Útgáfutónleikar, samtal listaverka og sultuslök raftónlist

Tón­leikar, sýn­ingar, og aðrir menn­ing­ar­við­burðir 24. ágúst til 6. sept­em­ber.

Útgáfutónleikar, samtal listaverka og sultuslök raftónlist

Hórmónar útgáfutónleikar

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 24. ágúst kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 1.500 kr.

Femíníska pönk­sveitin Hórmónar fagnar í kvöld útgáfu fyrstu breið­skífu sinnar, en sveitin vann Mús­íktil­raunir 2016 og hefur síðan þá troðið upp á öllum helstu hátíðum lands­ins. Búast má við kraft­miklum hljóð­færa­leik og opin­skáum söng­textum um flókin kynja­hlut­verk og sam­bönd, reiði og þrá, póli­tíska rétt­hugsun, feg­urð og ljót­leika. Og fullt af pönki.

Seeing Believing Having Holding

Hvar? i8
Hvenær? 18. ágúst–27. októ­ber
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Verk fimm banda­rískra lista­manna eru sýnd á þess­ari síð­sum­ars­sýn­ingu, en þau eiga það öll sam­eig­in­leg að vera áþreif­an­leg sam­sett verk og myndir sem vekja efa­semdir í huga áhorf­and­ans um eðli þeirra. Áferðir og ásýndir verk­anna eru í mót­sögn, sem er í senn ádeila á stjórn­málaum­hverfi Banda­ríkj­anna.

Árstíðir – útgáfutónleikar

Hvar? Húrra 
Hvenær? 24. ágúst kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Hljóm­sveitin sem varð heims­fræg 2013 fyrir að flytja „Heyr himna smiður“ a capella á þýskri lest­ar­stöð er að fagna 5. breið­skífu sinni, „NIVALIS“, sem kom út fyrr í sumar. Á tón­leik­unum verða leikin vel valin lög af nýju plöt­unni í bland við eldra efni af 10 ára löngum ferli sveit­ar­innar. 

 

Innrás III: Matthías Rúnar Sigurðsson

Hvar? Ásmund­ar­safn
Hvenær? 18. ágúst–4. nóv­em­ber
Aðgangs­eyrir: 1.650 kr.

Innrás er sería þar sem lista­mönnum er boðið að setja upp verk sín í sam­tali við verk Ásmundar Sveins­sonar sem safnið er nefnt eftir. Í þess­ari þriðju sýn­ingu kall­ast klass­ísk hand­verks­notkun upp­renn­andi mynd­höggv­ar­ans Matth­í­asar Rúnars á við verk Ásmundar. Matthías heldur leið­sögn með sýn­ing­unni 2. sept­em­ber kl. 14.00.

The Vintage Caravan – útgáfutónleikar

Hvar? Iðnó 
Hvenær? 31. ágúst kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Þrí­menn­ing­arnir í rokksveit­inni The Vintage Caravan spila blús­rokk í anda Deep Purple og Led Zeppelin. Þrátt fyrir að eng­inn með­limur TVC hafi verið fæddur þegar áður­nefndu sveit­irnar hengdu upp hljóð­færi sín spila strák­arnir tón­list sína af mik­illi inn­lifun og skemmta sér kon­ung­lega við það. Fjórða plata þeirra, „Gateways“, verður spiluð í heild sinni á tón­leik­unum.

The Blair Witch Project – föstudagspartísýning! 

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 31. ágúst kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 1.600 kr.

Hroll­vekjan frá tíunda ára­tugnum, „The Blair Witch Project“, vakti mikla athygli fyrir útsmogna aug­lýs­inga­her­ferð og fram­sæk­inn upp­töku­stíl sem svipar til heim­ild­ar­myndar gerðrar af við­van­ingum. Myndin segir af ungu fólki sem hverfur við dul­ar­fullar aðstæður í skóg­lendi en ári síðar finn­ast mynd­banda­upp­tökur sem það gerði um ferða­lag sitt. 

Án titils – samtímalist fyrir byrjendur

Hvar? Hafn­ar­hús
Hvenær? 6. sept­em­ber kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 1.650 kr.

Sýningin er hluti af sýn­inga­röð í Hafn­ar­hús­inu fyrsta fimmtu­dag í hverjum mán­uði þar sem tekið er á móti þeim sem hafa áhuga á að kynna sér sam­tíma­list en eru byrj­endur á því sviði. Gestir fá inn­sýn í heim mynd­list­ar­innar, skoða nokkur verk á sýn­ingum og fá rými til að spjalla og spyrja spurn­inga um mynd­list.

Extreme Chill Festival 2018

Hvar? Harpa, Húrra, Gamla bíó og Frí­kirkjan
Hvenær? 6.–9. sept­em­ber
Aðgangs­eyrir: 8.900 kr.

Á þess­ari raf­mögn­uðu en í senn rólegu tón­list­ar­há­tíð koma fram 21 sveit á fjórum mis­mun­andi vett­vöngum. Á fyrsta kvöld­inu, sem haldið er í Kalda­lóni, sal Hörpu, koma fram raf­tón­list­ar­mað­ur­inn Sillus, hin þýska Katrin Hahner, kontra­bassa­spil­ar­inn Bára Gísla­dóttir og draum­kennda raf­sveitin aYia.

Til­kynn­ingar um áhuga­verða við­burði send­ist á stundarskra@stundin.is. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár