Reykjavíkurborg birti lista yfir forréttindi hvítra, karla og gagnkynhneigðra

Hægri­menn eru óánægðir með listana sem hafa verið not­aðir til að vekja starfs­menn til umhugs­unar um eigin for­rétt­indi og um for­dóma og staðalí­myndir sem þríf­ast í sam­fé­lag­inu.

Reykjavíkurborg birti lista yfir forréttindi hvítra, karla og gagnkynhneigðra

Á vef Reykja­vík­ur­borgar má finna svo­kall­aða „for­rétt­inda­lista“ (e. pri­vi­lege lists) sem not­aðir hafa verið til að vekja fólk til umhugs­unar um eigin for­rétt­indi og um for­dóma og staðalí­myndir sem þríf­ast í sam­fé­lag­inu.

List­arnir hafa vakið nokkra athygli og umtal á sam­fé­lags­miðlum und­an­farna daga þar sem skiptar skoð­anir eru um efnið. Sumir hvetja önnur sveit­ar­fé­lög til að fara að for­dæmi Reykja­vík­ur­borgar, en öðrum líst ekki á blik­una. 

Þannig spyr t.d. einn Twitter-not­andi hvort Reykja­vík­ur­borg sé orðin „meira crazy en meira að segja Trump?“. Ingvar Smári Birg­is­son, for­maður Sambands ungra sjálf­stæð­is­manna, tekur undir gagn­rýn­ina. „Þetta virð­ist hafa verið þýtt af ein­hverri SJW [e. social justice warrior] síðu í Banda­ríkj­unum og virkar satt að segja bara eins og slæm satíra hérna á Íslandi. Fárán­legt að skattfé RVK fari í svona,“ skrifar hann. Agnar Tómas Möller, fram­kvæmda­stjóri sjóða hjá GAMMA, gerir grín að list­unum og segir greini­lega fulla ástæðu til að „leyfa sér að vera með sam­visku­bit, í a.m.k. nokkra daga“. Aðrir velta því upp hvort list­arnir séu ef til vill gagn­legir sem tæki til að vekja fólk til með­vit­undar um úrelt við­horf. 

Auður Magndís Auð­ar­dóttir, sem starf­aði sem verk­efna­stjóri Jafn­rétt­is­skóla Reykja­víkur, tók for­rétt­inda­listana saman en um er að ræða þýð­ingu og stað­færslu erlendra lista.  Jafn­rétt­is­skól­inn var settur á fót árið 2013 með það fyrir augum að miðla þekk­ingu á jafn­rétt­is­málum til leik­skóla, grunn­skóla og frí­stunda­mið­stöðva Reykja­vík­ur­borgar. 

Uppfært:

Auður bendir á í tölvu­pósti til Stund­ar­innar að sam­kvæmt aðal­námskrá feli jafn­rétt­is­menntun í sér „gagn­rýna skoðun á við­teknum hug­myndum í sam­fé­lag­inu og stofn­unum þess í því augna­miði að kenna börnum og ung­mennum að greina þær aðstæður sem leiða til mis­mun­unar sumra og for­rétt­inda ann­arra“. Í ljósi þess liggi beint við að mann­eskja sem er ráðin til að styðja fólk í skóla- og frí­stunda­starfi til að vinna að jafn­rétt­is­málum sam­kvæmt aðal­námskrá fræði um for­rétt­indi.

Kolbrún Hrund Sig­ur­geirs­dóttir, núver­andi verk­efna­stýra jafn­rétt­is­mála hjá Reykja­vík­ur­borg, sendi Stund­inni tölvu­póst þar sem hún segir að list­arnir séu ekki liður í jafn­rétt­is­fræðslu borg­ar­innar. „Auður Magndís var verk­efna­stýra jafn­rétt­is­skól­ans og þýddi hún þessa lista fyrir 5 árum síðan til að nota á nám­skeiði um for­rétt­indi og mis­munun með starfs­fólki á skóla- og frí­stunda­sviði. List­arnir voru eitt af verk­efnum nám­skeiðs­ins, og settir á vef­inn ásamt öðrum verk­efnum og glærum frá nám­skeið­inu. Þeir voru ekki settir á vef­inn núna, til að vekja borg­ar­búa til umhugs­unar!“ skrifar hún. 

Hún segir listana hafa verið hugs­aða sem kveikja að umræðum þar sem þátt­tak­endur á nám­skeið­inu ræddu m.a. hvað af atriðum list­ans ættu við um íslenskan veru­leika og hvað ekki. „List­arnir voru svo sann­ar­lega ekki settir fram með það í huga að um ein­hvern sann­leik væri að ræða heldur ein­göngu til að fá þátt­tak­endur til að velta for­rétt­indum fyrir sér og koma góðri umræðu af stað. For­rétt­inda­list­arnir voru ekki not­aðir með börnum í skóla­starfi heldur starfs­fólki sem hefur það hlut­verk að skapa umhverfi þar sem öll börn fá notið sín óháð ytri breytum.“

Hér má sjá for­rétt­inda­listana í heild:

Forréttindi karla

1) Það er lík­legt að ég fái meira borgað fyrir sömu vinnu og kven­kyns sam­starfs­maður minn vinnur.

2) Vinir og ætt­ingjar mínir eru lík­legri til að ráð­leggja mér að biðja um hærri laun heldur en konu með sömu hæfni, menntun og reynslu.

3) Atvinnu­rek­endur eru lík­legri til að bjóða mér hærri laun heldur en konu með sömu hæfni, menntun og reynslu.

4) Þegar ég held erindi er lík­legt að ræðupúltið henti minni hæð.

5) Þegar fjallað er um þjóð­menn­ingu okkar er sagt frá því að fólk af mínu kyni hafi skapað hana.

6) Það eru miklu minni líkur á að ég verði fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni í vinn­unni heldur en kven­kyns sam­starfs­fólk mitt.

7) Það eru miklu minni líkur á að ólyfjan sé byrlað í drykk­inn minn á skemmti­stað heldur en í drykk vin­konu minnar.

8) Það eru miklu minni líkur á að mér verði nauðgað eða ég beittur öðru kyn­ferð­is­of­beldi heldur en konur í kringum mig.

9) Ég get kennt börnin mín við mig, jafn­vel þó ég sé í sam­búð með hinu for­eldri þeirra, án þess að vera álit­inn sjálf­hverfur og öfga­fullur.

10) Þegar fólk hlustar á mig spila á hljóð­færi, finnst því ég spila betur heldur en jafn­hæf kven­kyns tón­list­ar­kona.

11) Ef ég vinn sama verk­efni og kona, og verk­efnið er að ein­hverju leyti metið út frá hug­lægum þáttum, er lík­legt að fólki finn­ist ég hafa unnið verk­efnið betur.

12) Karl­mennska mín eða eðli er ekki dregið í efa ef ég kýs að eign­ast ekki börn.

13) Ef ég kýs að eign­ast börn og huga að starfs­frama um leið finnst fáum ég vera eig­in­gjarn fyrir að vinna langan vinnu­dag.

14) Þegar ég bið um að fá að ræða við yfir­mann­inn er lík­legt að ég hitti mann­eskju af sama kyni og ég. Því hærra settur sem yfir­maður er, því lík­legra er það.

15) Þegar ég var barn mátti ég koma við kyn­færi mín og kanna þau í meira mæli en stúlkur í kringum mig máttu varð­andi sín kyn­færi.

16) Þegar ég var barn gat ég notað hlut­laust og skamm­laust orð yfir kyn­færin á mér og haldið áfram að nota það fram á full­orð­insár

17) Þegar ég var barn er lík­legt að ég hafi fengið meiri athygli frá kenn­ur­unum mínum og þurft að bíða skemur eftir við­brögðum frá honum heldur en kven­kyns sam­nem­endur mínir. 

18) Þó ég eign­ist marga rekkju­nauta verð ég ekki lít­il­lækk­aður og kall­aður hóra, dræsa eða drusla.

19) Ég þarf ekki að hafa áhyggjur af þeim skila­boðum sem ég sendi með klæðn­aði mínum um hversu til­bú­inn ég er til að stunda kyn­líf

20) Skórnir mínir eru oft­ast þægi­legir, jafn­vel spari­skórnir.

21) Per­sónu­legt hrein­læti og snyrt­ing sem sam­fé­lagið býst við af mér er frekar ódýr og tekur stuttan tíma.

22) Ég get verið hávær án þess að eiga það á hættu að vera lít­il­lækk­aður með því að vera kall­aður brussa eða skass. Ég get verið ákveð­inn og fylg­inn mér án þess að eiga það á hættu að vera kall­aður frekja eða tík.

23) Ég get verið viss um að fólk talar til mín með því mál­fræði­lega kyni sem á við um mig per­sónu­lega og það er lík­legt að mál­fræði­legt kyn starfs­heitis míns passi við mitt eigið kyn. „Allir eru jafnir“ „Allir vel­komnir“

24) Geta mín til að taka mik­il­vægar ákvarð­anir og hæfi mitt almennt séð er aldrei dregið í efa vegna þess hvaða tími mán­að­ar­ins er.

25) Ákvörðun um að ráða mig til starfa er sjaldnar háð því hvort ég ætla að eign­ast börn í nán­ustu fram­tíð.

26) Ef ég bý með konu er lík­legt að við höfum skipt á milli okkar verkum þannig að hún geri meiri­hlut­ann af hús­verk­unum, sér­stak­lega þeim sem eru ein­hæf og ekki var­an­leg.

27) Í mat­ar­boðum og jóla­boðum er lík­legt að bæði konur og karlar ætlist til minna vinnu­fram­lags af mér hvað varðar und­ir­bún­ing og frá­gang heldur en af konum í boð­inu.

Forréttindi gagnkynhneigðra

1) Ég get verið viss um að sam­starfs­fólki mínu finnst kyn­hneigð mín í góðu lagi

2) Mín kyn­hneigð er oft sýnd í afþrey­ing­ar­efni.

3) Þegar ég tala um gagn­kyn­hneigð mína (t.d. sem part af brand­ara eða þegar ég ræði um sam­bönd mín) get ég verið viss um að eng­inn ásakar mig um að troða kyn­hneigð minni upp á annað fólk.

4) Ég þarf ekki að ótt­ast það að það hafi nei­kvæðar afleið­ingar fyrir mig þegar fjöl­skylda mín eða vinir finna út hver kyn­hneigð mín er. Þær afleið­ingar geta verið til­finn­inga­legar, lík­am­legar eða fjár­hags­legar.

5) Ég ólst ekki upp við að kyn­hneigð mín væri skammar­yrði.

6) Fólk telur ekki að ástæða kyn­hneigðar minnar geti verið sú að ég hafi verið mis­notuð/aður, brengluð/aður eða sé and­lega óstöðug/ur.

7) Ég upp­lifi aldrei, t.d. á manna­mótum, að vera ein­angruð/aður, ótta­slegin, særð/ur, í minni­hluta eða útlokuð/aður vegna kyn­hneigðar minnar.

8) Ég er aldrei beðin/n um að tala fyrir hönd allra gagn­kyn­hneigðra.

9) Ég get verið viss um að náms­efni og annað les­efni stað­festi til­vist fólks með mína kyn­hneigð.

10) Fólk spyr mig ekki hvers vegna ég hafi valið þessa kyn­hneigð.

11) Fólk spyr mig ekki hvers vegna eða hvenær ég hafi valið að opin­bera kyn­hneigð mína.

12) Fólk spyr mig ekki hvernig börnin mín voru getin.

13) Fólk hefur ekki áhyggjur af því að börnin mín verði af sömu kyn­hneigð og ég, það þykir eðli­legt.

14) Fólk gerir ráð fyrir að ég sé þeirrar kyn­hneigðar sem ég er, jafn­vel áður en það kynn­ist mér.

15) Kyn­hneigð mín er ekki tengd við skápa.

16) Fólk reynir ekki að sann­færa mig um að skipta um kyn­hneigð.

17) Ég þarf ekki að verja gagn­kyn­hneigð mína.

18) Öll trú­fé­lög taka mér opnum örmum.

19) Ég get auð­veld­lega fundið með­ferð­ar­að­ila eða lækni sem vill og hefur þekk­ingu til að ræða um kyn­hneigð mína.

20) Ég get auð­veld­lega fundið kyn­fræðslu­efni fyrir fólk af minn kyn­hneigð.

21) Ég þarf ekki að ótt­ast að fólk áreiti mig vegna kyn­hneigðar minnar. 

22) Það hversu mikið eða lítið karl­mann­leg/ur/kven­mann­leg/ur ég kýs að vera er ekki sett í sam­hengi við kyn­hneigð mína.

23) Ég er ekki skil­greind/ur út frá kyn­hneigð minni

24) Ég get verið viss um að ef ég þarf laga­lega aðstoð eða þarf að nota heil­brigð­is­kerfið, þá muni kyn­hneigð mín ekki vinna gegn mér.

25) Ef dag­ur­inn, vikan eða árið hefur gengið illa hjá mér þarf ég ekki að spyrja sjálfa/n mig að því hvort það hafi eitt­hvað með kyn­hneigð mína að gera.

26) Ég get gengið út frá því að á meðal sam­starfs­fólks míns og yfir­manna sé fólk af sömu kyn­hneigð.

27) Ég get verið á almanna­færi með maka mínum án þess að fólk glápi á okkur.

28) Ég get kysst maka minn á almanna­færi, jafn­vel oftar en einu sinni á ári, án þess að fólki finn­ist ég vera klám­fengin/n eða með áróður fyrir gagn­kyn­hneigð.

29) Ég get ferð­ast til hvaða lands sem er í heim­inum með maka mínum án þess að þurfa að hafa áhyggjur af við­brögðum sam­fé­lags­ins við kyn­hneigð minni.

30) Ég get gist á hvaða hót­eli sem er í heim­inum með maka mínum án þess að þurfa að hafa áhyggjur af við­brögðum umhverf­is­ins eða því hvort við getum pantað her­bergi með hjóna­rúmi.

31) Hegðun mín er ekki tekin sem dæmi um hegðun alls gagn­kyn­hneigðs fólks.

32) Ég þarf ekki að útskýra kyn­hneigð mína fyrir fólki.

33) Ég get ætt­leitt börn erlendis frá. 

Hvít, íslensk forréttindi

1) Ég get auð­veld­lega komið því við að ég sé í félags­skap fólks sem hefur sama húð­lit eða er af sama upp­runa og ég.

2) Ég get farið að versla án þess að vera elt/ur af afgreiðslu­fólki eða áreitt/ur.

3) Ég get kveikt á sjón­varp­inu eða lesið for­síður dag­blaða og séð fólk sem er með sama húð­lit eða er af sama upp­runa og ég.

4) Þegar ég læri um þjóð­menn­ingu okkar er mér kennt að fólk með minn húð­lit eða af mínum upp­runa hafi skapað hana

5) Ég get verið viss um að börnin mín fái náms­efni sem fjallar um fólk með þeirra húð­lit eða upp­runa.

6) Ég get farið í tón­list­ar­verslun og fundið tón­list minnar menn­ingar, í hvaða mat­vöru­verslun sem er og fundið mat­inn sem ég ólst upp við að borða eða á hár­greiðslu­stofu og fundið mann­eskju sem kann að fara með hár eins og mitt.

7) Ég get verið viss um að húð­litur minn vinnur ekki gegn láns­hæfi mínu.

8) Ég get látið mig ras­isma varða, án þess að það sé litið svo á að ég sé sjálfsmiðuð/aður eða eig­in­hags­muna­seggur.

9) Ég get verið seinn á fund án þess að það sé sett í sam­hengi við húð­lit minn eða upp­runa

10) Ég er aldrei beðin/n um að tala fyrir hönd alls hvíts fólks.

11) Ég get verið nokkuð viss um að ef ég bið um að fá að tala við yfir­mann­inn, þá sé hann eða hún með sama húð­lit og ég og af sama upp­runa.

12) Ef ég er stoppuð/aður af lög­regl­unni í reglu­bundnu eft­ir­liti get ég verið viss um að hafa ekki verið stoppuð/aður vegna húð­litar míns eða upp­runa.

13) Ég get auð­veld­lega keypt póst­kort, mál­verk, mynda­bækur, dúkkur og leik­föng sem sýna fólk með minn húð­lit eða af mínum upp­runa.

14) Ég get gengið inn á fund og ekki verið eina mann­eskjan með minn húð­lit á svæð­inu

15) Ég get stundað háskóla­nám og verið viss um að meiri­hluti nem­enda og kenn­ara eru af sama húð­lit og sama upp­runa og ég.

16) Fólk spyr mig ekki hvaða ég er „upp­runa­lega“

17) Fólk verður ekki hissa þegar ég tala „rétta“ íslensku

18) Fólk segir mér ekki að fara heim því ég eigi ekki heima á Íslandi

Forréttindi sískynja-fólks (e. Cisgendered)

1) Fólk gerir ekki ráð fyrir að það megi spyrja mig hvernig kyn­færi mín líta út eða hvernig ég stunda kyn­líf

2) Gildi mitt sem konu/karls er ekki háð því hversu margar aðgerðir ég er búin að fara í né hversu „eðli­leg/ur“ kona/karl ég lít út fyrir að vera.

3) Þegar ég er að reyna við ein­hvern þarf ég ekki að hafa áhyggjur af því að við­kom­andi muni ekki höndla það hvernig kyn­færi mín eru.

4) Fólk sem ég stunda kyn­líf með þarf yfir­leitt ekki að efast um kyn­hneigð sína vegna þess.

5) Ég get gengið að því sem vísu að finna fata- og sturtu­klefa við mitt hæfi á sund­stöðum, gufu­böðum og heilsu­lindum.

6) Fólk spyr mig ekki hvort ég sér búin/n að fara í aðgerЭINA?

7) Fólk segir ekki við mig eða um mig að raun­veru­lega sé ég af því kyni sem mér finnst ég ekki til­heyra.

8) Ég þarf ekki að verja ákvarð­anir sem ég tek varð­andi heilsu­far mitt fyrir öðru fólki.

9) Fólk spyr mig ekki hvert „alvöru“ nafnið mitt er eða hvað ég hafi heitið áður.

10) Fólk notar ekki óvið­eig­andi per­sónu­fornöfn eða rangt mál­fræði­legt kyn um mig, jafn­vel eftir að ég hef bent þeim á hvernig ég kýs að fólk tali um og við mig.

11) Ég get gengið að því sem vísu að finna sal­erni við mitt hæfi hvar sem er.

12) Hommar, les­b­íur og tví­kyn­hneigt fólk reynir ekki að úti­loka mig frá sinni bar­áttu eða félögum til að öðl­ast sam­fé­lags­lega við­ur­kenn­ingu sem „venju­legt“ fólk.

13) Það er ekki litið á kyn­vit­und mína sem „far­angur“ af öðru fólki.

14) Mér er ekki sagt að kyn­vit­und mín og kyn­hneigð fari ekki saman.

15) Þegar ég fer í rækt­ina, þá get ég farið í sturt­una á staðnum á eftir.

16) Það er ekki litið á öll mín heilsu­fars­legu vanda­mál sem afleið­ingar kyns míns (stíflað nef? Það er örugg­lega út af horm­ón­unum).

17) Heil­brigð­is­kerfið lítur ekki á mig sem geð­veika/n vegna kyns míns.

18) Þess er ekki kraf­ist að ég fari í viða­mikið sál­fræði­legt mat áður en ég fæ grund­vallar heil­brigð­is­þjón­ustu.

19) Heil­brigð­is­kerfið tekur ekki ákvarð­anir fyrir mig um hvað ég geri við lík­ama minn.

20) Ég þarf ekki að bíta í tung­una á mér þegar fólk notar frasa eins og „bæði kynin“. 

Forréttindi ófatlaðra

1) Ég get auð­veld­lega keypt eða leigt hús með góðu aðgengi fyrir mig.

2) Ég get verið viss um að allt hverfið mitt, skóli barn­anna minna, göngu­stígar, garðar, opin­berar bygg­ingar, versl­anir og veit­ing­ar­hús séu aðgengi­leg fyrir mig.

3) Ég get farið að versla ein/n og verið viss um að lenda ekki í ves­eni vegna þess að ekki er gert ráð fyrir að fólk með mína lík­am­legu færni versli eitt síns liðs.

4) Ég get kveikt á sjón­varp­inu eða opnað dag­blað og séð fólk sem hefur svip­aða lík­am­legu færni og ég.

5) Þegar ég lærði sögu í skóla var fólk með svip­aða lík­am­lega færni og ég vel sýni­legt.

6) Skóla­kerfið kynnti fyrir mér fyr­ir­myndir sem voru með svip­aða lík­am­lega færni og ég.

7) Ég get blótað, klætt mig í snjáð föt eða verið í vondu skapi án þess að fólk setji það í sam­hengi við lík­am­lega færni mína.

8) Mér getur gengið vel í erf­iðum aðstæðum án þess að vera sagt að ég sé inn­blástur og hvatn­ing fyrir annað ófatlað fólk.

9) Ég er aldrei beðin um að tala fyrir hönd allra ófatl­aðra

10) Nær alltaf þegar ég bið um að fá að ræða við yfir­mann­inn, mun ég hitta mann­eskju sem er með svip­aða lík­am­lega færi og ég.

11) Ég get auð­veld­lega orðið mér úti um félags­skap fólks sem hefur svip­aða lík­am­lega færni og ég.

12) Ég get keypt póst­kort, bækur, dúkkur og leik­föng sem sýna fólk með svip­aða lík­am­lega færni og ég.

13) Ef ég er rekin/n, fæ ekki kaup­hækkun eða er ekki ráðin til starfs þá þarf ég ekki að velta því fyrir mér hvort það sé vegna þess að fólki finnst ég líta út fyrir að vera ófær um að gegna starf­inu.

14) Hugtök sem skapa stóran part sjálfs­skiln­ing míns eru ekki notuð sem skammar­yrði í dag­legu tali fólks (fötluð, spastísk, þroska­heftur)

15) Það eru miklu minni líkur á að ég verði fyrir ofbeldi heldur en fötluð mann­eskja, sér­stak­lega ef sú mann­eskja er kven­kyns en ég karl­kyns.

16) Það þykir sjálf­sagt að ég ákveði sjálf/ur hvenær ég fer í bað, hvenær ég fer á fætur, hvenær ég hátta mig, hvenær og hvað ég borða og með hverjum ég bý.

17) Ég get farið í leik­hús, á tón­leika eða í bíó án þess að hafa áhyggjur af því hvort ég kom­ist inn í sal­inn

18) Ég get verið eins lengi úti á kvöldin og nótt­unni og mig lystir án þess að þurfa að hafa áhyggjur af því hvernig ég kemst heim. 

Hér má sjá skjalið sem birt­ist á vef Reykja­vík­ur­borgar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynjamál

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár