Það sem Þórhildur Sunna ætlaði að segja á hátíðarfundi Alþingis

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir og aðrir þing­menn Pírata ákváðu að snið­ganga afmæl­is­há­tíð full­veld­is­ins vegna Piu Kjærs­gaard, þing­for­seta Dana. Hún hætti við að flytja ræðu um þá ógn sem heims­byggð­inni stafar af ras­isma, þjóð­rembu og ein­angr­un­ar­hyggju.

Það sem Þórhildur Sunna ætlaði að segja á hátíðarfundi Alþingis

Píratar hafa sætt harðri gagn­rýni vegna ákvörð­unar þing­flokks­ins um að snið­ganga hátíð­ar­fund Alþingis vegna ræðu­halda Piu Kjærs­gaard, þing­for­seta Dana.

Pia er þekkt fyrir útlend­inga­andúð, harða inn­flytj­enda­stefnu og bar­áttu gegn fjöl­menn­ingu og íslam. Töldu Píratar óboð­legt að mæta á fund­inn og heiðra „mann­eskju sem ber hvorki virð­ingu fyrir mann­eskjum af öðrum upp­runa en sínum eigin, né grunn­gildum allra heil­brigðra lýð­ræð­is­sam­fé­laga.“

Vísir greindi frá því á fimmtu­dag að Þór­hildur Sunna hefði ætlað að flytja ræðu þar sem þjóð­ern­ispopúl­ismi Piu Kjærs­gaard yrði gagn­rýndur. Eftir and­vaka­nótt hefðu hún og aðrir þing­menn ákveðið að rétt­ast væri að snið­ganga hátíð­ar­fund­inn. „Ég gat ekki, sam­visku minnar vegna, haldið ein­hverja ræðu, því sama hvað ég myndi gagn­rýna Piu mikið og það sem hún stendur fyrir, væri ég samt á sama tíma að normalísera það að hún skuli vera heið­urs­gestur á hátíð­ar­sam­komu full­veld­is­af­mæli Íslend­inga,“ sagði Þór­hildur við Vísi.is. 

Stundin fékk Þórhildi Sunnu til að flytja ræð­una, enda birt­ast þar þau sjón­ar­mið sem lágu til grund­vallar ákvörðun Pírata. Hér að neðan má sjá ræð­una ásamt dönskum texta, en fjallað hefur verið umtals­vert um við­brögð Íslend­inga við komu Piu Kjærs­gaard þar í heima­landi hennar.

Kæru Íslend­ingar,

Tilefni þess­arar hátíð­ar­sam­komu hér á Þing­völlum er að Ísland varð full­valda ríki fyrir hund­rað árum, eftir að und­ir­ritun og sam­þykkt Alþingis á sam­bands­lögum Íslands við Danmörku var sam­þykkt í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu þar um. Það er vissu­lega ærið til­efni til fagn­aðar. 

Alþingi sam­þykkti, þjóðin var spurð. Og þjóðin gaf alþingi sam­þykki sitt. Þá, og þá fyrst, varð Ísland full­valda þjóð. 

Fyrir ekki svo löngu kom for­ystu­fólk þeirra flokka, sem nú eiga full­trúa á Alþingi, sér saman um þá þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem við ræðum hér í dag. Þetta er góð til­laga um tvö afar ólík en að sama skapi ágæt mál. Hún gengur ann­ars vegar út á að koma – aftur – á fót barna­menn­ing­ar­sjóði, og hins vegar löngu tíma­bær smíði á nýju haf­rann­sókna­skipi. Og til­efnið er, sem fyrr segir, dag­ur­inn sem samn­ingur um sam­bands­lögin var und­ir­rit­aður af full­trúum Íslands ann­ars­vegar og nýlendu­veld­is­ins Dan­merkur hins­vegar.

Skipa­smíð­ar­innar hefur verið þörf lengi og það er okkur þess vegna bæði ljúft og skylt að styðja rík­is­stjórn­ina í þeirri fyr­ir­ætlan um að láta loks­ins verða af henni, sem reyndar hafði þegar birst í fjár­mála­á­ætlun.

Og með því að blása nýju lífi í lamaðan barna­menn­ing­ar­sjóð styðjum við það dýr­mætasta sem við eigum; því í börn­unum okkar býr sjálf fram­tíðin, og það er sann­ar­lega mik­il­vægt að rækta menn­ingu þeirra og lýð­ræðis­vit­und. Ég legg því glöð nafn mitt við þá ákvörðun að efla þann sjóð á ný.

En um leið hlýt ég að staldra við þá menn­ingu sem við, full­orðna fólkið, og þá sér í lagi við, vald­hafar þessa lands, búum börnum okkar á íslandi í dag og spyrja: Hvaða menn­ing­ar­legu fyr­ir­mynd bjóðum við íslenskum börnum upp á?

Ég spyr mig, hvort það sé til fyr­ir­myndar að vald­hafar þjóð­ar­innar fagni sjálf­stæði hennar 17. júní, afgirt, aðskilin og varin umgengni við íslenskan almenn­ing?

Ég spyr mig, hér og nú, hvort það sé til fyr­ir­myndar að við, kjörnir full­trúar íslensku þjóð­ar­innar, ásamt öðrum útvöldum full­trúum valds­ins, hér­lendis sem erlendis, röltum niður Almanna­gjá Þing­valla, vöggu lýð­ræð­is­ins, til að fagna full­veldi íslensku þjóð­ar­innar, en meinum þeirri sömu, full­valda þjóð, þeim sama almenn­ingi, að rölta niður sömu almanna­gjá hinnar full­valda, íslensku þjóðar?

Og ég spyr mig – og ykkur – hvort það sé við hæfi á hund­rað ára afmæli full­veld­is­ins, að vald­hafar geri ítrekað lítið úr rétt­mætum kröfum dýr­mætrar kvenna­stéttar sem gerir krafta­verk á hverjum degi?

Og ég spyr mig – og ykkur – hvers konar fyr­ir­myndir eru vald­hafar, sem sýna kon­unum sem taka á móti börn­unum okkar jafn mikla lít­is­virð­ingu og núver­andi, full­valda rík­is­stjórn gerir? 

Og ég spyr mig – og ykkur, full­valda, íslenska þjóð, hvað lesa ber í það, þegar íslenskir vald­hafar ger­ast sífellt fjand­sam­legri útlend­ingum sem hingað leita, til náms, til leiks og starfa og síð­ast en ekki síst, útlend­ingum sem hingað leita, sem hingað flýja, í leit að öryggi og friði? 

Því við bjóðum hætt­unni heim. Hættunni á ras­isma, þjóð­rembu  og ein­angr­un­ar­hyggju.

Bók­staf­lega. Ekki í formi flótta­fólks og hæl­is­leit­enda. Ekki í formi erlendra rík­is­borg­ara sem hingað leita eftir íslenskum rík­is­borg­ara­rétti í von um betra líf. Heldur í formi popúl­ískra og allt að því fasískra, nor­rænna stjórn­mála­manna, sem er boðið hingað sér­stak­lega í til­efni ald­ar­af­mælis íslensks full­veldis. Og við spyrjum okkur, eðli­lega, hvað lesa beri í það, þegar íslenskir vald­hafar bjóða hingað rasískum, allt að því fasískum, for­seta þings okkar gömlu herra­þjóðar, án nokk­urra fyr­ir­vara um, hvort við­kom­andi sé full­trúi lýð­ræð­is­legra gilda eða ómeng­aðs ras­isma? 

Því við skulum ekki fara í neinar graf­götur með það, góðir Íslend­ingar, að full­trúi danska þings­ins á þessu full­veldis-húll­um­hæi okkar er full­trúi úreltrar og for­kast­an­legrar kyn­þátta­hyggju. Fulltrúi þings okkar fornu nýlendu­herra, sem við buðum hingað í ein­hverju und­ar­legu þakk­læt­is­skyni fyrir eitt­hvað sem við Píratar áttum okkur ekki á, og sem ávarpar þessa sam­komu; hún er jafn­framt full­trúi ótt­ans, tor­tryggn­innar og hat­urs­ins; ótt­ans við hið óþekkta og tor­tryggn­innar og hat­urs­ins gagn­vart öllum þeim sem eru öðru­vísi.

Fulltrúi tor­tyggni og hat­urs í garð allra þeirra, sem ekki eru af hennar aríska upp­runa; allra, sem ekki eru dönsk. Í garð útlend­inga, sem sagt. Til dæmis Íslend­inga. Því það er nú svo, að nokkurn veg­inn alstaðar í heim­inum eru Íslend­ingar jafn útlenskir og Afganar, Rússar og Pakistanar. Jafnvel útlensk­ari.  

Við, Píratar á Alþingi Íslend­inga, hörmum og for­dæmum þátt­töku stofn­anda hins danska ras­ista­flokks Dansk fol­ke­parti í þessum sögu­legu hátíð­ar­höldum Alþingis hér á Þing­völlum, í til­efni eitt hund­rað ára full­veldis Íslands.

Um leið spyrjum við okkur óhikað um lýð­ræðis­vit­und og lýð­ræðis­vilja Alþingis almennt; Alþingis, sem nú hefur hundsað kröfu íslensku þjóð­ar­innar um nýja stjórn­ar­skrá í sex ár. Því það eru að verða sex ár síðan íslenska þjóðin sam­þykkti. Með yfir­gnæf­andi meiri­hluta atkvæða, að ný stjórn­ar­skrá stjórn­laga­ráðs skyldi verða grunn­ur­inn að nýrri stjórn­ar­skrá íslenska lýð­veld­is­ins. Samt bólar ekk­ert á þeirri stjórn­ar­skrá. Á því full­veldi. 

Og nú stend ég hér og vildi að ég gæti sagt ykkur hér og nú að for­ystu­menn allra flokka á Alþingi Íslend­inga væru sam­mála um að fara að lýð­ræð­is­legum vilja þjóð­ar­innar og eigin lof­orðum um nýja stjórn­ar­skrá, sem  samin var af þjóð­inni – eina, lög­mæta stjórn­ar­skrár­gjaf­anum og okkar æðsta vald­gjafa. En sú er því miður ekki raunin. Ég get aðeins sagt afsakið og fyr­ir­gefið – og lofað því, að um leið og við fáum ein­hverju um það ráðið – þá fáið þið að ráða. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár