Raflost, geimverur, Bill Murray og Listahátíð

Tón­leikar, sýn­ingar og við­burðir 25. maí til 7. júní.

Raflost, geimverur, Bill Murray og Listahátíð

RAFLOST 2018

Hvar? Mengi
Hvenær? 25.–26. maí kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr. fyrir annað kvöldið, 3.000 kr. fyrir bæði.

RAFLOST er fram­sækin hátíð fyrir nýja tón­list og miðla­list þar sem raf­magn og tækni eru notuð við sköpun eða flutn­ing. Áhersla er lögð á að rækta gras­rót íslenskra raf­lista með því að kynna nýj­ustu strauma. Þar koma saman hvers kyns raf­lista­menn, DIY hakk­arar, nem­endur Lista­há­skól­ans, S.L.Á.T.U.R. tón­skálda­sam­tökin og fleiri hópar úr íslensku jað­ar­sen­unni.

Svartalogn

Hvar? Þjóð­leik­húsið
Hvenær? 25., 26., 31. maí og 8. júní kl. 19.30
Aðgangs­eyrir: 3.000 kr.

Svarta­logn er leik­verk byggt á sam­nefndri skáld­sögu Krist­ínar Marju Bald­urs­dóttur, en það fjallar um Flóru sem er óvænt komin í lítið sjáv­ar­þorp á Vest­fjörðum um hávetur. Flóru finnst hún hafa glatað öllu sem áður gaf lífi hennar gildi. En mitt í öllu vetr­ar­myrkr­inu kynn­ist Flóra konum sem eiga eftir að hafa mikil áhrif á hana.

Skrattar, Elli Grill, Alvia

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 26. maí kl. 00.00
Aðgangs­eyrir: 1.000 kr.

Skrattar spila tón­list næt­ur­innar, þar sem ljúfir raf­rænir tónar og stagl­kennt gít­ar­plokk bráðna saman við tóm­hyggju­legan söng. Nóttin byrjar með því að Skrattar frum­sýna nýjasta tón­list­ar­mynd­band sitt áður en skarpasti gosi rapps­ins, Elli Grill, stígur upp á sviðið. Á eftir honum er Alvia Islandia, drottn­ing trap-sen­unnar, og síðan ljúka Skrattar kvöld­inu, eins og þeim er líkt.

JóiPé X Króli

Hvar? Húrra
Hvenær? 26. maí kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Þeir ærsla­fullu og ynd­is­legu JóiPé og Króli hafa verið áber­andi í íslensku tón­list­ar­lífi síð­asta árið, og ósjaldan hafa færri kom­ist á tón­leika þeirra en vildu. Búast má við slíku á þessum tón­leikum þar sem þessir ungu lista­menn hafa náð að brúa kyn­slóða­bilið og laða að sér aðdá­endur af öllum aldri.

GERÐUR | YFIRLIT

Hvar? Gerð­ar­safn
Hvenær? 31. maí–12. ágúst
Aðgangs­eyrir: 1.000 kr.

Á sýn­ing­unni GERÐUR verður gefið yfir­lit yfir fjöl­breyttan feril Gerðar Helga­dóttur (1928–1975) mynd­höggv­ara. Gerður var fjöl­hæfur mynd­list­ar­maður sem fékkst við skúlp­túr, steint gler og mósaík en á sýn­ing­unni verður ljósi varpað á þemu og sjón­rænar teng­ingar milli verka. Til grund­vallar sýn­ing­ar­innar eru fjórtán hund­ruð verk Gerðar í saf­n­eign Gerð­ar­safns.

Independence Day föstudagspartísýning

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 1. júní kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 1.600 kr.

Hver man ekki eftir þess­ari ger­semi frá 10. ára­tugnum þar sem geim­verur sprengdu Hvíta húsið, Bill Pullman gerði 4. júlí að frels­is­degi jarð­ar­innar, Will Smith fékk allar bestu lín­urnar og Jeff Goldblum góld­blúm­aði yfir sig? Bíó Paradís sýnir þessa klassík á sér­stakri föstu­dags­sýn­ingu.

Listahátíð í Reykjavík

Hvar? Reykja­vík
Hvenær? 1.–17. júní
Aðgangs­eyrir: Fer eftir við­burð­inum.

Lista­há­tíð í Reykja­vík er þver­fag­leg lista­há­tíð með áherslu á nýsköpun. Yfir­skrift hátíð­ar­innar í ár er „Heima“, sem verður túlkað í póli­tískum og sam­fé­lags­legum skiln­ingi, sögu­legu, per­sónu­legu og list­rænu sam­hengi. Meðal list­rænna gesta er leik­ar­inn Bill Murray sem verður í sam­starfi við þrjá afburða klass­íska hljóð­færa­leik­ara.

Djúpþrýstingur

Hvar? NÝLÓ
Hvenær? 7. júní–12. ágúst
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Þetta er 40 ára afmæl­is­sýn­ing safns­ins, en í henni er að finna ný verk eftir sam­tíma­lista­menn og lista­verk úr saf­n­eign NÝLÓ sem hafa sterkar skír­skot­anir til sam­tíma okkar, þá og nú. Verkin gefa gestum því mörg ólík sjón­ar­horn á atburði líð­andi stundar. Þau varpa fram við­var­andi aðstæðum eða and­ar­tökum sem líða hægt, eða hratt. Sum lista­verkin eru stækk­un­ar­gler og önnur stjörnu­kíkir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár