Stjórnun kynferðisbrotadeildar ábótavant – Sigríður skipti yfirmanni út fyrir stjórnanda með minni reynslu af rannsókn kynferðisbrota

Núver­andi fyr­ir­komu­lag við stjórnun kyn­ferð­is­brota­rann­sókna má að miklu leyti rekja til skipu­lags­breyt­inga sem gerðar voru eftir að Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir tók við sem lög­reglu­stjóri. Athygli vakti þegar Árni Þór Sig­munds­son var gerður að yfir­manni kyn­ferð­is­brota­rann­sókna í stað Krist­jáns Inga Krist­jáns­sonar, þótt Kristján Ingi hefði miklu meiri reynslu af slíkum rann­sóknum.

Stjórnun kynferðisbrotadeildar ábótavant – Sigríður skipti yfirmanni út fyrir stjórnanda með minni reynslu af rannsókn kynferðisbrota

Stjórnun kyn­ferð­is­brota­deildar hefur ekki verið „með nægj­an­lega mark­vissum hætti“ und­an­farin ár sam­kvæmt nið­ur­stöðum inn­an­húss­skoð­unar lög­reglu á mis­tökum við rann­sókn meintra kyn­ferð­is­brota starfs­manns hjá Barna­vernd Reykja­víkur sem kynnt var í vik­unni. Núver­andi fyr­ir­komu­lag við stjórnun kyn­ferð­is­brota­rann­sókna má að miklu leyti rekja til skipu­lags­breyt­inga sem gerðar voru eftir að Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir var skipuð lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Sumarið 2015 var Árni Þór Sig­munds­son gerður að yfir­manni kyn­ferð­is­brota­rann­sókna í stað Krist­jáns Inga Krist­jáns­sonar þótt Kristján Ingi hefði meiri reynslu af slíkum rann­sóknum. 

Tilkynnt var um breyt­ing­arnar á starfs­manna­fundi þann 9. júlí 2015. Kristján Ingi, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn og yfir­maður R-3, deild­ar­innar sem rann­sak­aði meðal ann­ars kyn­ferð­is­brot, heim­il­is­of­beldi og mann­dráp, var lækk­aður í tign og gerður að lög­reglu­full­trúa. Honum var til­kynnt fyr­ir­vara­laust um þetta fyrir framan tugi manns, en Kristján hafði starfað að kyn­ferð­is­brota­rann­sóknum um ára­bil og öðl­ast víð­tæka reynslu og þjálfun á því sviði.

Vikið var að þess­ari atburða­rás í ítar­legri umfjöllun Stund­ar­innar um svipt­ingar í mið­lægu rann­sókn­ar­deild lög­regl­unnar haustið 2016. Bent var á að Kristján Ingi til­heyrði hópi þeirra fjöl­mörgu lög­reglu­manna sem voru lækk­aðir í tign eða færðir til í starfi eftir að hafa ýmist tekið upp hansk­ann fyrir eða ekki viljað taka afstöðu gegn lög­reglu­full­trúa sem Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir lög­reglu­stjóri og banda­menn hennar innan lög­regl­unnar grun­uðu um græsku.  

Samkvæmt nið­ur­stöðum skoð­unar lög­reglu á því hvað kunni að hafa farið úrskeiðis þegar dróst á lang­inn að hefja rann­sókn á máli starfs­manns Barna­verndar Reykja­víkur hefur stjórnun kyn­ferð­is­brota­deildar lög­reglu verið ábóta­vant und­an­farin ár.

Haft er eftir Árna Þór Sig­munds­syni í Frétta­blað­inu í dag að hann vilji ekki tjá sig um fram­tíð sína hjá emb­ætt­inu. „Ég hef ósköp ein­föld við­brögð. Ég ætla ekki að tjá mig nokkurn skap­aðan hlut um hana,“ segir hann. „Þetta er eitt af því sem ég ætla ekki að tjá mig um núna.“ Fram kom á blaða­manna­fundi lög­reglu í fyrra­dag að eng­inn starfs­maður yrði lát­inn sæta ábyrgð, færður til eða áminntur, vegna máls stuðn­ings­full­trú­ans hjá Barna­vernd Reykja­vík­ur. Þess í stað yrði kyn­ferð­isaf­brota­deild lög­regl­unn­ar styrkt um sex stöðu­gildi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lögregla og valdstjórn

Lögreglan segir að gildandi lög hafi heft rannsókn á meintum ISIS-liða
FréttirLögregla og valdstjórn

Lög­reglan segir að gild­andi lög hafi heft rann­sókn á meintum ISIS-liða

Þrír menn voru hand­teknir 12. jan­úar síð­ast­lið­inn í umfangs­mik­illi lög­reglu­að­gerð á Akureyri. Tveimur var sleppt en sá þriðji, sem var grun­aður um aðild að ISIS-hryðju­verka­sam­tök­unum, var sendur úr landi ásamt fjöl­skyldu sinni. Lögregla hefur lítið tjáð sig um málið vegna rann­sókn­ar­hags­muna. Í svörum lög­reglu við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar er þess þó getið að lög­regla hafi ekki verið heim­i­ilt að nota allar upp­lýs­ing­arnar sem var miðlað til hennar við rann­sókn máls­ins vegna gild­andi lagaum­hverfis.
Helmingur yfirstjórnenda lögreglunnar fékk stöðuna án auglýsingar
FréttirLögregla og valdstjórn

Helm­ingur yfir­stjórn­enda lög­regl­unnar fékk stöð­una án aug­lýs­ingar

Ítrekað er vik­ist undan meg­in­regl­unni um aug­lýs­inga­skyldu þegar ráðið er í yfir­manns­stöður hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „Eins og þið þekkið eru breyt­ingar og aug­lýs­ingar á yfir­manna­stöðum sér­stak­lega vel til þess fallnar að stuðla að óró­leika hjá emb­ætt­inu,“ sagði lög­reglu­stjóri í bréfi til starfs­manna. GRECO hefur gagn­rýnt verk­lagið.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár