Norskur harmleikur og norræn gersemi

Tón­leikar, við­burðir og sýn­ingar 7.–20. sept­em­ber.

Norskur harmleikur og norræn gersemi

Utøya 22. júlí

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? Er í sýn­ingu.
Aðgangs­eyrir: 1.600 kr.

Þann 22. júlí 2011 voru um 650 ung­menni í póli­tískum sum­ar­búðum á eyju fyrir utan Ósló þegar vopn­aður krist­inn hægri­s­inn­aður hryðju­verka­maður réðst á þau. Í þess­ari mynd er fylgst með hinni 18 ára skáld­uðu per­sónu, Kaja, en myndin ger­ist í raun­tíma.

Annað rými

Hvar? Nýlista­safnið
Hvenær? 6. sept­em­ber–28. októ­ber
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Verk Eyglóar Harð­ar­dóttir á sýn­ing­unni Annað rými eru í stöðugri þróun. Á sinn hátt minnir ferlið á vöxt krist­alla, sem kallar á við­brögð umhverf­is­ins við hverja hreyf­ingu og við­bótarörvun. Sumum verk­anna tekst að ögra rým­inu og gefa okkur hug­mynd um aðra mögu­leika, á meðan önnur gefa því ákveðna stað­fest­ingu og auka með­vit­und okkar um það.

Allt sem er frábært

Hvar? Borg­ar­leik­húsið
Hvenær? 14.–27. sept­em­ber
Aðgangs­eyrir: 6.550 kr.

Ungur sonur bregst við myrkum hugs­unum móður sinnar með því að búa til lista yfir allt sem er gott í heim­inum og gerir lífið þess virði að lifa. Tuttugu árum síðar er list­inn enn að lengj­ast, lif­andi áminn­ing um að gleði er ekki síst að finna í því sem virð­ist létt­vægt. Valur Freyr Ein­ars­son stendur einn á svið­inu í þessum ein­leik.

Ronja Ræningjadóttir

Hvar? Þjóð­leik­húsið
Hvenær? 15. sept­em­ber–30. des­em­ber
Aðgangs­eyrir: 4.500 kr.

Ronja Ræn­ingja­dóttir eftir Astrid Lindgren er ein af mik­il­væg­ustu barna­bókum heims­ins, en þessi nor­ræna menn­ing­ar­ger­semi ratar á stóra svið Þjóð­leik­húss­ins. Salka Sól fer með hlut­verk Ronju, en einnig koma fram Sigurður Þór Ósk­ars­son, Örn Árnason, Vigdís Hrefna Páls­dóttir, Edda Björg­vins­dóttir og fleiri stjörnur.

Midgard 2018

Hvar? Laug­ar­dals­höll
Hvenær? 15.–16. sept­em­ber
Aðgangs­eyrir: 8.000 kr.

Hingað til hafa ein­stak­lingar þurft að herja á erlenda grundu til að sækja ráð­stefnur um mynda­sögur, borð­spil og önnur nör­da­leg áhuga­mál, en í ár hefur hópur slíkra ein­stak­linga sam­einað krafta sína til að halda Midgard-ráð­stefn­una. Haldin verður bún­inga­keppni og keppnir í borð- og her­spilum, auk margra fyr­ir­lestra og nám­skeiða.

Skátar, bagdad brothers, Man Kind

Hvar? Húrra
Hvenær? 19. sept­em­ber kl. 21.00

Ærsla­fullu strák­arnir í Skátum hafa snúið aftur til leiks eftir langt hlé og eru farnir að troða upp úr á ný. Búast má við því að þurfa að mæta í dans­skónum, þar sem að með þeim spila nostal­gíu-popp­ar­arnir bagdad brothers og rokk­ar­arnir í Man Kind.

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár