Þingmaður segir líf manna eyðilagt með ásökunum

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gagn­rýnir háskóla­sam­fé­lagið og lög­menn fyrir að beita sér ekki gegn „ofstæki“ þeirra sem „koma fram með ásak­anir af þessu tagi“.

Þingmaður segir líf manna eyðilagt með ásökunum
Segir líf manna eyðilögð Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir líf manna eyðilögð með ásök­unum fólks á hendur þeim, um refsi­verða hátt­semi.

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fer hörðum orðum um fólk sem kvartað hefur opin­ber­lega undan kyn­ferð­is­brotum gegn sér, sem ekki hafa verið til lykta leidd fyrir dómi. Brynjar telur þolend­urna eyði­leggja líf ann­arra með ásök­unum á opin­berum vett­vangi.

Hann nefnir sem dæmi umfjöllun um hátt­erni lands­liðs­þjálf­ara kvenna í knatt­spyrnu, mál fyrr­ver­andi bisk­ups og ásak­anir kvenna á hendur Gunnari í Kross­inum.

Þing­mað­ur­inn gagn­rýnir fjöl­miðla fyrir að fjalla um ásak­anir sem ekki hefur verið sak­fellt vegna fyrir dóm­stólum og hneyksl­ast á því að stjórn­mála­menn, lög­manna­stéttin og háskóla­sam­fé­lagið beiti sér ekki gegn ásök­unum og umfjöllun af þessu tagi. 

Þetta kemur fram í skrifum Brynjars á Facebook í dag. Færslan hefur verið sett í sam­hengi við umfjöllun sem DV birti í morgun um fyrr­ver­andi dóm­kirkju­prest sem gekkst við því að hafa framið kyn­ferð­is­brot gegn barni en fékk engu að síður að halda áfram að predika og sjá um kirkju­at­hafnir. Áður hafði Stundin fjallað ítar­lega um málið án þess að nafn­greina prest­inn.  

Hér má sjá færslu Brynjars:

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata sem nýlega tók við for­mennsku í laga- og mann­rétt­inda­nefnd Evr­ópu­ráðs­ins, innir Brynjar eftir dæmum og skýr­ingum. Hann bregst við með eft­ir­far­andi hætti:

Brynjar hefur áhyggjur af því að fólk „eyði­legg[i] líf manna“ með ásök­unum um eitt­hvað sem gerst hafi mörgum árum áður. Í þessu sam­hengi er vert að skoða dæmin sem Brynjar tekur. 

Gunnar Þor­steins­son, kenndur við trú­fé­lagið Krossinn, var sak­aður um kyn­ferð­is­brot af fimm konum árið 2010. Meint brot voru fyrnd í ljósi þess hve langt var liðið síðan þau áttu að hafa verið framin en fjallað var umtals­vert um málið í fjöl­miðlum. Gunnar fór fram á 15 millj­óna króna skaða­bætur frá Press­unni, frétta­stjóra og tveimur konum sem ásök­uðu hann, en Hér­aðs­dómur Reykja­víkur komst að þeirri nið­ur­stöðu að ekki bæri að greiða honum skaða­bætur, þótt nokkur ummæli væru dæmd dauð og ómerk.

Mál „fyrr­ver­andi bisk­ups“ sem Brynjar vísar til er tals­vert eldra. Fjöldi kvenna sak­aði Ólaf Skúlason, þáver­andi biskup, um kyn­ferð­is­brot á síð­asta ára­tug síð­ustu aldar. Mörgum árum síðar lýsti Guðrún Ebba Ólafs­dóttir, dóttir Ólafs, því hvernig hann hefði brotið gegn henni. Konurnar fengu greiddar sann­girn­is­bætur frá kirkj­unni árið 2011. 

Nýjasta málið sem Brynjar tekur sem dæmi eru ásak­anir Þóru Bjargar Helga­dóttur, fyrr­ver­andi lands­liðs­konu í knatt­spyrnu, á hendur fyrr­ver­andi þjálf­ara liðs­ins sem hún sagði til að mynda hafa drukkið illa í einni keppn­is­ferð­inni og reynt að fá leik­menn með sér inn á hót­el­her­bergið sitt. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynjamál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár