Slökun á aðhaldi hins opinbera stendur í vegi fyrir lækkun vaxta

„Nefnd­ar­menn voru sam­mála um að áfram yrði þörf fyrir pen­inga­legt aðhald til að halda aftur af örum vexti inn­lendrar eft­ir­spurnar, m.a. í ljósi þess að horfur væru á minna aðhaldi í opin­berum fjár­málum en áður var gert ráð fyrir,“ segir í fund­ar­gerð pen­inga­stefnu­nefndar frá síð­asta vaxta­á­kvörð­un­ar­fundi.

Slökun á aðhaldi hins opinbera stendur í vegi fyrir lækkun vaxta

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans telur að kröft­ugur vöxtur inn­lendrar eft­ir­spurnar sé meðal ann­ars drif­inn áfram af til­slökun í opin­berum fjár­málum, þ.e. slökun á aðhaldi sem ekki henti vel miðað við núver­andi stöðu hag­sveifl­unnar. Nokkrir nefnd­ar­manna telja jafn­vel að núver­andi aðhalds­stig hins opin­bera kunni að vera ofmetið.

Svo virð­ist sem þetta sé á meðal þeirra þátta sem leiddu til þess að pen­inga­stefnu­nefnd ákvað að halda vöxtum óbreyttum á fundi sínum þann 6. febr­úar 2018. Seðla­bank­inn birti fund­ar­gerð nefnd­ar­innar í dag, en slíkt er alltaf gert tveimur vikum eftir að til­kynnt er um vaxta­á­kvörðun. 

„Nefnd­ar­menn voru sam­mála um að áfram yrði þörf fyrir pen­inga­legt aðhald til að halda aftur af örum vexti inn­lendrar eft­ir­spurnar, m.a. í ljósi þess að horfur væru á minna aðhaldi í opin­berum fjár­málum en áður var gert ráð fyrir. Þá ríkir enn óvissa um nið­ur­stöðu kjara­samn­inga,“ segir meðal ann­ars í fund­ar­gerð­inni.

Fram kemur að nið­ur­stöður kjara­samn­inga á vinnu­mark­aði geti orðið óhag­stæð­ari en gert var ráð fyrir í fyrri spám auk þess sem tölu­verðu skipti fyrir inn­lendan þjóð­ar­bú­skap hversu hraður hinn alþjóð­legi efna­hags­bati verður næstu miss­erin.

Bent er á að sam­kvæmt fjár­lögum fyrir árið 2018 eykst aðhalds­stig rík­is­fjár­mála á þessu ári minna en áætlað hafði verið í nóv­em­ber­spá bank­ans. Áætlað er að aukið aðhald sam­svari 0,8% af lands­fram­leiðslu sam­an­borið við 1,3% í nóv­em­ber. Þá gerir einnig fjár­mála­stefna Bjarna Bene­dikts­sonar ráð fyrir meiri slökun á aðhalds­stigi opin­berra fjár­mála heldur en fjár­mála­stefnan sem fyr­ir­renn­ari hans, Benedikt Jóhann­es­son, lagði fram í jan­úar 2017. 

Fjár­mála­ráð, sjálf­stæður sér­fræð­inga­hópur sem hefur það hlut­verk að leggja mat á hvort fjár­mála­stefna og fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórnar fylgi þeim grunn­gildum sem kveðið er á um í lögum um opin­ber fjár­mál, hefur gagn­rýnt fjár­mála­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar. Fram kemur í álits­gerð fjár­mála­ráðs að afkoma hins opin­bera verði, sam­kvæmt stefn­unni, í raun nei­kvæð á næstu árum sé miðað við frum­jöfnuð hins opin­bera og hann leið­réttur fyrir áhrifum hag­sveifl­unnar. Slík rekstr­ar­nið­ur­staða geti ekki talist sjálf­bær til lengri tíma. Varar fjár­mála­ráð sér­stak­lega við því að ráð­ist verði í stór­fellda aukn­ingu rík­is­út­gjalda án sam­svar­andi tekju­öfl­unar og skatta­hækk­ana. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár