Guðmundur talinn „sjálfum sér samkvæmur“ en hugsanlegt að „fjölskyldan hafi talað sig saman um málsatvik“

Hér­aðs­dómur Reykja­ness telur að „nokkur lík­indi“ hafi verið færð að sekt stuðn­ings­full­trú­ans en ákæru­vald­inu hafi ekki „lán­ast sú sönnun“. Rétt­ar­gæslu­maður brota­þola hafði aldrei séð dag­bækur sem lagðar voru fram.

Guðmundur talinn „sjálfum sér samkvæmur“ en hugsanlegt að „fjölskyldan hafi talað sig saman um málsatvik“
Sýknaður í kyn­ferð­is­brota­máli Guð­mundur Ellert vann sem stuðn­ings­full­trúi hjá Reykja­vík­ur­borg.

Hér­aðs­dómur Reykja­ness telur ekki úti­lokað að fjöl­skylda tveggja barna sem sögðu frá meintu kyn­ferð­is­of­beldi Guð­mundar Ellerts Björns­sonar, fyrr­ver­andi stuðn­ings­full­trúa hjá Reykja­vík­ur­borg, hafi „að ein­hverju leyti talað sig saman um máls­at­vik“. Þetta kemur fram í sýknu­dóm­inum sem kveð­inn var upp á mánu­dag.

Ýmis gögn máls­ins og langur aðdrag­andi þess þóttu veikja mál­stað ákæru­valds­ins og var nið­ur­staðan sú að ekki teld­ist full­sannað að Guð­mundur hefði framið brotin sem honum voru gefin að sök. Hins vegar hefðu „nokkur lík­indi“ verið færð að sekt hans. 

„Að mati dóms­ins hefur ákæru­vald­inu ekki lán­ast sú sönnun í þessu til­viki,“ segir á einum stað í dóm­inum. Kemur þrisvar sinnum fram að dóm­ur­inn telji „lík­indi“ og „nokkur lík­indi“ hafa verið færð að sekt Guð­mundar.

Hins vegar standi orð gegn orði um það sem máli skipti og fyr­ir­liggj­andi sönn­un­ar­gögn nægi ekki til að slá því föstu með óyggj­andi hætti að Guð­mundur sé sekur. Því sé dóm­ar­anum „skylt að sýkna“ ákærða.

Lágu saman „líkt og kærustupar“ 

Í máli eins barn­anna er til­tekið sér­stak­lega að brota­þoli hafi fyrst sagt móður sinni frá meintu kyn­ferð­is­of­beldi árið 2012 en ekki fengið neina aðstoð vegna ofbeld­is­ins og afleið­inga þess fyrr en árið 2015. Leggur dóm­ur­inn áherslu á að und­ir­bún­ingur að kæru á hendur ákærða hafi staðið í tölu­verðan tíma áður en kæra var lögð fram til lög­reglu.

„Allt þetta telur dóm­ur­inn til þess fallið að draga úr trú­verð­ug­leika fram­burðar brota­þola og ætt­ingja hans í mál­inu, ljóst sé að umræða um málið hafi átt sér stað í fjöl­skyld­unni tölu­verðan tíma áður en rann­sókn lög­reglu hófst og því ekki loku fyrir það skotið að fjöl­skyldan hafi sam­mælst eitt­hvað um fram­burð sinn í mál­inu,“ segir í dóm­inum. 

Hér­aðs­dómi Reykja­ness þótti Guð­mundur Ellert vera „sjálfum sér sam­kvæmur og út af fyrir sig ekki ótrú­verð­ugur“ í málsvörn sinni. 

Guð­mundur við­ur­kenndi að hafa marg­sinnis deilt rúmi með börnum sem gistu hjá honum og sofið undir sömu sæng og eitt barnið í úti­legu. Gaf hann þær skýr­ingar að ekki hefði verið öðrum svefn­stöðum til að dreifa og að auka­sæng hefði gleymst í úti­leg­unni.

Eitt vitnið lýsti því hvernig Guð­mundur hefði „legið á hlið­inni með dreng­inn við hlið sér‚ líkt og kærustupar“ en sagð­ist ekki vita til þess að Guð­mundur bryti gegn börnum sem gistu hjá honum. 

Réttargæslumaðurinn hafði aldrei séð dagbækurnar

Sævar Þór Jónsson, rétt­ar­gæslu­maður tveggja brota­þol­anna, var kall­aður í vitna­stúku að kröfu verj­anda Guð­mundar. Tilefnið var að haft var eftir móður brota­þola í upp­lýs­inga­skýrslu lög­reglu að Sævar Þór hefði „bannað“ sér að afhenda lög­reglu dag­bækur sem hún kvaðst eiga í fórum sínum. Sævar hefði sjálfur ætlað að afhenda dag­bæk­urnar, og þegar þær bár­ust lög­reglu viku síðar hefði verið búið að rífa flestar blað­síð­urnar úr þeim. 

Sævar Þór Jónssonrétt­ar­gæslu­maður tveggja brota­þola

Sævar Þór neit­aði því að hafa bannað vitn­inu að afhenda dag­bæk­urnar og sagð­ist aldrei hafa séð þær. Umræddar dag­bækur voru lagðar fyrir rétt­inn og vant­aði þar flestar blað­síð­urnar. 

Er dag­bók­unum lýst með eft­ir­far­andi hætti í dóm­inum:

„Merkt hefur verið með áherslu­penna við nokkrar athuga­semdir í þessum bókum, þar sem fram kemur að brota­þoli hafi farið til ákærða eða ákærði komið til fjöl­skyld­unnar. Samkvæmt því sem þar má sjá fór brota­þoli til ákærða þrisvar árið 2005, þrisvar árið 2008 og einu sinni árið 2009. Auk þessa liggur fyrir ljós­rit úr dag­bók móður brota­þola fyrir 2. mars, en ekki kemur fram hvaða ár. Er þar fært inn að þann dag hafi brota­þoli tjáð móður sinni frá meintum brotum ákærða gegn sér.“

Vandmeðfarnar dagbækur

Fram kemur að í mál­inu liggi fyrir „skrif­leg frá­sögn móður brota­þola af atvikum 2. mars 2012, rituð að beiðni lög­fræð­ings í októ­ber 2016“. Hins vegar kann­ist Sævar Þór ekki við „að hafa haft frum­kvæði að gerð utan­rétt­ar­vott­orðs sem liggur fyrir í mál­inu und­ir­ritað af móður brota­þola“. Samkvæmt upp­lýs­ingum Stund­ar­innar fór annar lög­fræð­ingur með málið á þeim tíma, en fjöl­skyldan leit­aði síðar til Sævars.

Um vitn­is­burð móður brota­þol­anna segir meðal ann­ars: „Aðspurð hvort það væri rétt sem kemur fram í rann­sókn­ar­skýrslu lög­reglu að rétt­ar­gæslu­maður barna hennar hefði bannað vitn­inu að afhenda lög­reglu dag­bækur, sem hún hafði nefnt við lög­reglu, kvaðst vitnið hafa verið í sorg vegna and­láts [...] þegar þetta var og hún hefði sagt þetta við lög­regl­una til þess að losna við hana úr sím­anum. Hún hefði síðar beðið [...] og B, [...], að fara með bæk­urnar til Z, sam­starfs­manns rétt­ar­gæslu­manns­ins. Hún hefði sjálf rifið blöð úr dag­bók­unum, sem hefðu að geyma per­sónu­leg atriði.“ 

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem dag­bók­ar­skrif eru talin veikja mál­stað brota­þola og ákæru­valds­ins í kyn­ferð­is­brota­málum, en árið 2012 kvað Hæsti­réttur upp sýknu­dóm þar sem fram­burður brota­þola var, meðal ann­ars í ljósi dag­bók­ar­skrifa, ekki tal­inn eiga sér slíkar stoðir að hann nægði, gegn ein­dreg­inni neitun ákærða, til þess að ákæru­valdið hefði axlað sönn­un­ar­byrði sína. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynferðisbrot

Myndir af neyðarmóttöku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“
FréttirKynferðisbrot

Myndir af neyð­ar­mót­töku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lögreglu var heim­ilt að senda myndir sem teknar voru af Guðnýju S. Bjarna­dóttur á neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á verj­anda manns sem hún kærði fyrir nauðgun. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­verndar. Guðný segir ótækt að ger­endur í kyn­ferð­is­af­brota­málum geti með þessum hætti fengið aðgang að við­kvæmum myndum af þolendum. „Þetta er bara staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lög­regl­unnar.“

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár