Lokaði 10 ára gömlu frumkvæðismáli í fyrra

Málið varð­aði útgjalda­skuld­bind­ingar ráð­herra án skýrrar laga­stoðar rétt fyrir þing­kosn­ing­arnar 2007.

Lokaði 10 ára gömlu frumkvæðismáli í fyrra
Tryggvi Gunn­ars­son umboðs­maður Alþingis Mynd: Morgunblaðið/Eggert

Umboðs­maður Alþingis felldi niður 10 ára gam­alt frum­kvæð­is­at­hug­un­ar­mál í fyrra. Tilefni athug­un­ar­innar voru fréttir sem birt­ust í aðdrag­anda þing­kosn­ing­anna 2007, þegar góð­ærið stóð sem hæst, um að ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins hefðu und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingar og samn­inga um veg­legan rík­is­stuðn­ing við verk­efni félaga­sam­taka. Til að mynda höfðu Árni Mathiesen fjár­mála­ráð­herra og Guðni Ágústs­son land­bún­að­ar­ráð­herra gefið út vilja­yf­ir­lýs­ingu um 80 millj­óna styrk til upp­bygg­ingar hesta­í­þrótta­að­stöðu á Gadd­staða­flötum við Hellu í Rangár­þingi ytra. Var fram­lagið háð því að Stóð­hesta­stöð við Gunn­ars­holt yrði seld og full­yrt að fjár­mála­ráð­herra hefði fengið heim­ild fyrir sölu stöðv­ar­innar. 

„Ástæða þess að ég ákvað að hefja athug­un­ina var að ég taldi mig hafa orðið varan við að ráðuneyti og stofn­anir ríkis­ins hefðu í auknum mæli gert samn­inga við aðila utan stjórnsýslu­kerf­is­ins sem hefðu í för með sér fjárhags­legar skuld­bind­ingar fyrir ríkis­sjóð, stundum veru­legar, án þess að afstaða Alþingis hefði áður legið fyrir,“ segir í bréfi umboðs­manns Alþingis til ráðu­neyt­anna sem Stundin fékk afhent á grund­velli upp­lýs­inga­laga. Benti umboðs­maður á að með þessum athöfnum væru ráð­herrar að vekja vænt­ingar hjá borg­urum og félaga­sam­tökum um fjár­muni og fram­kvæmdir rík­is­ins án þess að lög­gjaf­inn hefði tekið afstöðu til máls­ins. 

Umboðs­maður hóf athug­un­ina þann 18. sept­em­ber 2007 en felldi hana ekki niður fyrr en með bréfi til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins og atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins þann 11. maí 2017. Þar kemur fram að í ljósi breyt­inga sem orðið hafa á lagaum­hverfi rík­is­fjár­mála og og lagaum­gjörðar samn­ings­gerðar hins opin­bera við einka­að­ila telji emb­ættið ekki til­efni til að halda athug­un­inni áfram. Beinir umboðs­maður því til ráðu­neyt­anna að við fram­kvæmd nýrra laga­á­kvæða um opin­ber fjár­mál og samn­ings­gerð verði hugað að þeim álita­efnum sem urðu til­efni frum­kvæð­is­máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnsýsla

Umboðsmaður taldi forræðið liggja hjá stjórnvaldinu en ekki ríkislögmanni
FréttirStjórnsýsla

Umboðs­maður taldi for­ræðið liggja hjá stjórn­vald­inu en ekki rík­is­lög­manni

Ákvörð­un­ar­vald um hvort bóta­skylda sé við­ur­kennd liggur hjá því stjórn­valdi sem bóta­kröfu er beint að og stjórn­völd hafa for­ræði á kröfu­gerð, rök­semdum og ágrein­ings­at­riðum þegar mál fara fyrir dóm­stóla. Þetta er afstaða umboðs­manns Alþingis sam­kvæmt ábend­inga­bréfi sem hann sendi heil­brigð­is­ráð­herra árið 2014, en for­sæt­is­ráðu­neytið gaf út yfir­lýs­ingu á föstu­dag þar sem fram kom að rík­is­lög­maður hefði „almennt for­ræði á kröfu­gerð og fram­setn­ingu hennar“.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár