Benjamín Dúfa, Björk og rjómi jaðarsenunnar

Tón­leikar, sýn­ingar og við­burðir 27. mars til 12. apríl.

Benjamín Dúfa, Björk og rjómi jaðarsenunnar

Ragna Róbertsdóttir - Milli fjalls og fjöru

Hvar? Nýlista­safnið
Hvenær? Til 19. maí
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Í verkum Rögnu Róberts­dóttur sam­ein­ast hug­myndir okkar um villta nátt­úru og mann­gert umhverfi í eitt. Verk hennar eru afrakstur ára­tuga­langs áhuga lista­manns­ins á eig­in­leikum íslenskrar nátt­úru og hug­leið­inga um form og efni umhverf­is­ins, hvað ger­ist við hreyf­ingu og úrvinnslu efnis. Verkin eru úr hrauni, vikri, salti, gleri, skeljum eða akrýlögnum og hafa sterkar skír­skot­anir í nátt­úr­una, hreyfi­afl hennar og breyti­leika.

Elina Brotherus - Leikreglur

Hvar? Lista­safn Íslands
Hvenær? Til 24. júní
Aðgangs­eyrir: 1.500 kr.

Í verkum Elinu má skynja sterka nálægð hennar sjálfrar, en hún kemur fyrir í öllum ljós­mynda- og víd­eó­verkum sýn­ing­ar­innar, ber­skjölduð og hisp­urs­laus. Verkin ein­kenn­ast af marglaga frá­sögnum sem sveifl­ast á milli kímni og trega. Í mörgum þeirra setur Elina sér leik­reglur og fer eftir þeim innan ramma mynda­vél­ar­innar, sem er í senn leik­fé­lagi hennar og sál­ar­speg­ill.

Rocky Horror

Hvar? Borg­ar­leik­húsið
Hvenær? Til 10. júní
Aðgangs­eyrir: 8.950 kr.

Frá því að söng­leik­ur­inn Rocky Horror var fyrst sýndur 1973 hefur hann eign­ast ara­grúa aðdá­enda og kvik­myndin sem gerð var eftir sömu sög­unni er ennþá sýnd reglu­lega. Þessi íslenska útfærsla undir leik­stjórn Mörtu Nordal skartar meðal ann­ars Páli Óskari í hlut­verki klæð­skipt­ings­ins og vís­inda­manns­ins Frank-N-Furter.

Loving Vincent

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 30.-31. mars og 2.-4. apríl
Aðgangs­eyrir: 1.600 kr.

List­málar­inn Vincent Van Gogh er ein af þjóð­ar­ger­semum Hollands, en hann var mik­ill áhrifa­valdur innan stefnu póstim­pressjónista. Líf hans og dauði eru við­fangs­efni þess­arar myndar, en hún er öll hand­máluð í stíl við verk hans. Fjöldi mynd­list­ar­manna tóku þátt í að skapa þau rúm­lega 65.000 mál­verk sem halda uppi verk­inu.

Háskar

Hvar? Iðnó
Hvenær? 30. mars kl. 15:00-03:00
Aðgangs­eyrir: 3.333 kr.

Þessi svo­kall­aði dóms­dags­fögn­uður er skipu­lagður af gjörn­ingapönk­hljóm­sveit­inni Hatara. Fram koma ýmis skáld, rapp­arar, rokk­arar og aðrir gjörn­inga­lista­menn. Má þar nefna til dæmis Cyber, Elísa­betu Jök­uls­dóttir, Hórmóna, Jón Örn Loðm­fjörð, IDK | IDA, Kött Grá Pjé, Muck, World Narcosis, og fleiri.

Innfædd

Hvar? Iðnó
Hvenær? 2., 3., 9., 16., 22., 23., og 29. apríl
Aðgangs­eyrir: 3.000 kr.

Tveir drengir og ein stúlka eiga fjórtán ára afmæli sama dag og leiða áhorf­endur í gegnum þennan dag í lífi sínu, þar sem sam­fé­lags­miðlar og hinn alltum­lykj­andi snjall­sími geta breytt lífi þeirra til fram­búðar. Ung­ling­arnir búa í þremur ólíkum heims­hlutum og koma úr mis­mun­andi sam­fé­lags­hópum, en eiga það sam­eig­in­legt að á Inter­net­inu eiga þau öll heima­stað, þar sem þau eru inn­fædd.

Alþjóðleg Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 5.-15. apríl
Aðgangs­eyrir: 1.600 kr.

Á þess­ari kvik­mynda­há­tíð verður sýnt breytt úrval af myndum sem henta yngri kyn­slóð­inni. Meðal ann­ars eru fjórar erlendar kvik­myndir tal­settar á íslensku, og banda­rísk aðlögun að Benjamín Dúfu, sem kall­ast „Benji the Dove“, verður frum­sýnd hér á landi. Einnig verða ýmsir ókeypis við­burðir í kringum hátíð­ina, eins og nám­skeið í sketsa­skrifum fyrir 13-15 ára.

Björk

Hvar? Háskóla­bíó
Hvenær? 9. apríl kl. 20:00
Aðgangs­eyrir: frá 11.900 kr.

Björk er án efa þekkt­asti lista­maður Íslands fyrr og síðar, en plötur hennar hafa selst í millj­ónum ein­taka út um allan heim. Þessir tón­leikar eru fyrsti liður í útgáfu „Útópíu“ sem er 10. sóló­plata hennar og kom út undir lok síð­asta árs. Hún kemur fram með 7 flautuleik­urum, slag­verks­leik­ara og raf­tón­list­ar­manni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár