Íslendingar gefa Arnarlaxi laxeldiskvóta sem norska ríkið selur á 12,5 milljarða

Ef Ísland myndi selja lax­eld­isk­vóta á sama verði og Norðmenn ætti íslenska ríkið að fá 110 millj­arða króna fyrir 71 þús­und tonna fram­leiðslu. Auð­linda­gjaldið sem stungið er upp á skýrslu nefndar um stefnu­mörkun í lax­eldi nemur einum millj­arði króna fyrir 67 þús­und tonna fram­leiðslu. Íslenskt lax­eldi að stóru leyti í eigu norskra aðila sem greiða ekk­ert fyrir lax­eld­is­leyfin.

Íslendingar gefa Arnarlaxi laxeldiskvóta sem norska ríkið selur á 12,5 milljarða
Þyrfti að greiða 12,5 millj­arða Ef Arnarlax, sem Víkingur Gunn­ars­sonar, myndi kaupa sér 8 þús­und tonna fram­leiðslu­leyfi á eld­is­laxi í Noregi þyrfti félagið að greiða 12,5 millj­arða fyrir það. Á Íslandi greiðir Arnarlax ekk­ert fyrir að fram­leiða 8 þús­und tonn af eld­is­laxi í ár. Mynd: MBL/Helgi Bjarnason

Íslenska ríkið gefur lax­eld­is­fyr­ir­tækjum sem stunda sjó­kvía­eldi á Íslandi lax­eld­isk­vóta sem seldur er dýru verði í Noregi. Samkvæmt upp­lýs­ingum á heima­síðu norsku rík­is­stjórn­ar­innar verður haldið upp­boð á nýjum leyfum í eld­is­lax­eldi þar í landi í júní þar sem lág­marks­verð fyrir tonnið verður 120 þús­und norskar krónur eða tæp­lega 1.560 þús­und íslenskar krónur. Norska ríkið hefur ekki gefið út ný lax­eld­is­leyfi um ára­bil vegna þeirra umhverf­is­á­hrifa, meðal ann­ars erfða­blöndun við norskan villtan lax, sem lax­eldið þar í landi hefur haft. 

Ef litið er til þess að stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæki Íslands, Arnarlax, ráð­gerir að fram­leiða 8 þús­und tonn af eld­is­laxi í ár - upp­haf­lega stóð til að fram­leiða 11 þús­und en skakka­föll í rekstr­inum hafa sett strik í reikn­ing­inn - þá myndi fyr­ir­tækið þurfa að greiða norska rík­inu tæpa 12,5 millj­arða íslenskra króna fyrir þennan kvóta.

Auðlindagjald skili 1 milljarði til ríkisins

Umræða um sam­bæri­lega sölu á lax­eld­isk­vóta er enn …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár