Lögreglustjórinn gaf ráðherra misvísandi upplýsingar um málefni lögreglumanns

Vísaði einnig til „list­ans“ sem hún segir nú að sé ekki til. Stundin birtir tölvu­póst Sigríðar Bjarkar til und­ir­manns síns sem ráð­herra fékk sent afrit af.

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, gaf inn­an­rík­is­ráð­herra og ráðu­neyt­is­stjóra inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins mis­vísandi upp­lýs­ingar um mál­efni lög­reglu­manns sem kvartað hafði undan vinnu­brögðum sem við­höfð voru hjá emb­ætt­inu. Stundin hefur áður birt tölvu­póst lög­reglu­manns­ins til mannauðs­stjóra lög­reglu sem for­maður Lands­sam­bands lög­reglu­manna, inn­an­rík­is­ráð­herra og ráðu­neyt­is­stjóri fengu afrit af. Í svari sem Sigríður Björk sendi sömu aðilum gefur hún vill­andi mynd af nokkrum atriðum er varða mann­inn og starfs­hagi hans. Þá seg­ist hún ætla að reka hann úr stýri­hópi um skipu­lagða glæp­a­starf­semi og úr fagráði um yfir­heyrslur. Jafn­framt vísar hún til máls­gagns sem hún hefur nú við­ur­kennt í öðrum tölvu­pósti að er ekki til. 

Í tölvu­póst­inum full­yrðir lög­reglu­stjór­inn að henni hafi ekki þótt ástæða til að senda umræddan lög­reglu­mann á lög­gæslu­náms­skeið í Búdapest vegna þess að sam­þykkt hefði verið beiðni um að sér­fræð­ingar frá Europol kæmu til Íslands til kenna fjölda íslenskra lög­reglu­manna. Tölvu­pósts­sam­skipti milli þriggja stjórn­enda og fyrr­ver­andi stjórn­enda hjá lög­regl­unni, Karls Steinars Vals­sonar, Aldísar Hilm­ars­dóttur og Friðriks Smára Björg­vins­sonar, sýna hins vegar að lagt var upp með að þrír Íslend­ingar færu á nám­skeiðið í Búdapest til að fá þjálfun í sam­skiptum við upp­lýs­inga­gjafa. Þann 27. ágúst 2015 fékk mað­ur­inn stað­fest­ingu á því að hann færi á nám­skeiðið og að gengið hefði verið frá hót­elgist­ingu. Fjórum dögum síðar, þann 31. ágúst, var hann hins vegar boð­aður á fund Sigríðar Bjarkar þar sem hún skamm­aði hann fyrir að láta í ljós van­traust gagn­vart þeim sam­starfs­mönnum sem borið höfðu rangar sakir á lög­reglu­full­trúa í fíkni­efna­deild, þann mann sem kall­aður hefur verið lög­reglu­full­trúi x í umfjöllun Stund­ar­innar. Hún brást illa við svörum lög­reglu­manns­ins, öskr­aði á hann og til­kynnti honum loks að hann yrði ekki sendur á lög­reglu­nám­skeiðið í Búdapest, hann yrði sviptur stöðu sinni sem lög­reglu­full­trúi, fengi ekki slíka stöðu aftur og skyldi ekki reikna með fram­gangi hjá emb­ætt­inu í fram­tíð­inni. 

Allt þetta gerð­ist í við­ur­vist Aldísar Hilm­ars­dóttur, sem var yfir­maður fíkni­efna­deildar á þessum tíma. Síðar átti Aldís Hilm­ars­dóttir eftir að upp­lýsa Ólöfu Nordal um ástandið innan lög­regl­unnar, meðal ann­ars um þennan fund og önnur sam­skipti lög­reglu­stjór­ans við und­ir­menn sína. Í kjöl­farið vék Sigríður Björg henni úr starfi yfir­manns. Um þetta er fjallað 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Valdatafl í lögreglunni

FréttirValdatafl í lögreglunni

Rann­sóknir fíkni­efna­mála í lama­sessi og mið­læga deildin sögð „gjör­sam­lega í molum“

Lítið er um frum­kvæð­is­rann­sóknir og lög­reglan ræður ekki lengur við umfangs­mikil fíkni­efna­mál. „Óstarf­hæft“ og „hand­ó­nýtt batt­erí“ eru dæmi um ein­kunnir sem lög­reglu­menn gefa vinnu­staðnum. Yfir­maður mið­lægu deild­ar­innar hættir og hverfur aftur til fyrri starfa hjá sér­sveit­inni.

21 mín. lestur

AfhjúpunValdatafl í lögreglunni

Lög­reglu­stjór­inn vís­aði til „list­ans“ í tölvu­pósti til ráð­herra en segir núna að hann sé ekki til

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir lög­reglu­stjóri vildi koma til­teknum atriðum á fram­færi við Ólöfu Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra. Hún minnt­ist á lista með und­ir­skriftum lög­reglu­manna sem sagðir voru van­treysta til­teknum lög­reglu­full­trúa. Nú full­yrðir hún við lög­mann manns­ins að þessi listi sé ekki til.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár