Dönsk samtímalist, norrænt bíó og reykvísk þjóðlagahátíð

Úrval tón­leika, sýn­inga og við­burða dag­ana 23. febr­úar til 8. mars.

Dönsk samtímalist, norrænt bíó og reykvísk þjóðlagahátíð

Tak i lige måde: Samtímalist frá Danmörku

Hvar? Hafn­ar­húsið 
Hvenær? 23. febr­úar–21. maí
Aðgangs­eyrir: 1.650 kr.

Í ár er heil öld síðan að Ísland hlaut full­veldi og síðan þá hefur heims­mynd fyrrum herra­þjóðar hennar, Danmörku, tekið stakka­skiptum. Samhliða því að umsvifum þjóð­ar­innar á alþjóða­vett­vangi hefur farið minnk­andi hefur mikil gróska átt sér stað í mynd­list­ar­heimi hennar. Þessi fjöl­breytta sýn­ing reynir að fanga stefnur og strauma fjög­urra val­in­kunnra danskra sam­tíma­list­ar­manna. Sýningin verður opnuð 23. febr­úar kl. 20.00, en klukkan 21.00 ræðir danski mynd­list­ar­mað­ur­inn Jesper Just við Markús Þór Andr­és­son sýn­ing­ar­stjóra um verk sín og feril.

Norræna kvikmyndahátíðin

Hvar? Norræna húsið
Hvenær? 22.–27. febr­úar
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Á þess­ari hátíð, sem hefur verið haldin frá 2012, er reynt að kynna gestum fyrir breiðu úrvali af vönd­uðum kvik­myndum, heim­ild­ar­myndum og stutt­myndum frá Norð­ur­lönd­unum. Í ár má sjá verð­launa­mynd­irnar „The Square“, The Punk Syndrome“, „The Unknown Soldier“ og fleiri að kostn­að­ar­lausu og með enskum texta. Frímiða er hægt að panta á tix.is.

Brött brekka, Great Grief, Spünk, World Narcosis

Hvar? Húrra
Hvenær? 28. febr­úar kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Á loka­kvöldi febr­ú­ar­mán­að­ar­ins munu þessar fjórar ærsla­fullu hljóm­sveitir bjóða gestum að mosha í gegnum nótt­ina og fagna bjart­ari dögum. Fram koma indí rokk­ar­arnir í Brattri brekku, harð­kjarna-pönk­sveitin Great Grief, lotn­ing­ar­lausu rokk­ar­arnir í Spünk, og drunga­lega pönk­sveitin World Narcosis.

Meðgönguljóð nr. 26, 27 & 28

Hvar? Mengi
Hvenær? 28. febr­úar kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Með­göngu­ljóð er bóka­flokkur Partusar sem er helg­aður nýja­brum­inu í íslenskri ljóð­list, og á þessu kvöldi er haldið upp á þrjár mis­mun­andi útgáfur í þessum flokki. Lesið verður úr bók­unum „Salt“ eftir Maríu Ramos, „FREYJA“ eftir Díönu Sjöfn Jóhanns­dóttur, og „Ódauðleg brjóst“ eftir Ásdísi Ing­ólfs­dóttur. Léttar veit­ingar verða í boði.

Stockfish-kvikmyndahátíð

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 1.–11. mars
Aðgangs­eyrir: 10.990 kr.

Yfir 20 hand­valdar alþjóð­legar verð­launa­myndir eru sýndar á Stockfish-hátíð­inni sem er haldin núna í fjórða skiptið. Innlent og erlent kvik­mynda­gerð­ar­fólk, eins og Arne Bro og Steve Gravestock, tekur þátt í pall­borðsum­ræðum. Einnig er fjöl­breytt úrval af vinnu­stofum, meðal ann­ars einni fyrir nor­rænar kvik­mynda­gerð­ar­konur.

Reykjavík Folk festival

Hvar? KEX Hostel
Hvenær? 1.–3. mars
Aðgangs­eyrir: 3.300 kr. fyrir eitt kvöld, 6.600 kr. fyrir hátíð­ar­passa.

Þjóð­lagatón­list­ar­há­tíðin Reykja­vík Folk Festival er þriggja daga tón­list­ar­veisla með fjöl­breyttri þjóð­lagatón­list­ar­flóru af hinni ýmsu gerð, með lista­mönnum á öllum aldri og með skemmti­lega ólíkan bak­grunn. Fram koma meðal ann­ars Soffía Björg, Pétur Ben, Lára Rúnars, Myrra Rós og Teitur Magn­ús­son.

Moses Hightower

Hvar? Húrra
Hvenær? 2. & 3. mars kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Ljúf­ling­arnir í Moses Hightower gáfu út plöt­una „Fjalla­loft“ í fyrra, en á henni heldur hljóm­sveitin áfram að fjalla um náin við­fangs­efni á blíðan hátt með silki­mjúku und­ir­spili. Búast má við því að heyra flest lögin af þeirri plötu á þessum tón­leikum, svo og vel valin lög af fyrri plöt­unum, „Önnur Mósebók“ og „Búum til börn“.

Girl Power-danspartí

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 8. mars kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

Á þessu dans­kvöldi, sem er haldið á alþjóða­dag kvenna, verða spil­aðir margir af helstu slög­urum síð­ustu ára; Diana Ross, Beyonce, Janis Joplin, Ragga Gísla, Heart, Aretha Franklin, Jennifer Lopez, Dorothy, Emiliana Torrini, svo áfram mætti halda. Hluti af ágóð­anum af miða­söl­unni rennur til Stíga­móta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár