Segir að eineltið hafi „nákvæmlega ekkert með skipulagsbreytingar að gera“

Lögmaður lög­reglu­manns­ins sem hrökkl­að­ist frá störfum vegna fram­göngu Sigríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur lög­reglu­stjóra gerir athuga­semdir við yfir­lýs­ingu hennar vegna máls­ins.

Mynd tengist frétt ekki beint.
Mynd teng­ist frétt ekki beint. Mynd: Af Facebook-síðu lögreglunnar

Kristján B. Thorlacius, lög­maður lög­reglu­manns af fíkni­efna­sviði sem nýlega kvart­aði undan ein­elti Sigríðar Bjarkar Guð­jóns­dóttur lög­reglu­stjóra, segir frá­leitt að hún skuli láta í veðri vaka að kvörtun­ina megi rekja til skipu­lags­breyt­inga hjá emb­ætt­inu. „Þær ger­ræð­is­legu ákvarð­anir sem lög­reglu­stjóri tók í máli umbjóð­anda míns höfðu nákvæm­lega ekk­ert með skipu­lags­breyt­ingar að gera,“ segir hann. 

Eins og Stundin greindi frá í síð­ustu viku hefur lög­mað­ur­inn sent starfs­manna­skrif­stofu lög­regl­unnar og inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu bréf þar sem því er lýst hvernig Sigríður Björk hót­aði mann­inum stöðu­lækkun, svipti hann lög­reglu­full­trúa­stöðu og dró til baka ákvörðun um að hann fengi að sækja sér­hæf­ing­ar­nám­skeið erlendis. Allt þetta gerð­ist í vitna við­ur­vist eftir að lög­reglu­mað­ur­inn lét í ljós efa­semdir um rétt­mæti ásak­ana sem bornar höfðu verið á sam­starfs­mann hans, þann mann sem kall­aður hefur verið lög­reglu­full­trúi x í umfjöllun Stund­ar­innar og var hreins­aður af ásök­unum um brot í starfi og óeðli­leg sam­skipti við aðila úr fíkni­efna­heim­inum fyrr í sumar. 

Eftir að Stundin greindi frá þessu sendi Sigríður Björk frá sér yfir­lýs­ingu vegna umfjöll­unar um málið. Þar segir hún að ekki séu allar ákvarð­anir lög­reglu­stjóra lík­legar til vin­sælda og síst þær sem feli í sér breyt­ingar á verk­efnum eða valdsviði ein­stak­linga. Þá minn­ist hún á skipu­lags­breyt­ingar og umbreyt­ing­ar­verk­efni sem séu í gangi hjá verk­efn­inu. „Ég hef gert margar breyt­ingar frá því að ég tók við sem lög­reglu­stjóri og miða þær allar að því að gera lög­regl­una aðgengi­legri, skipu­rit flat­ara, boð­leiðir styttri og en fyrst og fremst að bæta þjón­ustu okkar við borg­ar­ana. Einnig hef ég lagt aukna áherslu á ákveðna mála­flokka eins og kyn­ferð­is­brota­mál, man­sal og heim­il­is­of­beld­is­mál og þar er starfs­fólk emb­ætt­is­ins búið að vinna frá­bært starf í erf­iðum verk­efnum,“ segir Sigríður Björk í yfir­lýs­ingu sinni og bætir við: „Líkt og títt er um slíkar breyt­ingar geta þær verið umdeildar, hitt í mark hjá sumum en valdið óánægju ann­arra. Ég hef hlustað á ábend­ingar lög­reglu­manna en mikið af óánægj­unni hefur borist frá nafn­lausum aðilum í gegnum fjöl­miðla.“

Stundin bauð lög­manni og tals­manni lög­reglu­manns­ins sem kvart­aði undan ein­elti lög­reglu­stjóra að bregð­ast við yfir­lýs­ing­unni. Hann sendi blaða­manni eft­ir­far­andi tölvu­póst:

Lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sendi fjöl­miðlum fyrir helgi yfir­lýs­ingu sem virð­ast vera við­brögð við umfjöllun fjöl­miðla um kvörtun umbjóð­anda míns um ein­elti af hennar hálfu. Þar lætur lög­reglu­stjóri í veðri vaka að kvörtun umbjóð­anda míns megi rekja til skipu­lags­breyt­inga hjá emb­ætt­inu. Rétt er að halda því til haga að þær ger­ræð­is­legu ákvarð­anir sem lög­reglu­stjóri tók í máli umbjóð­anda míns höfðu nákvæm­lega ekk­ert með skipu­lags­breyt­ingar að gera.  Þær má alfarið og ein­göngu rekja til þess að umbjóð­andi minn vildi ekki draga til baka afstöðu sína til til­tek­inna starfs­manna emb­ætt­is­ins, sem farið höfðu fram gegn lög­reglu­full­trúa við emb­ættið með rang­færslum og ósann­indum. Það liggur fyrir, stað­fest í tölvu­pósti hennar sjálfrar, að lög­reglu­stjóri bauð umbjóð­anda mínum ítrekað að skipta um skoðun í mál­inu og hverfa frá sann­fær­ingu sinni. Ef hann gerði það þá myndi málið ekki hafa nein áhrif á stöðu hans við emb­ættið.

Vegna ummæla lög­reglu­stjóra um nafn­lausar ábend­ingar lög­reglu­manna í fjöl­miðlum, þá er rétt að benda á að umbjóð­andi minn hefur lagt sínar kvart­anir um fram­gang lög­reglu­stjóra í mál­inu fram undir fullu nafni og á það bæði við um þær kvart­anir sem hann hefur nú gert með form­legum hætti til LRH og inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, sem og þá fundi sem hann hefur áður átt með lög­reglu­stjóra og full­trúum inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins vegna máls­ins.    

Tölvu­póst­ur­inn sem lög­mað­ur­inn vísar til hér að ofan verður birtur á vef Stund­ar­innar um helg­ina. Ítarlega er fjallað um málið í blað­inu sem kemur út á morgun. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Valdatafl í lögreglunni

FréttirValdatafl í lögreglunni

Rann­sóknir fíkni­efna­mála í lama­sessi og mið­læga deildin sögð „gjör­sam­lega í molum“

Lítið er um frum­kvæð­is­rann­sóknir og lög­reglan ræður ekki lengur við umfangs­mikil fíkni­efna­mál. „Óstarf­hæft“ og „hand­ó­nýtt batt­erí“ eru dæmi um ein­kunnir sem lög­reglu­menn gefa vinnu­staðnum. Yfir­maður mið­lægu deild­ar­innar hættir og hverfur aftur til fyrri starfa hjá sér­sveit­inni.

21 mín. lestur

AfhjúpunValdatafl í lögreglunni

Lög­reglu­stjór­inn vís­aði til „list­ans“ í tölvu­pósti til ráð­herra en segir núna að hann sé ekki til

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir lög­reglu­stjóri vildi koma til­teknum atriðum á fram­færi við Ólöfu Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra. Hún minnt­ist á lista með und­ir­skriftum lög­reglu­manna sem sagðir voru van­treysta til­teknum lög­reglu­full­trúa. Nú full­yrðir hún við lög­mann manns­ins að þessi listi sé ekki til.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár