Óli Björn vill taka Landspítalann út af fjárlögum

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins vill „fram­leiðslu­tengja“ fjár­fram­lög til Land­spít­ala og auka einka­rekstur í heil­brigð­is­þjón­ustu. Væri í hróp­legu ósam­ræmi við áherslur Vinstri grænna.

Óli Björn vill taka Landspítalann út af fjárlögum
Vill Land­spít­ala út af fjár­lögum Óli Björn Kárason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er þeirrar skoð­unar að „fram­leiðslu­tengja“ ætti fjár­fram­lög til Land­spít­ala og auka skuli einka­rekstur í heil­brigð­is­kerf­inu. Slíkra áætl­anna sér hvergi stað í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar og er í and­stöðu við stefnu Vinstri grænna. Mynd: xd.is

Óli Björn Kárason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vill að Land­spít­al­inn verði tek­inn út af fjár­lögum og að fjár­mögnun klínískrar þjón­ustu hans verði „fram­leiðslu­tengd“. Jafn­framt verði einka­rekstur í heil­brigð­is­þjón­ustu nýttur í mun meira mæli. Hvergi er minnst á auk­inn einka­rekstur heil­brigð­is­þjón­ustu í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­flokk­anna. Þá leggur Vinstri­hreyf­ingin – grænt fram­boð áherslu á að heil­brigð­is­þjón­usta sé starf­rækt á opin­berum grunni og hafnar mark­aðsvæð­ingu heil­brigð­is­þjón­ustu.

Óli Björn lýsir þessum skoð­unum sínum í grein í Morg­un­blað­inu í dag.  Óli Björn rekur þar umrót í heil­brigð­is­málum síð­asta ára­tug, þar sem sjö ein­stak­lingar úr fjórum stjórn­mála­flokkum hafi setið á stóli heil­brigð­is­ráð­herra frá árinu 2007. Því hafi, eðli­lega, reynst erfitt að móta heild­stæða lang­tíma­stefnu í mála­flokknum. Umræða um heil­brigð­is­mál mark­ist fremur af því hversu miklum fjár­munum sé varið til þeirra en þeim árangri sem náist í þjón­ust­unni. „Mæli­kvarð­inn er ömur­legur og setur vængi undir þá trú að hægt sé að leysa flest vanda­mál heims­ins með pen­ingum. Aukin útgjöld til heil­brigð­is­mála er ekki mark­mið í sjálfu sér. Til­gangur sam­eig­in­legs heil­brigð­is­kerfis er ekki að verja sem mestum fjár­munum í rekst­ur­inn heldur að auka lífs­gæði almenn­ings með góðri og öfl­ugri heil­brigð­is­þjón­ustu.“

„Hverfa frá þeirri hug­mynda­fræði að vera með Land­spít­ala Íslands á föstum fjár­lögum sem meg­in­reglu. Fremur á að semja við Land­spít­al­ann á grund­velli fer­il­verka, hinnar klínísku þjón­ustu. Ég hef leyft mér að kalla þetta verk­efna­tengda fjár­mögnun.“

Vill verk­efna­tengda fjár­mögnun á Land­spít­ala

Óli Björn nefnir að í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um Sjúkra­trygg­ingar Íslands sé bent á að brýnt sé að Sjúkra­trygg­ingar haldi áfram að þróa samn­ing við Land­spít­al­ann um fram­leiðslu­tengda fjár­mögnun klínískrar þjón­ustu. Hann seg­ist þá telja að taka verði upp skýr­ari stefnu­mótun, og fjár­mögnun, á Land­spít­ala. „Hverfa frá þeirri hug­mynda­fræði að vera með Land­spít­ala Íslands á föstum fjár­lögum sem meg­in­reglu. Fremur á að semja við Land­spít­al­ann á grund­velli fer­il­verka, hinnar klínísku þjón­ustu. Ég hef leyft mér að kalla þetta verk­efna­tengda fjár­mögnun – að fé skuli fylgja sjúk­lingi og þeirri þjón­ustu sem þarf að veita honum.“

Þá geti stefna í heil­brigð­is­málum til fram­tíðar ekki mót­ast af andúð á einka­rekstri, skrifar Óli Björn, og engin skyn­semi sé í öðru en að nýta kosti einka­rekstrar í heil­brigð­is­þjón­ustu.

Vinstri græn vilja standa vörð um opin­bert heil­brigð­is­kerfi

Sem fyrr segir er hvergi minnst á auk­inn einka­rekstur í heil­brigð­is­kerf­inu í stjórn­ar­sátt­mála sitj­andi rík­is­stjórnar. Flokkur Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, Vinstri græn, hafa árum saman lýst sig and­víg frek­ari einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu. Þannig segir í kosn­inga­á­herslum flokks­ins fyrir síð­ustu þing­kosn­ingar: „Félags­legur rekstur heil­brigð­is­þjón­ust­unnar er grund­vall­ar­at­riði. Einka­rekstur í ágóða­skyni á ekki heima í vel­ferð­ar­þjón­ust­unni. Arð­greiðslur úr heil­brigð­is­þjón­ustu eru óásætt­an­legar, grunn­þjón­usta og rekstur sjúkra­húsa er ekki gróða­vegur.“ Í stefnu flokks­ins segir enn fremur: „Vinstri­hreyf­ingin – grænt fram­boð leggur áherslu á öfl­uga heil­brigðis- og vel­ferð­ar­þjón­ustu sem er fjár­mögnuð með skattfé og starf­rækt á opin­berum grunni. Með opin­berum rekstri fæst yfir­sýn yfir kerfið og hægt er að hámarka nýt­ingu fjár­magns og tryggja aðgang án aðgrein­ingar, með áherslu á jafn­ræði og gæði. Vinstri græn hafna mark­aðsvæð­ingu heil­brigð­is­þjón­ust­unnar.“

Yrði grund­vall­ar­breyt­ing á íslensku heil­brigð­is­kerfi

Katrín Jak­obs­dóttirNúver­andi for­sæt­is­ráð­herra lýsti mik­illi and­stöðu sinni við auk­inn einka­rekstur í heil­brigð­is­kerf­inu þegar hún sat í stjórn­ar­and­stöðu á síð­asta ári.

Katrín Jak­obs­dóttir spurði þáver­andi heil­brigð­is­ráð­herra, Óttarr Proppé, í fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi 2. febr­úar 2017 ítar­lega út í hugs­an­lega samn­inga Sjúkra­trygg­inga Íslands við einka­að­il­ann Klíník­ina vegna sér­hæfðrar sjúkra­hús­þjón­ustu. Sagði Katrín að veitti heil­brigð­is­ráð­herra slíkri starf­semi starfs­leyfi gæti það haft óaft­ur­kræf áhrif á íslenkst heil­brigð­is­kerfi og væri grund­vall­ar­breyt­ing á íslenskri heil­brigð­is­þjón­ustu. „Ég vil spyrja hæstv. heil­brigð­is­ráð­herra hvort við getum ekki treyst því að hann muni standa vörð um hið opin­bera heil­brigð­is­kerfi. Að sjálf­sögðu vildi ég helst heyra hann taka afdrátt­ar­lausa afstöðu gegn þessum áformum um einka­rekið sjúkra­hús.“

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár