Viðfangsefni úttektar ekki í samræmi við kynningu forsætisráðuneytisins

Í upp­hafi var full­yrt að óháða út­tekt­in tæki til máls­með­ferð­ar Barna­vernd­ar­stofu, barna­vernd­ar­nefnda og ráðu­neyt­is­ins í til­tekn­um barna­vernd­ar­mál­um. Svo var hlut­verk út­tekt­ar­nefnd­ar­inn­ar þrengt án þess að greint væri frá því op­in­ber­lega.

Viðfangsefni úttektar ekki í samræmi við kynningu forsætisráðuneytisins

Óháða úttektin um um barnaverndarmál sem birt var í gær fjallar aðeins um hluta þess sem forsætisráðuneytið boðaði að yrði tekið til skoðunar þegar tilkynnt var um gerð úttektarinnar á vef forsætisráðuneytisins þann 2. maí síðastliðinn

Í fréttatilkynningu forsætisráðuneytisins kom fram að úttektin beindist að málsmeðferð Barnaverndarstofu, barnaverndarnefnda og velferðarráðuneytisins í tilteknum barnaverndarmálum.

Tilkynningin um úttektina varð til þess að velferðarnefnd Alþingis ákvað að gera hlé á umfjöllun sinni um embættisfærslur Braga Guðbrandssonar og Ásmundar Einars Daðasonar félagsmálaráðherra og aðhafast ekkert fyrr en eftir að niðurstöður úttektarinnar lægju fyrir.

Af samskiptum Stundarinnar við utanríkisráðuneyti Norðurlandanna má ráða að stjórnvöld þar hafi haldið, rétt eins og þingmenn á Íslandi, að úttektin beindist sérstaklega að vinnubrögðum og embættisfærslum Braga Guðbrandssonar, frambjóðanda Norðurlandanna til Barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna. 

Tilkynning forsætisráðuneytisins var hins vegar send út áður en gerður var verksamningur við úttektaraðila, þau Kjartan Bjarna Björgvinsson héraðsdómara og Kristínu Benediktsdóttur dósent við lagadeild HÍ.

Velferðarráðuneytinu var falið að gera þann samning, en samið var um að afmarka úttektina og láta hana beinast sérstaklega að málsmeðferð velferðarráðuneytisins. Stundin greindi frá þessu í frétt þann 31. maí síðastliðinn, en þá hafði velferðarnefnd Alþingis ekki fengið upplýsingar um að markmið úttektarinnar hefði verið endurskoðað og þrengt á skilgreiningu verkefnisins.

Í úttektinni sjálfri, sem birtist á stjórnarráðsvefnum í gær, kemur skýrt fram að úttektin hafi verið unnin í samræmi við verksamninginn og hafi beinst að málsmeðferð og efnislegri athugun ráðuneytisins í kjölfar kvartana barnaverndarnefnda í Reykjavík, Hafnarfirði og Kópavogi vegna Barnaverndarstofu og forstjóra hennar.

„Ljóst er að umræddar kvartanir byggðust á því að alvarlegar brotalamir væru á stjórnsýslu barnaverndarmála á Íslandi og miðar úttektin af þeim sökum að því að upplýsa hvernig ráðuneytið brást við þessum kvörtunum sem æðsta yfirvald barnaverndarmála. Þá beinist úttektin einnig að athugun ráðuneytisins í kjölfar ábendingar formanns barnaverndarnefndar Hafnarfjarðar, 16. nóvember 2017, um afskipti formannsins af svokölluðu Hafnarfjarðarmáli árið 2017 og þeirri niðurstöðu sem ráðuneytið lýsti í bréfi til forstjóra Barnaverndarstofu, dags. 27. febrúar 2018, meðal annars um að hann hafi farið út fyrir verksvið sitt og ekki sett málið í réttan farveg.“

Í úttektinni er ekki tekin efnisleg afstaða til vinnubragða og embættisfærslna Braga Guðbrandssonar í svokölluðu Hafnarfjarðarmáli að öðru leyti en því að bent er á að á grunni fyrirliggjandi gagna hafi ekki verið hægt að slá því föstu að Bragi hefði farið út fyrir verksvið sitt með afskiptum að málinu né brotið gegn þagnarskyldu í samskiptum sínum við föður málsaðila.

Ráðuneytið hafi ekki upplýst málsatvik nægilega vel til að geta lagt dóm á embættisfærslur Braga og hvorki rækt rannsóknarskyldu sína né andmælaregluna gagnvart Braga við meðferð málsins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggj­ur af vinstr­inu á Ís­landi held­ur en VG“

Drífa Snæ­dal sagði eft­ir­minni­lega ár­ið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyr­ir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokkn­um. Staða henn­ar gamla flokks í dag kem­ur henni ekki á óvart. „Fyr­ir vinstr­ið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa af­leið­ing­ar fyr­ir flokk að miðla mál­um svo hressi­lega að það er ekk­ert eft­ir af hug­sjón­un­um,“ seg­ir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sam­búð­in sem sært hef­ur VG nán­ast til ólíf­is

Vinstri græn sungu há­stöf­um á lands­fundi sín­um fyr­ir rúmu ári: „Það gæti ver­ið verra.“ Nú hef­ur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrap­ar botn­inn í fylg­is­mæl­ing­um og hef­ur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eft­ir brott­hvarf eins vin­sæl­asta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrap­ar botn­inn í fylg­is­mæl­ing­um. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterk­ur til að spyrna sér upp og forða sér frá út­rým­ingu á eft­ir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­arsátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrín­ar Jak­obs­dótt­ur er miðju­sæk­in íhalds­stjórn, að mati Ei­ríks Berg­manns Ein­ars­son­ar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyr­ir alla, að mati Stef­an­íu Ósk­ars­dótt­ur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aft­ur í sátt­mál­an­um en annarra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boð­ar einkafram­kvæmd­ir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerf­ið og stjórn­ar­skrá­in fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrín­ar Jak­obs­dótt­ur set­ur þrjú meg­in við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldrun­ar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ing­ar. Styðja á við sta­f­ræna tækni í heil­brigð­is­mál­um. Lít­ið er rætt um skatta­mál. Einkafram­kvæmd­ir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukk­að fyr­ir notk­un vega.

Mest lesið

Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
1
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.
Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
2
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.
Ómenning að líta á kynferðisbrot sem „fórnarkostnað við skemmtun“
3
Innlent

Ómenn­ing að líta á kyn­ferð­is­brot sem „fórn­ar­kostn­að við skemmt­un“

Drífa Snæ­dal talskona Stíga­móta seg­ir orð­ræðu um kyn­ferð­is­brot á úti­há­tíð­um „ein­kenn­is­merki þess að of­beldi er lát­ið við­gang­ast í sam­fé­lag­inu“. Um helg­ina voru fjög­ur kyn­ferð­is­brot á úti­há­tíð­um til­kynnt til lög­reglu en há­tíð­ar­hald­ar­ar og lög­regla tala um að há­tíð­ar­höld hafi al­mennt geng­ið vel.
Kalla eftir alþjóðlegum aðgerðum gegn „öfgafullu vinstri fólki“
5
ErlentBandaríki Trumps

Kalla eft­ir al­þjóð­leg­um að­gerð­um gegn „öfga­fullu vinstri fólki“

Ut­an­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna seg­ir „hryðju­verka­fólk“ und­ir yf­ir­skini „jafn­rétt­is, rétt­læt­is og frels­is“ vera „ein­staka illsku“. Stephen Miller, hægri hönd for­set­ans, seg­ir vinstri­menn dreifa „krabba­meini“ í sam­fé­lag­inu. „Þau eru öll af­mynd­uð á ein­hvern hátt í út­liti, klæða­burði og hátta­lagi,“ seg­ir hann.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Náttúrubarnið í Sænautaseli
2
Viðtal

Nátt­úru­barn­ið í Sænauta­seli

Lilja Haf­dís Óla­dótt­ir á Merki á Jök­ul­dal líð­ur best í óbyggð­um og stend­ur vakt­ina í Sænauta­seli, þar sem hún tek­ur á móti gest­um með ný­bök­uð­um lumm­um. Eft­ir frá­fall móð­ur­inn­ar var hún kom­in í hús­mæðra­hlut­verk fimmtán ára göm­ul, auk þess að sinna bú­störf­um. Rúm­lega tví­tug varð hún móð­ir en gaf barn­ið til ætt­leið­ing­ar. Seinna eign­að­ist hún ann­að barn. Nú líð­ur henni best úti í nátt­úr­unni og í kring­um dýr­in, enda rollu­hvísl­ari sem var eitt sinn bjarg­að af hesti og get­ur séð í niða­myrkri.
Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
6
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
1
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.
Sagt upp í Ráðhúsinu þar sem hún lá á bráðamóttöku
6
Innlent

Sagt upp í Ráð­hús­inu þar sem hún lá á bráða­mót­töku

Þeg­ar Hólm­fríð­ur Helga Sig­urð­ar­dótt­ir lagði hjólandi af stað í vinn­una í síð­ustu viku grun­aði hana ekki hvað var í vænd­um. Hún varð fyr­ir bíl og þar sem hún lá slös­uð á bráða­mót­töku var henni sagt upp störf­um sem upp­lýs­inga­full­trúi í Ráð­hús­inu. Hún seg­ir frá því þeg­ar hún fékk „ tvö rot­högg á ein­um ör­laga­rík­um degi“.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár