tíma­bili á meðan hún gekkst undir lyfja­með­ferð. Áhersla Emilie er á við­fangs­efnið fremur en loka­af­urð­ina sem leiðir af sér að mynd­bygg­ingin í verkum hennar er stundum skæld eða stutt­ara­leg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár