Svalasta mynd 10. áratugarins og sundlaugarbíó

Tón­leikar, við­burðir og sýn­ingar 21.-27. sept­em­ber.

Svalasta mynd 10. áratugarins og sundlaugarbíó

Pulp Fiction föstudagspartísýning

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 21. sept­em­ber kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 1.600 kr.

Pulp Fiction er í senn virð­ing­ar­vottur Quentin Tar­antinos fyrir áhrifa­völdum kvik­mynda­sög­unnar og sjálf áhrifa­valdur fyrir næstu kyn­slóð kvik­mynda­gerð­ar­manna. Hún bæði fangar and­rúms­loft 10. ára­tug­ar­ins og end­ur­skrifar hann það fyrir þær kyn­slóðir sem muna ekki eftir honum. Með öðrum orðum er mjög breiður hópur af áhorf­endum sem fíla hana og hún er til sýnis í sér­stakri föstu­dagspar­tí­sýn­ingu.

Sígildir sunnudagar: Sagan af dátanum

Hvar? Harpa
Hvenær? 23. sept­em­ber kl. 16.00
Aðgangs­eyrir: 3.500 kr.

Á fyrstu tón­leikum starfs­árs­ins leikur Kamm­er­sveit Reykja­víkur Söguna af dát­anum eftir Igor Stra­vin­sky. Verkið var frum­flutt fyrir 100 árum síðan í Lausanne í Sviss. Verkið samdi Stra­vin­sky við texta eftir C.F. Ramuz, sem byggði sög­una á gam­alli rúss­neskri þjóð­sögu; dát­inn Jósef selur djöfl­inum fiðlu sína í stað­inn fyrir óend­an­leg auð­æfi sem færir Jósefi síðan enga raun­veru­lega ham­ingju.

RIFF 2018

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 27. sept–7. okt
Aðgangs­eyrir: 16.900 kr.

Alþjóð­lega kvik­mynda­há­tíðin í Reykja­vík er haldin í 15. skiptið og eru kvik­myndir frá Eystra­salts­lönd­unum í sviðs­ljós­inu í ár. Á hátíð­inni er sér­stök athygli lögð á heim­ild­ar­myndir og leiknar myndir sem láta sig sér­stak­lega varða mann­rétt­indi, lífs­gæði, og umhverf­is­mál. Meðal sér­stakra heið­urs­gesta er danski leik­ar­inn Mads Mikk­el­sen. Að venju verða líka nokkrar óhefð­bundnar sýn­ingar, eins og hin árlega sund­lauga­sýn­ing, en í ár verður stór­myndin The Fifth Element varpað á tjald í gömlu innilaug Sund­hall­ar­innar 29. sept­em­ber klukkan 19:30.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár