„Gerði ráðherra enga kröfu um að aðstoðarmaðurinn færi ekki að vinna fyrir sömu kröfuhafa og hann var að kljást við?“

Oddný G. Harð­ar­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar, segir hneyksli að sami maður og vann að stöð­ug­leika­skil­yrðum gagn­vart kröfu­höfum fyrir Bjarna Bene­dikts­son vinni nú fyrir aðil­ana sem stöð­ug­leika­skil­yrðin voru sniðin að.

„Gerði ráðherra enga kröfu um að aðstoðarmaðurinn færi ekki að vinna fyrir sömu kröfuhafa og hann var að kljást við?“

Oddný G. Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir hneyksli að Benedikt Gíslason, sami maður og vann að gerð stöð­ug­leika­skil­yrða, samn­ings­mark­miða og ann­arra útfærslna gagn­vart kröfu­höfum sem aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar í tíð rík­is­stjórnar Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, vinni nú fyrir Kaupþing og stærstu eig­endur Arion banka, þá aðila sem stöð­ug­leika­skil­yrðin voru sniðin að.

Benedikt Gíslasonfyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar sem nú stafar í fjár­mála­geir­anum.

Þetta kom fram í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í morgun, en Oddný benti á að Benedikt hefði hafið störf fyrir umrædda aðila aðeins nokkrum vikum eftir að hann hætti störfum sem aðstoð­ar­maður fjár­mála­ráð­herra.

„Við erum fámenn hér á landi. En erum við virki­lega svo fámenn að sú staða hafi verið óum­flýj­an­leg?“ sagði Oddný og spurði Bjarna hvort hann teldi eðli­legt að fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður hans gæti eina stund­ina unnið með við­kvæmar trún­að­ar­upp­lýs­ingar fyrir hið opin­bera en stuttu seinna farið að vinna fyrir þá aðila sem hafa aug­ljós­lega mikla hags­muni af því að sýsla með þær sömu upp­lýs­ingar. „Gerði hæst­virtur ráð­herra enga kröfu um að aðstoð­ar­mað­ur­inn sem starf­aði í umboði hans færi ekki að vinna fyrir sömu kröfu­hafa og hann var að kljást við fyrir hæst­virtan ráð­herra? Telur hæst­virtur ráð­herra ekki aug­ljós­lega að starfs­maður sem býr yfir slíkum upp­lýs­ingum sé afskap­lega verð­mætur starfs­maður fyrir Kaupþing? Hvað gerði hæst­virtur ráð­herra til að koma í veg fyrir að mögu­legir hags­muna­á­rekstrar ættu sér stað?“

Bjarni sak­aði Oddnýju um dylgjur og sagði hana gefa í skyn að farið hefði verið illa með trún­að­ar­upp­lýs­ingar sem mönnum var treyst fyrir. „Ég verð bara að biðja hátt­virtan þing­mann um að færa ein­hver rök fyrir máli sínu ef svo er,“ sagði hann og bætti við: „Það sem var verk­efni umrædds starfs­manns eru opin­berar upp­lýs­ingar í dag. Það er ekk­ert sem leiddi af störfum hans eða þeirra sem tóku þátt í þeirri vinnu, og það voru fjöl­margir aðilar — það er allt saman bundið í samn­inga sem m.a. voru lagðir fyrir í efna­hags- og við­skipta­nefnd í vik­unni. En um hvað hv. þing­maður er að dylgja átta ég mig ekki á, hún verður að gera betur grein fyrir því hér.“

Oddný svar­aði á þá leið að hún væri ekki að dylgja um nokkurn skap­aðan hlut. „Ég var að spyrja hæst­virtan ráð­herra spurn­ingar sem hann svar­aði ekki. En svona atriði skipta máli. Afstaða hæst­virts fjár­mála­ráð­herra skiptir mjög miklu máli. Ef honum finnst ekk­ert óeðli­legt við þessa stöðu, sem flestum öðrum finnst, er það eitt og sér sann­ar­lega áhyggju­efni.“ Hún benti á að sú ákvörðun að fara aðra leið með Arion banka en Íslands­banka hefði verið tekin að kröfu sjálf­stæð­is­manna að sögn fyrrum sam­starfs­manns Bjarna í rík­is­stjórn, Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.

„Sporin hræða þegar kemur að fjár­mála­kerf­inu og aðkomu Sjálf­stæð­is­manna. Allt ferlið þarf að vera gegn­sætt og opið. En það er það ekki. Sölu­ferli Arion banka er óljóst. Samn­ingar við ríkið hafa ekki allir verið gerðir opin­berir. Við vitum ekki hverjir eiga vog­un­ar­sjóð­ina. Er ekki kom­inn tími til að við hættum þessu pukri og fúski og við­ur­kennum að það vinnur gegn hags­munum almenn­ings? Getur hæst­virtur fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra að minnsta kosti ekki verið sam­mála mér um það?“

Bjarni svar­aði: „Þetta eru algjör­lega inni­halds­laus orð sem falla hér úr ræðu­stól. Pukur og fúsk. Það er ekk­ert pukur og það er ekk­ert fúsk. Hátt­virtur þing­maður sat í rík­is­stjórn­inni sem gerði kaup­rétt­inn við Kaupþing á sínum tíma, hún kann­ast bara ekki við það. Hún sat í rík­is­stjórn­inni sem gerði kaup­rétt­inn sem nú er verið að virkja en kemur hér upp og talar um pukur og fúsk. Kannast ekki einu sinni við eigin verk.“ 

Bjarni sagði stöð­ug­leika­samn­inga og nið­ur­stöður þeirra sýna að allt hefði gengið full­kom­lega upp. „Þrýst­ingur á krón­una var eng­inn. Verk­efnið var til þess ætlað að draga úr gjald­eyr­is­ó­jöfn­uði sem hætta var á að mynd­að­ist við upp­gjör gömlu slita­bú­anna. Það tókst 100%. Og stöð­ug­leika­fram­lögin, sem metin hafa verið á sínum tíma upp á rétt um 380 millj­arða, eru í dag metin á um 74 millj­arða umfram það sem þá var.“

Oddný hefur áður gert hags­muna­á­rekstra við gerð stöð­ug­leika­skil­yrða að umtals­efni á Alþingi. Hún átti orða­skipti við Bjarna um málið fyrir tæpu ári, sjá hér, og nýlega birti hún svo eft­ir­far­andi hug­leið­ingu á Facebook:

„Benedikt Gíslason, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar þegar Bjarni var fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra í rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, var einn helsti ráð­gjafi þeirrar rík­is­stjórnar um losun gjald­eyr­is­hafta. Eitt af því sem fólst í vinnu Bene­dikts var að koma að gerð stöð­ug­leika­skil­yrð­anna. Benedikt hefur síðan því lauk, unnið fyrir kröfu­hafa Kaup­þings sem eru stærstu eig­endur Arion banka og hafa verið að kaupa hlut í sjálfum sér, að því er virð­ist ein­göngu svo að ríkið fái ekki sinn hlut greiddan á raun­virði bank­ans. Hvers vegna var ekki komið í veg fyrir þetta með stöð­ug­leika­sam­komu­lag­inu? Ráðlagði Benedikt Gíslason Bjarna eitt­hvað í þessum efnum? Og hvað ætli Benedikt hafi svo ráð­lagt Kaup­þingi um þetta? Þessi staða Bene­dikts beggja vegna borðs­ins er sann­ar­lega tor­tryggi­leg þó ómögu­legt sé að full­yrða um afleið­ingar hennar. Samkvæmt svari Bjarna við fyr­ir­spurn minni frá því í fyrra hafði hann ekki miklar áhyggjur af þessum tengslum fyrrum aðstoð­ar­manns hans. En ætli aðstoð­ar­mað­ur­inn fyrr­ver­andi verði samt ekki einn af þeim sem fær háar bón­us­greiðslur þegar að flétt­unni sem nú gengur yfir með Arion banka verður lokið?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár