Titr­ingur innan lög­reglu Haft var á orði í skýrslu­tökum hjá hér­aðs­sak­sókn­ara að það ríkti „smá­kónga­stríð“ innan fíkni­efna­deildar lög­reglu. Mynd: Björgvin Hilmarsson

Hallarbylting og hreinsanir í fíkniefnadeild

Lögreglu­menn sem höfðu lögreglu­fulltrúa í fíkni­efnadeild fyrir rangri sök hafa verið hækkaðir í tign, fengið óauglýsta stöðu og hlotið annars konar framgang í starfi. Þeir sem stóðu með lögreglu­fulltrúanum fengu hins vegar að kenna á því. Í skýrslu­tökum hjá héraðs­saksóknara lýstu lögreglu­menn ólgu, ósætti og flokka­dráttum og haft var á orði að „smákónga­stríð“ geisaði innan fíkni­efnadeildar. En um hvað snýst smákónga­stríðið?

Um helmingur þeirra lögreglu­manna sem sökuðu lögreglu­fulltrúa í fíkni­efnadeild um lögbrot hefur verið hækkaður í tign eða hlotið framgang í starfi eftir að lögreglu­fulltrúanum var vikið úr deildinni. Einn þeirra gegnir nú stöðunni sem lögreglu­fulltrúinn gegndi áður og annar hefur verið settur í stöðu lögreglu­fulltrúa á höfuð­borgar­svæðinu án auglýsingar. 

Aldís Hilmars­dóttir, fyrr­verandi yfirmaður fíkni­efnadeildar, var færð til og svipt öllum manna­forráðum skömmu eftir að mál lögreglu­fulltrúans rataði í fjölmiðla. Þá hafa tveir lögreglu­menn, sem töldu ásakanir á hendur lögreglu­fulltrúanum tilhæfu­lausar og gagnrýndu fram­gönguna gagnvart honum, verið reknir af vettvangi fíkni­efna­rannsókna.

Að mati héraðs­saksóknara liggur nú fyrir að umræddur lögreglu­fulltrúi var hafður fyrir rangri sök. Samkvæmt rökstuðningi embættisins fyrir niður­fellingu málsins kom ekkert fram við rannsókn þess sem rennir stoðum undir ásakanir um að maðurinn – sem hér eftir verður kallaður lögreglu­fulltrúi x – hafi átt í óeðli­legum samskiptum við fíkniefna­heiminn eða brotið af sér í starfi.

Í skýrslu­tökum lýstu lögreglu­menn ólgu, ósætti og flokka­dráttum og haft var á orði að „smákónga­stríð“ geisaði innan deildarinnar.

Ólga vegna leynihóps

Sú deild sem hér er fjallað um er yfirleitt kölluð fíkni­efnadeild í fjöl­miðlum en fæst við rann­sóknir á skipulagðri brota­starfsemi almennt.

Á meðal þess sem skapað hefur sundrung innan deildarinnar er sú tilhögun að einungis fáeinir lögreglu­menn tilheyri sérstöku upplýsinga­teymi; leynihópi sem sinnir utan­umhaldi og samskiptum við uppljóstrara lögreglu innan úr fíkniefna­heiminum. Leynd ríkir yfir störfum þessa hóps af öryggis­ástæðum og til að fyrir­byggja hagsmuna­árekstra. 

Lögreglu­fulltrúi x var um árabil yfirmaður hópsins og samkvæmt heimildum Stundarinnar bakaði hann sér óvild meðal nokkurra starfs­manna fíkni­efnadeildar, einkum þeirra sem töldu borð­leggjandi að þeir fengju að tilheyra upplýsinga­teyminu vegna reynslu sinnar og starfs­aldurs. 

„Hann fékk menn upp á móti sér,“ segir fyrr­verandi lögreglu­maður í samtali við Stundina. Hann vandar lögreglu­fulltrúa x ekki kveðjurnar og segist telja að hann hafi komið illa fram við nokkra kollega sína. Aðspurður hvort hann telji þetta skýra ásakanirnar á hendur manninum segir að hann að svo megi vel vera.   

Mynd tengist frétt ekki beint.

Annar viðmælandi Stundarinnar úr lögreglu segir að lögreglu­fulltrúi x hafi einfald­lega oft verið „pirraður á starfs­mönnum sem ekki nenntu að vinna vinnuna sína“ og bætir við: „Í lögreglunni er nóg af mönnum sem eru hálf­gerðir áskrifendur að laununum sínum því þeir eru löngu hættir að nenna þessu. Það fór í pirrurnar á [lögreglu­fulltrúa x] og hann var stundum ekkert að fela það.“ 

Í skýrslu­tökum hjá embætti héraðs­saksóknara fullyrti fjöldi lögreglu­manna að lögreglu­fulltrúi x væri vandaður og ekki þekktur fyrir annað en fagleg vinnu­brögð. Þá var haft á orði að óánægju í fíkni­efnadeild mætti rekja til þess að mönnum hugnuðust ekki breytingar sem gerðar voru á utan­umhaldi með uppljóstrurum lögreglu innan fíkniefna­heimsins. Þeir sem ekki hefðu fengið að vera í upplýsinga­teyminu væru óánægðir með að upplýsingum teymisins væri haldið frá þeim. 

Forsaga málsins

Árið 2011 kvörtuðu þrír lögreglu­menn, sem ekki tilheyrðu upplýsinga­teymi fíkni­efnadeildar, undan því sem þeir töldu óeðlileg samskipti lögreglu­fulltrúa x við aðila úr undir­heimum. Karl Steinar Valsson, þáverandi yfirmaður fíkni­efnadeildar, gerði athugun á ásökununum, bar þær saman við gögn lögreglu og útbjó greinar­gerð sem send var Friðriki Smára Björgvins­syni, yfir­lögreglu­þjóni á höfuð­borgar­svæðinu og Jóni H. B. Snorra­syni vara­lögreglu­stjóra. Í ljósi þess að enginn rökstuddur grunur var um refsiverða háttsemi þótti ekki ástæða til að vísa málinu til ríkis­saksóknara. 

Um tveimur árum síðar, í apríl 2014, setti Stefán Eiríksson, þáverandi lögreglu­stjóri á höfuð­borgar­svæðinu, Aldísi Hilmars­dóttur í stöðu aðstoðar­yfir­lögreglu­þjóns og yfirmanns rannsóknar­deildar fíkniefna­mála og skipulagðrar brota­starfsemi. Áður hafði Aldís meðal annars starfað í efnahags­brota­deild ríkis­lögreglu­stjóra, fjármuna­brota­deild lögreglunnar á höfuð­borgar­svæðinu og hjá sérstökum saksóknara.

Með tilkomu Aldísar urðu áherslu­breytingar innan fíkni­efnadeildar. „Follow the money“ varð allt í einu aðal­atriðið, frekar en að eltast við smákrimma,“ segir einn af heimildar­mönnum Stundarinnar. Lögreglu­fulltrúi x var á meðal þeirra sem fögnuðu breytingunum en nokkrum úr deildinni hugnuðust þær ekki. 

Um sumarið sagði Stefán Eiríksson starfi sínu lausu í kjölfar þrýstings og ítrekaðra afskipta þáverandi innan­ríkis­ráðherra, Hönnu Birnu Kristjáns­dóttur, af störfum hans. Sigríður Björk Guðjóns­dóttir var þá flutt frá Suðurnesjum og skipuð í starf lögreglu­stjóra á höfuð­borgar­svæðinu án auglýsingar. Ráðist var í umfangs­miklar skipulags­breytingar hjá lögreglunni, meðal annars starfs­mannaskipti milli lögreglu­stjóra­embættisins á höfuð­borgar­svæðinu og ríkis­lögreglu­stjóra. Skömmu eftir að Aldís var skipuð í stöðu yfirmanns R-2 til fimm ára á vormánuðum 2015 kastaðist í kekki á milli þeirra Sigríðar. Að því er fram kemur í stefnu, sem Aldís hefur lagt fram gegn íslenska ríkinu vegna framgöngu Sigríðar Bjarkar gagnvart sér, þurfti hún til að mynda að ganga sérstak­lega á eftir því að fá skipunar­bréf sitt afhent.

„Innanhússskoðun“ lögreglu

Um sumarið leituðu átta lögreglu­menn til Ásgeirs Karls­sonar, yfirmanns greiningar­deildar ríkis­lögreglu­stjóra, og komu á framfæri ábendingum um hugsanleg brot lögreglu­fulltrúa x. Áður höfðu þrír þeirra, starfs­menn fíkni­efnadeildar, farið á fund Friðriks Smára Björgvins­sonar yfir­lögreglu­þjóns. „Erindi eins þeirra var að benda á óeiningu innan deildarinnar en hinna tveggja að koma á framfæri upplýsingum, byggðum á sögu­sögnum, um hugsanleg brot lögreglu­fulltrúans í starfi,“ segir í frétta­tilkynningu sem Friðrik Smári sendi út þegar Vísir.is fjallaði um málið. Eftir að málið var komið á borð ríkis­lögreglu­stjóra var það unnið í samráði við Sigríði Björk og ákveðið að vísa því áfram til ríkis­saksóknara. 

Þann 15. maí upplýsti Ásgeir Karlsson ríkis­saksóknara um ábendingar lögreglu­mannanna og í fram­haldinu óskaði saksóknara­embættið eftir frekari upplýsingum frá lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu. Þegar hér er komið sögu setti lögreglan af stað „innan­hússskoðun“ eins og það er kallað í styttri útgáfu af niður­fellingar­bréfi héraðs­saksóknara og var tveimur lögreglu­mönnum falið að annast hana. 

Lögreglufulltrúi x
Lögreglu­fulltrúi x var sakaður um óeðlileg samskipti við aðila úr fíkniefna­heiminum en hefur verið hreinsaður af þeim ásökunum.

Í innan­hússskoðun lögreglunnar var einungis rætt við þá sem sakað höfðu lögreglu­fulltrúa x um refsiverða háttsemi. Hvorki honum sjálfum né yfir­mönnum hans var gefinn kostur á að svara ásökununum né koma athuga­semdum á framfæri. Samkvæmt heimildum Stundarinnar voru margar þeirra ávirðinga og ágiskana sem skráðar voru niður við innan­húss­rannsókn lögreglu þess eðlis að einfaldar skýringar hefði verið hægt að nálgast í gagna­grunnum og tölvu­kerfum, hjá yfir­mönnum lögreglu­fulltrúans og öðrum, sem ekki var rætt við þegar skoðunin var framkvæmd. 

„Sigríði var bent á þetta af þeim sem framkvæmdu skoðunina, að hægt væri að ræða við þá sem stjórnuðu og spyrja þá út í einstök atriði en hún bannaði það,“ segir einn af heimildar­mönnum Stundarinnar úr lögreglu. „Aðeins skyldi talað við menn sem töldu sig hafa yfir einhverju að kvarta hjá [lögreglu­fulltrúa x] og engan annan mátti tala við.“ 

Fjórmenningar úr fíknó

Af þeim átta mönnum sem kvörtuðu til ríkis­lögreglu­stjóra voru aðeins fjórir starfandi í fíkni­efnadeild. 

Einn fjór­menninganna var Jens Gunnarsson, rannsóknar­lögreglu­maðurinn sem sat í gæslu­varðhaldi yfir síðustu áramót vegna gruns um að hafa átt í óeðli­legum samskiptum við brotamenn og þegið frá þeim peninga­greiðslur. 

Annar fjór­menninganna hafði lengi starfað sem rannsóknar­lögreglu­maður í fíkni­efnadeild, meðal annars sótt um stöðu yfirmanns en lotið í lægra haldi fyrir Aldísi. Í fyrra sótti hann um lögreglu­fulltrúa­stöðu sem lögreglu­fulltrúi x hafði sótt um og flestum þótti augljóst að sá síðarnefndi myndi fá. Lögreglu­fulltrúi x dró umsókn sína til baka þegar fjöl­miðlar hófu að fjalla um ásakanir á hendur honum. Eftir að lögreglu­fulltrúa x var vikið úr fíkni­efnadeild var umræddur rannsóknar­lögreglu­maður hækkaður í tign og gerður að lögreglu­fulltrúa. 

Sá þriðji úr fjögurra manna hópnum hafði lengi starfað sem rannsóknar­lögreglu­maður í fíkni­efnadeild og sóst eftir inngöngu í upplýsinga­teymið án árangurs. Í dag er hann orðinn einn af meðlimum teymisins.

Fjórði maðurinn hafði sótt um stöðu yfirmanns í fíkni­efnadeild á sínum tíma en ekki fengið. Samkvæmt heimildum Stundarinnar var hann einn þeirra sem höfðu býsnast yfir því að innan deildarinnar starfaði upplýsinga­teymi, einhvers konar leyni­klúbbur, sem vissi meira en hann og jafnvel eldri starfs­menn. Maðurinn gegnir í dag stöðu yfirmanns upplýsinga­teymisins, stöðunni sem lögreglu­fulltrúi x gegndi áður. 

Samstarfsmenn færðir til

Í milli­tíðinni hafði hins vegar annar maður, náinn samstarfs­félagi lögreglu­fulltrúa x til margra ára, tekið við yfirmanns­stöðu upplýsinga­teymisins og sinnt henni í um mánuð. Eftir að lögreglu­maður úr fíkni­efnadeild, einn þeirra sem sakað hafði lögreglu­fulltrúa x um ólöglega háttsemi, kom að máli við nýja yfir­manninn og vildi komast inn í upplýsinga­teymið vöknuðu deilur milli þeirra um málefni lögreglu­fulltrúa x. Hinn nýi yfirmaður upplýsinga­teymisins sakaði kollega sinn um að hafa tekið þátt í rógs­herferð gegn lögreglu­fulltrúa x; framin hefði verið hallar­bylting innan fíkni­efnadeildar með það að markmiði að bola burt lögreglu­fulltrúanum og Aldísi Hilmars­dóttur. 

Eftir þetta fór umræddur starfs­maður og klagaði yfirmann upplýsinga­teymisins til Sigríðar Bjarkar lögreglu­stjóra. Hún boðaði yfirmann teymisins á fund og krafðist þess að hann drægi ummæli sín til baka. Það vildi hann ekki gera. Í kjölfarið var maðurinn sviptur tign lögreglu­fulltrúa og fluttur úr hinni miðlægu rannsóknar­deild sem fæst við fíkni­efna­rannsóknir og skipulagða brota­starfsemi. Eftir því sem Stundin kemst næst hefur hann starfað þar til nú nýverið á lögreglu­stöðinni í Hafnar­firði og rannsakað minni­háttar sakamál. 

Í kjölfar þess að manninum var vikið úr fíkni­efnadeild tók einn fjór­menninganna við stöðu yfirmanns upplýsinga­teymisins. Samkvæmt heimildum blaðsins hefur sá maður ekki reynslu eða þjálfun í að vinna með upplýsinga­gjöfum lögreglu, enda tilheyrði hann ekki upplýsinga­teymi fíkni­efnadeildar meðan lögreglu­fulltrúi x var yfirmaður þess. 

Hinn maðurinn sem vikið var úr fíkni­efnadeild vegna vinskapar við lögreglu­fulltrúa x hafði lengi starfað í upplýsinga­teyminu og notið virðingar innan lögreglunnar. Hafði hann annast skipulag og stjórnun umfangs­mikilla aðgerða á sviði fíkni­efna­rannsókna. Fljótlega eftir að lögreglu­fulltrúa x var vikið úr deildinni frétti maðurinn að hann væri ekki lengur í náðinni hjá Sigríði Björk lögreglu­stjóra. Hann var færður til, vikið úr upplýsinga­teyminu og sinnir nú rann­sóknum ofbeldis­brota, málum sem hann hefur enga sérstaka reynslu af eða þekkingu á. 

„Það var engin fagleg, málefnaleg eða skyn­samleg ástæða fyrir þessari breytingu,
þetta var augljós­lega vegna þess að hann var náinn [lögreglu­fulltrúa x]“

„Það var engin fagleg, málefnaleg eða skyn­samleg ástæða fyrir þessari breytingu, þetta var augljós­lega vegna þess að hann var náinn [lögreglu­fulltrúa x],“ segir einn af viðmælendum Stundarinnar. Annar tekur í sama streng og segir: „Auðvitað fengu menn á tilfinninguna að það væru farnar af stað einhvers konar hreinsanir; það ætti að setja þá út í horn sem höfðu unnið náið með [lögreglu­fulltrúa x]. Núna þegar sann­leikurinn liggur fyrir eftir rannsókn héraðs­saksóknara sést auðvitað hvers konar klikkun þetta var.“

Orðinn lögreglufulltrúi án auglýsingar

Hinir fjórir sem leituðu til Ásgeirs Karls­sonar og sökuðu lögreglu­fulltrúa x um refsiverða háttsemi voru á þeim tíma ekki starfs­menn fíkni­efnadeildar.  

Einn þeirra starfaði áður hjá embætti sérstaks saksóknara og hefur nú verið settur í stöðu lögreglu­fulltrúa án auglýsingar. 

Annar er núverandi starfs­maður lögreglunnar á Selfossi en vann áður sem lögreglu­fulltrúi á lögreglu­stöðinni í Reykjavík. Þar áður hafði hann starfað sem lögreglu­fulltrúi yfir aðgerða­hópi fíkni­efnadeildar en verið rekinn. „[Lögreglu­fulltrúi x] hrakti [umræddan mann] úr starfi og hirti svo vinnuna hans,“ segir fyrr­verandi starfs­maður lögreglunnar í samtali við Stundina. Annar viðmælandi segir að það sé fráleitt að kenna [lögreglu­fulltrúa x] um brott­rekstur umrædds manns úr fíkni­efnadeild.  

Þriðji maðurinn utan fíkni­efnadeildar sem sakaði lögreglu­fulltrúa x um ólöglega háttsemi er núverandi varð­stjóri hjá lögreglunni á Vík í Mýrdal og fyrr­verandi starfs­maður fíkni­efnadeildar. Fjórði maðurinn átti minni aðkomu að málinu en hinir. Hann staðfesti einungis að hafa orðið vitni að tilteknu samtali sem hinum mönnunum fannst grunsamlegt. Sjálfur mun hann ekki hafa hallað orði á lögreglu­fulltrúa x.  

Sigríður Björk Guðjónsdóttir
Sigríður Björk Guðjóns­dóttir var skipuð í stöðu lögreglu­stjóra án auglýsingar í ráðherratíð Hönnu Birnu Kristjáns­dóttur.

Aldís kölluð á teppið

Eftir að rætt hafði verið við áttmenningana í því sem kallað var „innan­hússskoðun“ lögreglu, sendi Sigríður Björk ríkis­saksóknara bréf, dagsett 8. júní 2015, þar sem ásakanir mannanna voru teknar saman og embættinu greint frá því að uppi væri orðrómur um að tiltekinn aðili úr fíkniefna­heiminum hefði um langa hríð notið sérstakrar verndar lögreglu­fulltrúa x, hugsanlega gegn peninga­greiðslum. 

Í kjölfarið fundaði Sigríður Björk með ríkis­saksóknara. Þær komust að þeirri niður­stöðu að kanna þyrfti málið betur. Á grund­velli frásagna áttmenninganna voru 22 tilvik um meint brot lögreglu­fulltrúa x skráð niður og gögnum úr LÖKE-kerfinu, upplýsinga­kerfi upplýsinga­teymis lögreglunnar og upplýsinga­veitu fíkni­efnadeildar safnað saman. 

Þann 14. desember 2015 – þegar innan­hússkoðuninni var lokið án þess að lögreglu­fulltrúi x og yfirmenn hans hefðu fengið að koma athuga­semdum á framfæri – var Aldís Hilmars­dóttir boðuð á fund Sigríðar Bjarkar lögreglu­stjóra með skömmum fyrirvara og fundar­efnis ekki getið.

„Á fundinum, þar sem einnig var viðstaddur aðal­lögfræðingur embættisins, kom lögreglu­stjóri á framfæri ýmsum órökstuddum ásökunum á hendur stefnanda,“ segir í stefnu Aldísar á hendur íslenska ríkinu. Í lok fundar var Aldísi boðið að flytja sig til embættis héraðs­saksóknara en hún hafnaði boðinu.

Sigríður Friðjónsdóttir
Sigríður Friðjóns­dóttir ríkis­saksóknari

Lögfræðingur hefur samband

Daginn eftir fundinn, þann 15. desember 2015, afhenti Sigríður Björk ríkis­saksóknara skjala­möppu með gögnum innan­húss­skoðunarinnar. Sama dag barst ríkis­saksóknara dular­fullur tölvu­póstur frá lögfræðingi og fyrr­verandi starfs­manni fíkni­efnadeildar. Saksóknari hringdi í manninn sem sagðist vera umboðs­maður aðila úr fíkniefna­heiminum sem byggi yfir upplýsingum um meint brot lögreglu­fulltrúa x. Lögreglu­fulltrúinn hefði um árabil veitt umbjóðanda hans upplýsingar um fíkni­efna­rannsóknir og þegið greiðslur frá honum upp á margar milljónir. Samskiptin hefðu byrjað með þeim hætti að lögreglu­fulltrúi x hótaði undir­heima­manninum ofsóknum ef hann veitti sér ekki upplýsingar um aðra aðila úr fíkniefna­heiminum. Með tímanum hefði nokkurs konar viðskipta­samband komist á milli þeirra. Sagði lögfræðingurinn að umbjóðandi sinn væri reiðu­búinn að upplýsa um málið með því skilyrði að hann yrði sjálfur ekki ákærður.

Eftir þetta ákvað ríkis­saksóknari að hefja sakamála­rannsókn á lögreglu­fulltrúa x og var málið sent nýstofnuðu embætti héraðs­saksóknara 8. janúar 2016. Undir­heima­maðurinn sem átti að hafa leitað til lögfræðingsins var tekinn í skýrslu­töku og kom af fjöllum þegar hann var spurður um málið. „Sagðist hann aldrei hafa leitað til [lögfræðingsins] í þessu skyni og ekkert skilja hvað fyrir honum vakti,“ segir í niður­fellingar­bréfi saksóknara. 

Þá sagði undir­heima­maðurinn að umræddum lögfræðingi væri illa við lögreglu­fulltrúa x og kenndi honum um að hafa verið rekinn úr fíkni­efnadeild á sínum tíma. Þetta fékk Stundin staðfest þegar rætt var við lögfræðinginn, en hann hefur nú verið kærður fyrir rangar sakar­giftir. Lögfræðingurinn segir í samtali við Stundina að hann sé bundinn trúnaði um mál skjólstæðings síns en sé þess fullviss að með tíð og tíma komi sann­leikurinn í ljós. 

Undir­heima­maðurinn hefur þver­neitað fyrir að hafa átt í óeðli­legum samskiptum við lögreglu­fulltrúa x. Samkvæmt heimildum Stundarinnar mætti hann með öðrum lögmanni í skýrslu­töku til héraðs­saksóknara og hefur ekki viljað kannast við að lögfræðingurinn sem hér er fjallað um sé umboðs­maður sinn.

„Algjör tilviljun“

Aðspurður hvort hann hafi leitað til ríkis­saksóknara í samráði við embætti lögreglu­stjóra á höfuð­borgar­svæðinu segir lögfræðingurinn: „Nei, ég starfa ekki fyrir lögregluna, bara fyrir minn skjólstæðing.“ Aðspurður hvort það sé þá tilviljun að hann hafði samband við ríkis­saksóknara sama dag og Sigríður Björk sendi embættinu skjala­möppu um innan­hússskoðun lögreglunnar segir hann að engin tengsl séu þarna á milli. „Þetta er algjör tilviljun. Það var nú meira að segja þannig að ég var ekki boðaður í skýrslu­töku þegar innan­húss­skoðunin hjá lögreglunni fór fram.“ Lögfræðingurinn sótti nýverið um stöðu lögreglu­fulltrúa en fékk ekki. Hins vegar hefur hann verið ráðinn sem lögreglu­maður í afleysingum á Vík í Mýrdal næstu vikurnar. 

Þann 14. janúar síðastliðinn, skömmu eftir að ríkis­saksóknari áfram­sendi málið til héraðs­saksóknara, ákvað Sigríður Björk að víkja lögreglu­fulltrúa x tíma­bundið frá störfum. Var honum tjáð að með brott­vikningunni væri yfir­stjórn lögreglu að bregðast við fjölmiðla­umfjöllun um meinta spillingu í fíkni­efnadeild. Að mati innan­ríkis­ráðuneytisins fól ákvörðun Sigríðar Bjarkar í sér brot á meðalhófs­reglu stjórnsýslu­réttar, enda byggði hún á orðrómi en ekki rann­sóknar­gögnum. 

Ólöf Nordal
Ólöf Nordal innan­ríkis­ráðherra

Daginn eftir hélt Aldís Hilmars­dóttir á fund Ólafar Nordal innan­ríkis­ráðherra og lýsti fyrir henni því umhverfi sem hún og aðrir starfs­menn lögreglunnar á höfuð­borgar­svæðinu hafa búið við undir stjórn Sigríðar Bjarkar. „Fyrir liggur að lögreglu­stjóri vissi af fundi stefnanda og innan­ríkis­ráðherra, en í lok dags þennan sama föstudag kom lögreglu­stjóri við á skrif­stofu stefnanda í því skyni að ræða hvað fram hefði farið á fundinum,“ segir í stefnu Aldísar. 

Á mánudeginum eftir helgina var Aldís rekin úr valnefnd sem sér um ráðningu nýrra lögreglu­fulltrúa í hinni miðlægu deild fíkni­efnadeildar. „Nokkrum mínútum síðar barst stefnanda svo fundarboð í tölvu­pósti frá lögreglu­stjóra. Kom þar fram að tilefni fundarins væri að ræða fyrir­hugaðar breytingar á verkefnum núverandi stjórn­anda í miðlægri rannsóknar­deild.“ Á fundinum var Aldísi kynnt sú ákvörðun að hún yrði færð til í starfi og svipt öllum manna­forráðum. Þetta var gert á þeim grund­velli að „tveir undirmenn stefnanda sættu rannsókn vegna gruns um spillingu, ástandið í deild stefnanda væri slæmt og að „breytingin“ væri gerð í þágu trúverðug­leika deildarinnar“ en lögreglu­stjórinn neitaði að gefa upp hvort ákvörðunin hefði verið tekin með samþykki eða vitneskju yfir­stjórnar embættisins.

Karl Steinar Valsson
Karl Steinar Valsson fyrr­verandi yfirmaður fíkni­efnadeildar

Samskipti í samráði við yfirmann

Þegar héraðs­saksóknari rann­sakaði mál lögreglu­fulltrúa x voru teknar skýrslur af 29 vitnum auk sakborninganna tveggja; lögreglu­manni x og undir­heima­manninum sem var sakaður um að hafa átt í óeðli­legum samskiptum við. Sakborningar og vitni voru yfirheyrð um öll þau 22 tilvik sem tekin höfðu verið saman í innan­hússskoðun lögreglu. Í engu tilvikinu taldist lögreglu­fulltrúi x hafa átt í óeðli­legum samskiptum við manninn. Þótti vel skjalfest að hvers kyns samskipti við undir­heima­manninn hefðu farið fram í samráði við Karl Steinar Valsson, þáverandi yfirmann fíkni­efnadeildar auk annars af þeim tveimur samstarfs­mönnum lögreglu­fulltrúa x sem síðar voru reknir af vettvangi fíkni­efna­rannsókna. 

Eins og Vísir hefur fjallað talsvert um var lögreglu­fulltrúi x á tímabili bæði í upplýsinga­teymi fíkni­efnadeildar og í rann­sóknum. Fram kom í skýrslu­tökum, bæði yfir honum sjálfum og öðrum, að honum hefði þótt þetta óeðlileg staða og kvartað undan fyrir­komulaginu við yfirmenn sína en talsverður tími liðið þar til því var breytt. 

Listinn reyndist ekki vera til

Fyrr á árinu fullyrti Vísir.is að meirihluti fíkni­efnadeildar hefði í sameiningu gert alvarlegar athuga­semdir við störf lögreglu­fulltrúa x. Samkvæmt heimildum Stundarinnar hefur Sigríður Björk ítrekað vísað til þessa í umræðum um málefni fíkni­efnadeildar. „Hún var alltaf að veifa þessu, að níu starfs­menn – meirihluti fíkni­efnadeildar – hefðu skilað til sín undir­ritaðri vantrausts­tillögu eða einhverju slíku,“ segir einn af heimildar­mönnum Stundarinnar.

Fleiri viðmælendur taka í sama streng. „Ég held að enginn trúi því lengur að þessi listi, eða þessi vantrausts­yfirlýsing eða hvað þetta nú átti að vera, sé til,“ segir einn þeirra. Kristján B. Thorlacius, lögmaður lögreglu­fulltrúa x, stað­festir í samtali við Stundina að nýlega hafi hann sent lögreglu­stjóra formlegt erindi, fyrir hönd skjólstæðings síns, og óskað eftir því að fá listann afhentan. Þá hafi honum borist skriflegt svar þar sem fram kemur að listinn sé ekki til.

Eins og Stundin hefur áður fjallað um telur Aldís Hilmars­dóttir að Sigríður Björk hafi með ámælis­verðum og endur­teknum hætti valdið henni vanlíðan, lagt hana í einelti og framið ólögmæta meingerð gegn friði hennar, æru og persónu. Hefur hún verið óvinnufær síðan og stefnt íslenska ríkinu vegna málsins. Fyrr í sumar greindi RÚV frá því að Aldís ætti ekki aftur­kvæmt í sína fyrri stöðu, enda hefði nýr yfirmaður tekið við keflinu og frekari breytingar væru ekki í sjónmáli. Í viðtali við Aldísi sagðist hún fyrst hafa heyrt af þessari ákvörðun í fréttum. 

Lögreglu­fulltrúi x er kominn aftur til starfa en vinnur í tölvu­rannsóknar­deild á Vínlands­leið við Grafar­holt. Í ljósi eindreginnar niður­stöðu innan­ríkis­ráðuneytisins og héraðs­saksóknara ætlar hann að stefna lögreglu­stjóranum á höfuð­borgar­svæðinu til greiðslu miskabóta. Fram hefur komið fleiri íhugi að grípa til sams konar úrræða, svo líklega er of snemmt að lýsa því yfir að „smákónga­stríðinu“ í fíkni­efnadeild sé lokið. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Valdatafl í lögreglunni

Mest lesið undanfarið ár